Morgunblaðið - 08.04.2014, Blaðsíða 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2014
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Á hlaðborði lífsins eru skammtarnir
stórir og maturinn frábær. Taktu sneið þína af
himnaríki með þér hvert sem þú ferð.
20. apríl - 20. maí
Naut Þótt það sé ágætt að hafa nóg að gera
verður þú að varast að taka að þér of mörg
verkefni í einu. Svarið er innan seilingar, þú
þarft bara að koma auga á það.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Undanfarin ferðalög og menntun
hafa búið þig undir framgang í starfi sem
verður á næstu tveimur árum. Haltu þínu
striki. Sigurinn er alltaf sætari ef þú þarft að
hafa fyrir honum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Breytingar breytinganna vegna hafa
sjaldnast nokkuð upp á sig. Taktu þessum
aukna krafti sem þú finnur fyrir með yfirveg-
un og hógværð.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Viðureignin hefur margar lotur og stigin
eru ekki talin fyrr en bjallan glymur í síðasta
sinn. Alla þyrstir í viðurkenningu, gakktu
samt ekki of langt í þeirri baráttu.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Láttu þér nægja að einbeita þér að
þínum eigin verkefnum. Einhver sendir þér
góða strauma, þú finnur fyrir því í amstri
dagsins.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú lagðir hart að þér í gær og ættir því
að leyfa þér að slaka svolítið á í dag. Und-
irbúðu þig vandlega og komdu svo beiðni
þinni á framfæri.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Líttu á björtu hliðarnar og gerðu
þér sem flest að gamni. Sjáðu takmarkið fyrir
þér eins og því hafi verið náð.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þið hjónin/hjónaleysin ættuð að
setjast niður og gera fjárhagsáætlun sem þið
farið svo eftir. Reyndu að hrista slenið af þér
því það eru í raun þínar eigin efasemdir sem
vekja þessar tilfinningar með þér.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þér finnst einhvern veginn eins og
allir í kringum þig séu að leika einhver hlut-
verk. Finndu út hvernig það að vera jákvæður
virkar og allt fer á fleygiferð.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú hefur látið undan í nafni vin-
skapar. Með því ertu að leggja grunn að betri
og tryggari framtíð.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú átt að sýna háttvísi í samskiptum í
dag og ekki láta undan þörfinni fyrir að
þröngva öðrum til samþykkis við þig. Þegar
upp er staðið er enginn mikilvægari en annar.
Sigmundur Benediktsson fylgd-ist skelfingu lostinn með
landsleik Íslands og Austurríkis í
handknattleik á Ólafsvík um
helgina:
Leikurinn var langvinnt slys,
liðið sundur tuggðist.
Enda fór þar úrskeiðis
allt, sem getur brugðist.
Annars er kominn vorhugur í
Sigmund eins og sést á kviðlingum
sem fóru í Skáldu hjá kvæða-
mannafélaginu Iðunni á föstudags-
kvöld undir yfirskriftinni: „Vor-
hugur á einmánuði“:
Vorhljóð í bárunni vekur upp dug,
vindur frá suðrinu hlýjar.
Glæðast nú bráðum í hjarta og hug
hugsanir ungar og nýjar.
Sólin um norðurslóð hækkar sinn hag
hnýtir um jörðina geisla.
Lífríki bjóðast fer dag eftir dag
dýrðlegust sköpunarveisla.
Jón Arnljótsson hefur ef til vill
átt leið um Fljótshlíðina og vitjað
leiðis Guðmundar dúllara að Hlíð-
arenda er hann orti:
Fjarlægð gerir fjöllin blá.
Fer það eins um Dímon.
Allt úr fjarska mæra má.
Mikið skáld var Símon.
Að síðustu er rétt að greina frá
viðburði í stóra salnum í Há-
skólabíói laugardaginn 12. apríl
nk., en þá verður flutt dagskrá til
heiðurs hinu háttbundna nútíma-
ljóði sem er í mikilli sókn um þess-
ar mundir. Tíu skáld af báðum
kynjum og ýmsum aldri flytja eig-
in ljóð og því má búast við fjöl-
breyttum og krassandi kveðskap.
Skáldin sem fram koma eru: Davíð
Þór Jónsson, Sigrún Haralds-
dóttir, Valdimar Tómasson, Ter-
esa Dröfn Njarðvík, Aðalsteinn
Svanur Sigfússon, Snæbjörn Ragn-
arsson, Þórunn Erlu Valdimars-
dóttir, Örlygur Benediktsson, Eva
Hauksdóttir og Bjarki Karlsson.
Kynnir verður Sigurður Karlsson,
leikari og þýðandi, sem einnig
kynnti Listaskáldin vondu í þess-
um sama sal árið 1976. Miðasala er
á midi.is. Hér er eitt ljóða Davíðs
Þórs:
Um lífið á jörðinni talaði hann tíðum
og töfrana í alheimnum rómi svo
blíðum
af taumlausri umhyggju og elsku.
Á því sem hann fjölfróður fjálglega
ræddi
um fegurð og kærleika ekkert ég
græddi.
Ég varla skil eitt orð í velsku.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af landsleik, Símoni og
hinum svokölluðu skáldum
Í klípu
„ÞETTA ER BARA SMÁ ANDLÁTSGALLI.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞÚ SAGÐIR AÐ ÉG MÆTTI SKILA ÞVÍ EF
KONUNNI MINNI LÍKAÐI EKKI VIÐ ÞAÐ.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... heimsókn frá
barnabörnunum.
VEGGFÓÐUR
HVAÐ
VELDUR
STRÍÐI,
PABBI?
Í GRUNNINN ERU STRÍÐ
HÁÐ AF ÞVÍ AÐ EINHVERN
LANGAR Í EITTHVAÐ SEM
EINHVER ANNAR Á.
EN HVAÐ GERIST
ÞEGAR HANN FÆR
ÞAÐ SEM HANN
LANGAR Í?
ÞÁ KEMUR HANN Á
ÖÐRU STRÍÐI, TIL AÐ
FÁ EITTHVAÐ ANNAÐ
SEM HANN LANGAR Í.
BUBBI OG ÉG VORUM
BRJÁLAÐIR UNGLINGAR.
VIÐ STUNDUÐUM
KAPPAKSTUR.
ÉG MÁLAÐI ELDTUNGUR
Á TRAKTORINN!
SVALT,
EN LÍKA
SORGLEGT.
Víkverji hefur horft með öðru aug-anu á hæfileikaleitina Ísland
Got Talent á Stöð 2. Til að byrja
með sá hann möguleika á því að fjöl-
skyldan kæmi saman við skjáinn –
eins og í gamla daga. Þannig var það
líka tvo fyrstu þættina. Ungling-
arnir, sem raunar eru orðnir nokkuð
stálpaðir, sáust í fyrsta skipti um
árabil í stofunni. Úr varð býsna
hugguleg stund. Það var þó skamm-
góður vermir. Eftir annan þáttinn
gáfust unglingarnir upp. Fóru aftur
í símann.
Það vantaði einhvern þéttleika í
áheyrnarprufurnar. Lítil sem engin
stemning skapaðist. Sjálfur datt
Víkverji inn og út úr þættinum. Sá
enga sérstaka ástæðu til að staldra
við.
x x x
Fyrir rúmri viku hófust síðan bein-ar útsendingar frá keppninni og
ákvað Víkverji þá að gefa þættinum
annað tækifæri. Og viti menn. Eyj-
ólfur tók að hressast. Það er oftar en
ekki meiri dínamík í beinni útsend-
ingu en upptökum. Fyrsti þátturinn
var þokkaleg skemmtun, þar sem
sjö ára gamall töframaður stal sen-
unni. Fæddur skemmtikraftur þar á
ferð sem erfitt verður að slá við. Það
að geta skemmt fólki og glatt það
inn að rótum er ekki öllum gefið.
Ósvikinn hæfileiki.
x x x
Annar þátturinn, sem sýndur varum liðna helgi, var ennþá betri.
Þar skiptust á skin og skúrir. Ann-
ars vegar virkilega góð og vel æfð
atriði og hins vegar furðulega slök
atriði þegar haft er í huga að búið
var að velja bestu atriðin úr miklum
fjölda.
Ungt danspar sigraði í þeim
þætti. Flinkir krakkar sem hafa
greinilega brennandi áhuga á því
sem þeir eru að gera. Það smitar
hratt út frá sér. Þá var þarna ungur
maður með ótvíræða snilligáfu sem
felst í því að sveifla jó-jói kringum
sig. Því miður sat hann eftir. Sen-
unni stal þó fjórtán ára söngkona,
Laufey Lín Jónsdóttir, sem skartaði
rödd og valdi yfir henni sem fæstir
geta látið sig dreyma um – enda þótt
þeir verði hundrað ára.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Ef þér fyrirgefið mönnum
misgjörðir þeirra, þá mun og faðir yð-
ar himneskur fyrirgefa yður.
(Matt. 6, 14.)
ÚRVA
L - G
ÆÐI
- ÞJÓ
NUS
TA
Z-BRAUTIR OG GLUGGATJÖLD
FAXAFENI 14 - 108 REYKJAVÍK - S. 525 8200 - Z.IS -
FALLEG VEFNAÐARVARA