Morgunblaðið - 08.04.2014, Side 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2014
tónleikunum vegna Baldurs í Tjarn-
arbíói á sínum tíma og hef því ekki
þann samanburð.
Ekki var við Skálmeldinga
sjálfa að sakast. Þeir keyrðu á öllum
hestöflum. Öruggir og leikglaðir að
vanda. Listamenn með erindi. Hér
voru aðstæður þeim á hinn bóginn
óhagstæðar.
Tvennt kemur þar til.
Í fyrsta lagi var salurinn mun
slappari en á fyrrnefndum tón-
leikum. Bæði í Háskólabíói og sér-
staklega með Sinfó og kórum í Eld-
borginni soguðu Skálmeldingar
salinn til sín. Áreynslulaust. Rífandi
stemning var á báðum stöðum og í
Eldborginni gerðist raunar eitthvað
sem ekki gerist oft á tónleikum.
Þessu var ekki að heilsa í Borg-
arleikhúsinu. Þar voru greinilega
saman komin börn einhverra ann-
arra en Loka. Í hálfan annan tíma
reis varla kjaftur úr sæti. Mögulega
þéttist stemningin á næstu sýn-
ingum, þegar hlutfall málms í blóði
gesta fer væntanlega hækkandi.
Í öðru lagi olli framlag leik-
hússins sjálfs vonbrigðum. Þessir
trúðar eru örugglega ágætir til síns
brúks. Bara ekki þarna. Þeir
kreistu ekki bara dramatíkina úr
sögunni heldur líka virðinguna.
Saga Baldurs Óðinssonar er harm-
saga. Ég meina, völlurinn er ataður
blóði! Hvers vegna taka flinkir leik-
húsmenn svona skakkan pól í hæð-
ina andspænis óþrjótandi mögu-
leikum? Þetta var eins og að bera
fram nautalund með mörfloti.
Trúðslætin voru eitt, hvernigþeir nauðguðu upphafslaginu
„Heima“ var annað. Saknæmt at-
hæfi! Hitti einn af kórsöngvurunum
úr Eldborginni eftir tónleikana.
Hann var fölur af skelfingu.
Að tvennu mátti þó brosa. Ann-
ars vegar vindvélinni. Hún var
kjánahrollur kvöldsins (eins og hún
átti örugglega að vera). Bibbi fékk
þar vind í skeggið fyrir sitt næsta
verkefni, Júróvisjón. Var annars
ekki nóg að fórna Eiríki Haukssyni
á altari þeirrar eymdar?
Hins vegar gat ég ekki varist
glotti þegar einn trúðanna breytti
Adda í Sólstöfum í gæruhippa.
Þrátt fyrir annmarka á heild-
arupplifuninni hvet ég aðdáendur
Skálmaldar hiklaust til að fara í
Borgarleikhúsið. Tónlistin stendur
alltaf fyrir sínu. Notið svo bara
trúðaátroðninginn milli laga til að
skreppa fram að pissa!
Þrumur og (skálm)eldingar
» Þetta var eins ogað bera fram nauta-
lund með mörfloti.
Ljósmynd/Lalli Sig
Snapagestur Það er eitthvað brogað við þetta! Trúður Borgarleikhússins baðar sig í ljóma Skálmaldar.
AF MÁLMI
Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is
Alfaðir reiddist. Og gaf okkurhrun. Alfaðir iðraðist. Oggaf okkur Skálmöld. Rétt
eins og vígamaður Baldur Óðinsson
leitar íslenska þjóðin hefnda. Krefst
þess að réttlætinu verði fullnægt. En
réttlætið er gjarnan dýru verði
keypt. Gæti þessi þjóð átt eftir að
deyja hetjudauða og setjast við hlið
Baldurs á stað allra staða, Valhöll?
Hermt er að listin þrífist aldrei
betur en á krepputímum og fátt, ef
nokkuð, hefur fært rokkþyrstum Ís-
lendingum meiri fróun á umliðnum
árum en víkingamálmbandið Skálm-
öld. Sexmenningarnir í þeim „kaffi-
klúbbi“ hafa löngu sprengt utan af
sér bílskúrinn, ellegar skólastofuna í
Norðlingaholtinu. Þeirra vett-
vangur er nú stærstu svið landsins.
Skálmöld frumsýndi einskonar
málmleik á stóra sviði Borgarleik-
hússins síðastliðinn föstudag en fyr-
irhugaðar eru fimm aðrar sýningar í
þessum mánuði. Til flutnings er í
heild sinni fyrri breiðskífa sveit-
arinnar, Baldur, sem kom út síðla
árs 2010.
Það verður að segjast eins og er
að þessir tónleikar stóðu hinum
stóru tónleikum Skálmaldar í
Reykjavík, í Háskólabíói fyrir um ári
og í Eldborgarsal Hörpu fyrir jólin,
nokkuð að baki. Ég missti af útgáfu-
Annar eins listi af þekktumog góðum leikurum hefurekki sést í háa herrans tíðog í nýjustu kvikmynd
Wes Andersons, The Grand Buda-
pest Hotel. Hver stjarnan birtist á
fætur annarri á tjaldinu og margar
þeirra í örsmáum hlutverkum, m.a.
Bill Murray sem orðinn er fasta-
gestur í myndum Andersons. Líkt
og síðasta mynd Andersons, Moon-
rise Kingdom (og reyndar allar
myndir hans ef út í það er farið), er
þessi litríkt og furðulegt ævintýri
fullt af skondnum og skrítnum per-
sónum og skemmtilegum húmor.
Skrautlegir búningar, gervi og lit-
ríkar leikmyndir prýða myndina og
hún er algjört augnakonfekt frá
upphafi til enda. Hver rammi er
eins og olíumálverk, persónur oft
rammaðar inn í miðju og horfa beint
í augu áhorfandans án þess að segja
neitt, eitt af einkennismerkjum eða
stílbrigðum þessa merka leikstjóra.
Hann leggur mikið upp úr útliti
mynda sinna en að mati ofanritaðs
eru sögurnar ekki síðri.
Sögusvið The Grand Budapest
Hotel er samnefnt glæsihótel sem
hvílir á fjallstindi og nærliggjandi
þorp í evrópska lýðveldinu Zubr-
owka (sem er ekki til og hefur aldrei
verið til) á millistríðsárunum. Í upp-
hafi myndar er árið þó 1968. Ungur
rithöfundur hittir fyrir eiganda hót-
elsins, Zero Moustafa, sem býður
honum til kvöldverðar og segir hon-
um lygilega sögu af því hvernig
hann hóf störf sem vikapiltur á hót-
elinu og endaði sem eigandi þess. Sú
saga hefst árið 1932 þegar Zero er
tekinn í læri af háttvísum móttöku-
stjóra hótelsins, Hr. Gustave H.,
sem Ralph Fiennes leikur snilldar-
lega. Hr. Gustave er mikill siða-
meistari, ávallt vel tilhafður og vel-
lyktandi og á vingott við margar
eldri konur sem eru fastagestir hót-
elsins. Ein þeirra er hin háaldraða
Madame D. (Tilda Swinton með afar
sannfærandi farða). Madame D.
fellur frá og í ljós kemur að hún hef-
ur arfleitt Hr. Gustave að afar verð-
mætu endurreisnarmálverki, Dreng
með epli. Sonur hennar, Dmitri, tek-
ur því ekki þegjandi og hljóðalaust
og þróast mál þannig að Hr. Gust-
ave er sakaður um að hafa myrt þá
gömlu. Í kjölfarið fylgir mikið æv-
intýri þar sem munkaklaustur, æsi-
leg eftirför á vélsleða, hræðilegur
leigumorðingi og dásamleg sætindi
koma m.a. við sögu.
Af öllum þeim stjörnum sem leika
í myndinni ber Ralph Fiennes al-
gjörlega af, enda hlutverk hans það
bitastæðasta. Leikararnir standa
sig þó allir með prýði, svo því sé
haldið til haga, þótt margir staldri
stutt við. Spaugið er allt frá því að
vera afar lágstemmt yfir í að vera
hreinn og klár farsi og í einu atriði
myndarinnar fer Anderson aftur til
þöglu myndanna með kostulegri út-
komu. Sagan sem Anderson segir í
myndinni, undir áhrifum austur-
ríska rithöfundarins Stefans
Zweigs, er svo sem ekkert stórvirki
en skemmtileg er hún. The Grand
Budapest Hotel er enn ein skraut-
fjöðrin í hatt Andersons og svo
girnileg á að líta að mann langar
helst að gæða sér á henni. Virkilega
bragðgóð rjómaterta sem verður
best notið í bíósal.
Bragðgóð rjómaterta
Litadýrð Stilla úr The Grand Budapest Hotel. Frá vinstri leikararnir Paul
Schlase, Tony Revolori, Tilda Swinton og Ralph Fiennes.
Háskólabíó, Smárabíó og
Borgarbíó
The Grand Budapest Hotel bbbbn
Leikstjóri: Wes Anderson. Aðalleikarar:
Ralph Fiennes, Tony Revolori, Adrien
Brody, F. Murray Abraham, Jeff Gold-
blum, Jude Law, Soirse Ronan og Will-
em Dafoe. Bandaríkin, Þýskaland og
Bretland, 2014. 100 mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupsverslunum
(Smáralind og Spönginni) og Fjarðarkaupum.
Er á Facebook
Kvíði, álag eða
orkuleysi?
Burnirótin hefur reynst mér mjög vel við þunglyndi og kvíða. Ég er mun
hressari á morgnana og hef meira úthald og orku allan daginn og mæli
hiklaust með henni. Eftir að ég fór að nota 24 stunda kremið hurfu þurrk-
blettir í andliti alveg og ég er ekki eins viðkvæm fyrir kulda og áður.
Það gengur mjög vel inn í húðina og mér finnst það frábært í alla staði.
– Sigþrúður Jónasdóttir
www.annarosa.is
Burnirótin er talin góð gegn
orkuleysi, kvíða, þunglyndi
og streitu ásamt því að efla
úthald og einbeitingu.
24 stunda kremið þykir einstaklega
rakagefandi og nærandi fyrir þurra
og þroskaða húð. Inniheldur andox-
unarefni og náttúrulega sólarvörn.