Morgunblaðið - 08.04.2014, Side 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2014
María Margrét Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is
Indverska kvikmyndahátíðin hefst í
dag í Bíó Paradís. Hátíðin var fyrst
haldin 2012 og vakti mikla athygli.
Að þessu sinni verða kynntar til
leiks fimm nýlegar kvikmyndir og
ein sígild bíómynd, karrívestri sem
talinn er meðal bestu indversku
kvikmynda 20. aldar. Það eru sam-
tökin Vinir Indlands sem hafa veg
og vanda af þessari kvikmyndahátíð
í samstarfi við Sendiráð Indlands á
Íslandi og fleiri aðila en allur ágóði
hátíðarinnar rennur til verkefna
Vina Indlands í Indlandi en þar
reka þau þrjú heimili fyrir mun-
aðarlaus börn.
Mikill áhugi á Indlandi
Sveinbjörg Rósa Sumarliðadóttir,
stjórnarmaður í Vinum Indlands,
segir mikinn áhuga vera fyrir kvik-
myndahátíð sem þessari.
„Það var mikil aðsókn á hátíðina
þegar hún var haldin í fyrsta skipti
árið 2012. Um leið og fréttist að ver-
ið væri að skipuleggja aðra hátíð
fundum við strax fyrir miklum
áhuga og margir hér á landi eru
hrifnir af indverskum mat og menn-
ingu,“ segir Sveinbjörg.
„Það sem einna helst einkennir
indverskar kvikmyndir er það
hversu litríkar þær eru og svo sá
boðskapur sem myndirnar bera.
Það er mikið lagt upp úr því að
áhorfendur dragi einhvern lærdóm
af þeim. Þá er áhersla lögð á að
kvikmyndirnar höfði til sem flestra
en Indland er mjög margbrotið land
og það er gerð rík krafa um það að
allir geti notið þeirra, ungir sem
aldnir.“
Sannkölluð „költ-mynd“
Sex kvikmyndir verða sýndar á
hátíðinni og er fjölbreytnin í fyr-
irrúmi.
„Enskunámið (English Vinglish)
er opnunarmynd hátíðarinnar en
hún segir frá indverskri konu sem
er listakokkur en finnst hún van-
metin heima fyrir. Það breytist þó
allt þegar henni er boðið til New
York að elda fyrir brúðkaup. Þetta
er mjög skemmtileg mynd sem
margir ættu að hafa gaman af.“
Athygli vekur að gamall karrí-
vestri verður einnig á kvik-
myndahátíðinni. „Sholay er tíma-
mótamynd í indverskri
kvikmyndagerð en hér er hún sýnd
í nýrri þrívíddarútgáfu. Hún kom út
1975 og vakti athygli fyrir
hversu mikið ofbeldi var
sýnt í henni en fram að
því tíðkaðist það ekki í
indverskum kvik-
myndum. Þessi mynd
er mjög vel gerð og
hér er blandað sam-
an minnum úr kú-
rekamyndum og svo
indverskri trú. Þetta er
sígild mynd sem hef-
ur öðlast svokall-
aðan „költ“
stimpil en það eru hópar um heim
allan sem horfa á Sholay aftur og
aftur.“
Af öðrum myndum má nefna vís-
indaskáldsöguna RA.One sem er
eins konar indversk útgáfa af Iron-
man en þar er mjög vandað til verks
en þeir sömu stýra tæknimálum í
þessari mynd og gerðu stórmyndina
Avatar.
„Þá eru mjög skemmtilegar
myndir í léttari kantinum eins og til
dæmis myndin Sköpuð fyrir hvort
annað en hún segir frá skrifstofu-
manni sem fellur í fjöldann. Hann
er giftur ungri konu sem er í mikilli
sorg og hann nær ekki til hennar.
Hann grípur til þess ráðs að breyta
sér. Hann hann lærir að dansa á
sama stað og konan hans, hún þekk-
ir hann ekki því hann er í dulargervi
og framvinda sögunnar er óvænt og
skemmtileg. Þetta er yndisleg mynd
og erfitt er að sitja kyrr í sætinu
meðan maður horfir á hana. Þá má
ekki gleyma gamanmyndinni Tere
Bin Laden en um er að ræða gam-
anmynd þar sem verið er að gera
grín að öllu því fréttaæði sem um-
kringdi Bin Laden á sínum tíma.
Loks er það rómantíska ástarsagan
Rómeó og Júlía eftir Shakespeare
sem allir ættu að kannast við en nú
er sagan sögð að indverskum sið.“
Ólíkir heimar færast nær
„Það er úr mjög mörgum kvik-
myndum að velja. Við skoðum til
dæmis þær myndir sem er verið að
sýna á sambærilegum kvik-
myndahátíðum í Evrópu og erum í
samstarfi við ýmsa aðila. Við horf-
um á allar kvikmyndirnar og veljum
aðeins þær sem höfða til okkar.“
Aðspurð segir hún að myndirnar
muni höfða vel til Íslendinga. „Ind-
verskar og vestrænar myndir eru
sífellt að færast nær hverjar öðrum.
Vestrænar myndir sækja tónlist, liti
og dansa til indverskra mynda sem
glöggt má sjá í myndum á borð við
Mama Mia en Bollywood-myndir
sækja söguþráðinn til vestrænna
mynda,“ segir Sveinbjörg.
Stjarna Kvikmyndin Sköpuð fyrir hvort annað skartar leikaranum Shahrukh Khan sem er afar vinsæll á Indlandi. Hann leikur einnig í RA.One.
Litadýrð og góður boðskapur
Indverska
kvikmyndahátíðin
hefst í dag
Kvikmyndir Indversku kvik-
myndahátíðarinnar eiga að
þessu sinni allar rætur að rekja
til Bollywood-kvikmyndaiðn-
aðarins sem er einn sá stærsti í
heimi. Bollywood hefur höf-
uðstöðvar í Mumbai og fram-
leiðir svokallaðar hindí-
myndir. Ein skærasta
stjarna Bollywood er
leikkonan Sridevi en hún
leikur í myndinni English
Vinglish. Hún á langan
og farsælan feril að baki
í indverskum kvikmyndum
og er margverðlaunuð.
Indverska kvikmyndahá-
tíðin hefst í dag og
stendur yfir til 13.
apríl.
Bollywood
SKÆRASTA STJARNAN
Sridevi Kapoor
Bíólistinn 4. - 6. apríl 2014
Nr.
Var
síðast
Vikur
á listaKvikmynd
Captain America: The Winter Soldier
Noah
The Grand Budapest Hotel
The Nut Job
Need For Speed
Mr. Peabody and Sherman
Gamlinginn (Hundraåringen som klev ut genom fönstret och försvann)
Muppets Most Wanted
Lego The Movie
Nymphomaniac part 2
Ný
1
4
3
2
5
7
6
8
Ný
1
2
2
2
3
5
7
3
8
1
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Önnur kvikmyndin um ofurhetjuna
Captain America, Captain America:
The Winter Soldier, eða Kafteinn
Ameríka: Vetrarhermaðurinn, var
vel sótt um helgina og tekjuhæsta
kvikmynd bíóhúsa landsins að
henni liðinni. Í myndinni þarf hetj-
an að kljást við sinn skæðasta óvin
til þessa, Vetrarhermanninn, fyrr-
verandi útsendara Sovétríkjanna.
Kvikmyndin um Nóa og syndaflóð-
ið, Noah, er sú næsttekjuhæsta og í
þriðja sæti nýjasta kvikmynd Wes
Anderson, The Grand Budapest
Hotel, sem gagnrýnd er á bls. 40 í
blaðinu í dag.
Bíóaðsókn helgarinnar
Kafteinn vinsæll
Ofurhetja Chris Evans leikur sem
fyrr hetjuna Kaftein Ameríku.
HJARTASTUÐTÆKI
Veit á vandaða lausn
Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16. Opið mán - fös 8.30 - 17.00
Fastus ehf. • Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is
F
A
S
TU
S
_H
_1
0.
02
.1
4
Powerheart er alsjálfvirkt hjartastuðtæki sem gefur
leiðbeinandi fyrirmæli á íslensku til notandans ásamt
því að birta leiðbeinandi texta á skjá.
Fjögurra ára ábyrgð á rafhlöðu. Veggfesting fylgir með.
Verð kr. 229.000,- m.vsk.
• Nauðsynlegt tæki þegar
sekúndur skipta máli
• Alsjálfvirkt hjartastuðtæki
með fyrirmæli á íslensku