Morgunblaðið - 08.04.2014, Page 35
Hann lauk kennaraprófi þaðan
1998 með áherslu á myndmennt og
kenndi síðan við Þelamerkurskóla
og Tónlistarskóla Eyjafjarðar
1998-2003. Hann varð síðan sér-
fræðingur á Miðstöð skólaþróunar
við hug- og félagsvísindasvið HA
2003 og aðjunkt við kennaradeild,
lauk MEd-prófi í menntunarfræði
við HA 2010 með áherslu á læsi og
hefur verið lektor við kennd-
aradeild HA frá 2011.
Guðmundur hefur sinnt rann-
sóknum á lestri og læsi og er höf-
undur læsisverkefnisins Orðs af
orði sem hefur verið notað við nám
og kennslu í yfir 70 grunnskólum
hér á landi.
Minni yfirferð – meiri skilning
Hefur læsi hnignað hér á landi á
undanförnum árum?
„Hugmyndir um læsi hafa
breyst mikið síðustu árin og mat á
læsi er flóknara en svo að auðvelt
sé að fullyrða um það. Alþjóðlegar
mælinga gefa vísbendingar um
dvínandi árangur íslenskra ung-
menna í prófum á lesskilningi og
læsi. Það hefur leitt til töluverðrar
umræðu í samfélaginu um lestur
og læsi.
Sjálfur staldra ég einkum við
tvennt í skólastarfinu sem mér
finnst brýnt að færa til betri vegar
í þágu læsis. Það fyrra lýtur að
áhrifum lesturs og orðaforða á læsi
og lesskilning og mikilvægi þess að
auðga sem best málumhverfið í
skólanum þannig að börn öðlist
gott vald á tungumálinu.
Ef vel tekst til í þessum efnum
getur það haft jákvæð áhrif á læsi
og nám. Það seinna varðar mik-
ilvægi þess að draga úr asa í
skólastarfinu sem birtist einkum í
hraðri yfirferð á miklu námsefni.
Það eru skilyrði sem geta vissu-
lega stuðlað að framleiðni en of oft
á kostnað gæða. Asinn stuðlar ekki
að góðum námsvenjum eða áhuga
eða skilningi á því sem börn fást
við. Þau þurfa tíma til að aga
hugsunina, brjóta námsefnið til
mergjar, setja það í víðara sam-
hengi, átta sig á merkingu þess og
nýta sér á skapandi og greinandi
hátt. Við slíkt nám er tungumálið
hvoru tveggja verkfæri hugans og
samskiptatæki. Það myndi hafa já-
kvæð áhrif á læsi og nám að leggja
meiri áherslu á þetta tvennt“.
Fjölskylda
Eiginkona Guðmundar er Sól-
veig Zophoníasdóttir, f. 5.6. 1965,
sérfræðingur á Miðstöð skólaþró-
unar við hug- og félagsvísindasvið
HA. Hún er dóttir Zophoníasar
Zophoníassonar, f. 24.2. 1931, d.
21.4. 2002, framkvæmdastjóra á
Blönduósi, og Gretu Bjargar Arilí-
usardóttur, f. 11.2. 1935, d. 24.4.
2013, framkvæmdastjóra þar.
Synir Guðmundar og Sólveigar
eru Þeyr, f. 3.11. 1983, starfs-
maður hjá Ísgel á Blönduósi en
kona hans er Ebba Unnsteins-
dóttir verslunarmaður og eiga þau
eina dóttur og Ebba tvö börn frá
því áður; Kolbeinn Ali, f. 28.1.
1988, myndlistar-, tónlistar- og
kvikmyndagerðarmaður á Ak-
ureyri; Zophonías Tumi, f. 1.7.
2001, grunnskólanemi.
Alsystkini Guðmundar: Sigurrós,
f. 8.1. 1963, starfsmaður hjá Fak-
tor í Reykjavík, og Kolbeinn Guð-
mundur, f. 26.9. 1965, langferð-
arbílstjóri, búsettur á Siglufirði.
Hálfsystir Guðmundar, sam-
feðra: Anna Kapitola, f. 15.2. 1972,
meistaranemi í Reykjavík.
Hálfsystur Guðmundar, sam-
mæðra, eru Þórdís Anna Þórarins-
dóttir, f. 3.6. 1975, fiskvinnslukona
í Grindavík; Valgerður Þórarins-
dóttir, f. 29.10. 1976, fisk-
vinnslukona í Grindavík, og Ögn
Þórarinsdóttir, f. 23.1. 1986, versl-
unarmaður í Reykjavík.
Foreldrar Guðmundar: Eng-
ilbert Kolbeinsson, f. 7.9. 1938,
fórst með Sjöstjörnunni KE-8 hinn
11.2. 1973, skipstjóri, og Kristín
Þóra Valdimarsdóttir, f. 7.9. 1944,
húsfreyja í Grindavík.
Seinni maður Kristínar Þóru og
stjúpfaðir Guðmundar er Þórarinn
Guðmundsson, f. 1.5. 1932, fyrrv.
bóndi á Valdalæk á Vatnsnesi, nú
búsettur í Grindavík.
Úr frændgarði Guðmundar Engilbertssonar
Guðmundur
Engilbertsson
Kristín Sigurðardóttir
húsfr. í Bolungarvík
Þórarinn Pálsson
verkam. í Bolungarvík
Anna Þórarinsdóttir
húsfr. í Rvík
Valdimar Anton Valdemarsson
bílstj. hjá BP í Rvík
Kristín Þóra Valdimarsdóttir
húsfr. í Grindavík
Anna Jónasdóttir
húsfr. í Rvík
Valdemar Guðmundsson
daglaunam. í Rvík
Rósa Jóhannsdóttir
húsfr. á Ísafirði
Sigurjón Sigurðsson
sjóm. á Ísafirði
Kapitola Sigurjónsdóttir
húsfr. á Auðnum
Kolbeinn Guðmundur Guðmundsson
útvegsb. á Auðnum á Vatnsleysustr.
Engilbert Kolbeinsson
skipstj. fórst með
Sjöstjörnunni 1973
Sigríður Jensdóttir
húsfr. á Lónseyri
Guðmundur Engilbertsson
b. á Lónseyri á Snæfjallastr.
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2014
Séra Oddur V. Gíslason, presturí Grindavík og víðar, fæddist íReykjavík 8.4. 1836. For-
eldrar hans voru Gísli Jónsson, tré-
smiður í Reykjavík og k.h., Rósa
Grímsdóttir húsfreyja.
Oddur varð stúdent frá Lærða
skólanum 1858 og lauk embættis-
prófi í guðfræði frá Prestaskólanum
1860. Auk þess las hann læknisfræði
á gamals aldri í Rochester í New
York-ríki, lauk námi í líffræði, hug-
lækningum og dáleiðslulækningum
með hæsta heiðri, stundaði fram-
haldsnám í Chicago og lauk prófum
með nafnbótina Doctor of Mechano-
Therapy árið 1909. Hann var með-
limur í The American Asssociation
of Physicians & Surgeons og félagi í
International Health League.
Oddur var mikill framfarasinni og
ævintýramaður og engan veginn við
eina fjölina felldur þegar kom að
hugðarefnum. Hann dvaldi lengst af
í Reykjavík á árunum 1860-1875, var
bæjarfulltrúi þar 1871-75, var hör-
kusjósóknari og formaður á eigin
bát og stundaði verslunarstörf í
Reykjavík. Hann rannsakaði jarðlög
og stundaði brennisteinsnámu-
vinnslu í Krýsuvík, kolanámvinnslu
við Hreðavatn og var umboðsmaður
fyrir vátryggingafélög sjómanna.
Hann lagði grunn að slysavörnum
hér á landi, sigldi oft til Englands og
ferðaðist um Frakkland og Þýska-
land, dvaldi í Kaupmannahöfn 1873-
74 og gaf út fyrstu kennslubók í
ensku fyrir Íslendinga. Séra Oddur
var kallaður og skikkaður sókn-
arprestur í Grímsey 1861 en fór
aldrei þangað, var veittur Lundur
1875, var vígður að Stað í Grindavík
1878 en fékk lausn frá embætti 1894
og fór þá til Ameríku.
Oddur var prestur íslenskra safn-
aða í Nýja-Íslandi og Selkirk 1894-
1903 en sagði sig þá úr Hinu evang-
elíska-lútherska kirkjufélagi Íslend-
inga vegna úrskurðar kirkjuþings
um lækningar hans og var um skeið
farandprestur á eigin vegum
Eiginkona séra Odds var Anna
Vilhjálmsdóttur sem lést 1927 og
eignuðust þau 13 börn.
Oddur lést í Winnipeg 10.1. 1911.
Merkir Íslendingar
Oddur V.
Gíslason
90 ára
Herborg Magnúsdóttir
María Jónsdóttir
85 ára
Erlendur Jónsson
Guðbjörn Breiðfjörð
Ingiberg Sigurgeirsson
Magnús Haraldur
Magnússon
80 ára
Jón Helgason
Jónína Sigríður
Þorgeirsdóttir
Sigurbjörn E. Logason
Sigurður Gunnarsson
Trausti Adamsson
75 ára
Björn M. Pálsson
Magnea K. Sigurðardóttir
70 ára
Hallgrímur Þ. Hallgrímsson
Hjördís Geirsdóttir
Jódís Jóhannesdóttir
Kjartan Sigtryggsson
Sigþór Guðbrandsson
Steinar Harðarson
60 ára
Grímur Berthelsen
Haraldur Jóhannsson
Ingibjörg Bragadóttir
Kristinn Jónsson
Ólöf Jónsdóttir
Ólöf Margrét Eiríksdóttir
Sigríður Ingólfsdóttir
Sófus Berthelsen
50 ára
Dean Turner
Einar Sörli Einarsson
Eva Magnúsdóttir
Guðmundur Heimir
Einarsson
Guðmundur Kristinn
Konráðsson
Jelena Dzjamko
Margrét Sigmundsdóttir
Svala Guðbjörg
Jóhannesdóttir
40 ára
Anna Dóra Gestsdóttir
Anna María Friðriksdóttir
Bárður Örn Gunnarsson
Bjarki Sigurðsson
Haukur Suska Garðarsson
Hjálmar Örn Erlingsson
Jón Þorgeir Sigurðsson
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Ólöf Erla Einarsdóttir
Soffía Gunnarsdóttir
Unnsteinn Óskar
Andrésson
30 ára
Dariusz Rysak
Elvar Árni Herjólfsson
Gísli Örn Bragason
Halldóra Ágústsdóttir
Hanna Aniela Frelek
Silja Dögg Sigurðardóttir
Sólveig Ásgeirsdóttir
Tanya Marie Mikac
Tomasz Tabala
Víðir Arnar Úlfarsson
Til hamingju með daginn
30 ára Steinunn ólst upp
í Árbænum er nú búsett í
Kópavogi, lauk prófi í við-
skiptafræði við HÍ 2010
og stundar nú MS-nám í
fjármálum fyrirtækja við
HR.
Maki: Guðjón Már Magn-
ússon, f. 1986, starfs-
maður hjá Vodafone.
Foreldrar: Rut Jónsdóttir,
f. 1959, skrifstofustjóri,
og Árni Heiðberg, f. 1958,
múrarameistari. Þau eru
búsett í Reykjavík.
Steinunn
Árnadóttir
30 ára Haukur býr í
Kópavogi og er hugbún-
aðarverkfræðingur hjá
Samskipum.
Maki: Anna Marín Skúla-
dóttir, f. 1987, BS-
sálfræði og í fæðing-
arorlofi.
Sonur: óskírður, f. 2014.
Foreldrar: Kristinn Eiríks-
son, f. 1956, verkfræð-
ingur, og Guðríður Birna
Ragnarsdóttir, f. 1956,
forstöðum. hjá Sam-
skipum.
Haukur
Kristinsson
30 ára Hörður ólst upp í
Reykjavík, býr þar og hef-
ur starfað á Hjólbarða-
verkstæði Sigurjóns frá
2003.
Sonur: Kristinn Máni
Harðarson, f. 2009.
Foreldrar: Sigríður
Arngrímsdóttir, f. 1950,
lengst af verslunarmaður
hjá Vörðunni, og Grettir
Jóhannesson, f. 1946,
lengst af starfsmaður hjá
Íspan. Þau eru búsett í
Reykjavík.
Hörður J.
Grettisson
Hægt er að sendamynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af
slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is