Morgunblaðið - 08.04.2014, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2014
Ætli við gerum ekki eitthvað í sumar þegar fer að róast, för-um saman í hestaferð, kannski um Snæfellsnesið og áLöngufjörur,“ sagði Unnsteinn Óskar Andrésson sem
fagnar fjórða tugnum í dag. Lítið fer þó fyrir afmælishaldi í ár þar
sem eldra barnið hans fermist um næstu helgi. Unnsteinn, sem er
smiður og blikksmiður, hafði annars lítinn tíma til að spjalla því
hann stóð í ströngu við að reisa tæplega 3.000 fermetra aðstöðu fyr-
ir hesta og menn á Lækjarmóti í Vestur-Húnavatnssýslu. Áætluð
verklok eru í maí.
Hestamennskan á hug Unnsteins allan og er öll fjölskyldan í
sportinu. Hann hlakkar til sumarsins þar sem riðið verður um land-
ið og farið á landsmót hestamann á Hellu.
Unnsteinn er fæddur og uppalinn í Borgarnesi en flutti á
Hvammstanga árið 2006 eftir að fæðingarorlofssjóður flutti starf-
semi sína þangað en þar starfar konan hans. Honum líkar vel að búa
þar, segir það mjög fjölskylduvænt og ekki sé verra að þau búi nán-
ast úti í sveit.
Fjölskyldan er saman með átta hesta á húsi. Að jafnaði fá þau eitt
til tvö folöld á ári, sem honum þyki alveg nóg. „Mér finnst alltaf
gaman að temja þessi dýr og sjá hvað þau hafa upp á að bjóða,“ seg-
ir Unnsteinn en hann tekur ógjarnan að sér hross í tamningu fyrir
aðra. thorunn@mbl.is
Unnsteinn Óskar Andrésson er 40 ára
Afmælisbarnið Unnsteinn Óskar Andrésson, smiður, blikksmiður og
hestamaður með meiru, að störfum við smíðar á Lækjarmóti í V-Hún.
Hlakkar til hesta-
ferðanna í sumar
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Reykjavík Matthildur Kristín Hauks-
dóttir fæddist 5. júní kl. 8.23. Hún vó
4.580 g og var 53 cm löng. Foreldrar
hennar eru Eyrún Ósk Sigurðardóttir
og Haukur Hafsteinn Þórsson.
Nýir borgarar
Reykjavík Logi Steinsson fæddist 16.
júlí kl. 8.52. Hann vó 4.185 g og var 53
cm langur. Foreldrar hans eru Hildur
Símonardóttir og Steinn Hildar Þor-
steinsson.
G
uðmundur fæddist á
Sólvangi í Hafnarfirði
8.4. 1964 og ólst þar
upp til sjö ára aldurs
en flutti síðan á Valda-
læk á Vatnsnesi. Hann var í Laug-
arbakkaskóla og stundaði nám við
Héraðsskólann á Reykjum í
Hrútafirði.
Guðmundur og Sólveig, kona
hans, stofnuðu sitt heimili á
Blönduósi og voru búsett þar á ár-
unum 1984-95. Þar sinnti Guð-
mundur almennum verka-
mannastörfum og vann við smíðar.
Hann stundaði nám í húsasmíði við
Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra á Sauðárkróki og lauk það-
an sveinsprófi 1993.
Guðmundur og Sólveig fluttu
síðan til Akureyrar þar sem þau
hófu bæði kennaranám við HA.
Guðmundur Engilbertsson, lektor við kennaradeild HA – 50 ára
Í sumaryl með sólgleraugu Guðmundur og Sólveig Þula Þeysdóttir, fyrsta barnabarnið, við Húnaflóa sl. sumar
Læsi byggir á þekk-
ingu, hugsun og reynslu
Sumarstemming Sólveig, eiginkona Guðmundar og yngsti sonurinn, Tumi.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.isVagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - ofnasmidja@ofnasmidja.is - sími 577 5177
Rafvirkjar og aðrir verktakar ath...
Ø68 mm dósabor í steinvegg á tilboði út mars.
- millistykki fyrir SDS borvélar fylgir með.
Vantar tennur á ykkar dósabora?
Viðgerðarþjónusta á notuðum dósaborum,
kjarnaborum og sagarblöðum.
16.890,-
Fullt verð kr. 21.113,- m/vsk