Morgunblaðið - 08.04.2014, Blaðsíða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2014
Hljómsveitin Vio fór með sigur af
hólmi í hljómsveitakeppninni Mús-
íktilraunum sem lauk um helgina.
Vio skipa þrír 21 árs félagar úr Mos-
fellsbæ, þeir Magnús Thorlacius
sem leikur á gítar og syngur, bassa-
leikarinn Kári Guðmundsson og
trommuleikarinn Páll Cecil Sæv-
arsson.
„Ég byrjaði að glamra og semja
sjálfur og þremur eða fjórum vikum
fyrir Músíktilraunir fór ég að spila
aðeins með trommaranum. Um
þremur vikum fyrir keppnina kom
bassaleikarinn inn og þá vorum við
komnir á fullt,“ segir Magnús,
spurður að því hvenær hljómsveitin
hafi verið stofnuð. Undirbúning-
urinn fyrir tilraunirnar var því stutt-
ur, hljómsveitin stofnuð um sama
leyti og hún ákvað að taka þátt í
keppninni.
– Hafið þið verið í tónlistarnámi?
„Kári er sjálflærður að ég held,
Palli var í lúðrasveit og hefur lært á
hljóðfæri, ég lærði á fiðlu í átta ár
þegar ég var yngri og þaðan er nafn-
ið komið, Vio. Síðan fór ég meira yfir
í gítar og hef að mestu lært á hann
sjálfur. Ég hef samt farið á nám-
skeið, var í Tónlistarskóla Mosfells-
bæjar einn vetur að læra á gítar og
hef farið í nokkra söngtíma hjá Önnu
Jóns,“ segir Magnús sem var valinn
söngvari tilraunanna.
Vio leikur lágstemmt rokk og
Magnús er spurður hvort þeir fé-
lagar sæki innblástur í ákveðnar
hljómsveitir við lagasmíðarnar.
„Fyrir mína parta þá ákvað ég að ég
vildi læra að spila meira á gítar og
syngja þegar ég uppgötvaði Simon
og Garfunkel,“ segir hann. Innblást-
urinn komi þó víðar að, m.a. frá
Fleetwood Mac og Bombay Bicycle
Club. „Við spilum í rauninni bara
eins og okkur líður, við erum ekki að
reyna að elta eitt eða neitt.“
– Nú hefst alvaran, eruð þið
komnir með einhverja áætlun?
„Það er þegar planað að spila á
Aldrei fór ég suður, í Hollandi og á
Airwaves. Ég held að planið hjá okk-
ur og einbeitingin verði alfarið á tón-
listina, að við förum að einbeita okk-
ur að því að semja og vinna efni,
spila og gefa eitthvað út,“ segir
Magnús að lokum. Á vef Músíktil-
rauna, musiktilraunir.is, má hlusta á
lög með Vio og öðrum hljómsveitum
keppninnar. helgisnaer@mbl.is
Sigursveitin stofnuð
skömmu fyrir keppni
Þrír ungir menn úr Mosfellsbæ sigruðu í Músíktilraunum
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Tríó Vio í úrslitakeppni Músíktilrauna. Magnús Thorlacius leikur á gítar og
syngur í hljómsveitinni, en hann var valinn söngvari keppninnar.
Hluti af verki myndhöggvarans
Steinunnar Þórarinsdóttur, Bord-
ers, sem er til sýnis í almennings-
garðinum Grant Park í Chicago og
samanstendur af 26 skúlptúrum,
varð fyrir barðinu á skemmdarvörg-
um um helgina. Málningu var úðað á
18 af skúlptúrum Steinunnar, á þá
skrifuð óskiljanleg orð og stafir, eins
og sjá má á myndum sem fylgja um-
fjöllun dagblaðsins Chicago Tribune
um skemmdarverkin.
Steinunn segir að sem betur fer
hafi verið brugðist skjótt við og
skúlptúrarnir hreinsaðir af starfs-
mönnum borgarinnar. Spurð hvort
skemmdarverkin hafi verið kærð til
lögreglu segir Steinunn að verið sé
að vinna í því. Bob O’Neill, formaður
vinafélags garðsins, Grant Park
Conservancy, hafi kært þau til lög-
reglu. „Það var hópur lögreglu-
manna þarna á laugardagsmorgun.
Ég held að þetta hafi gerst aðfara-
nótt laugardags,“ segir Steinunn.
Skemmdarverkin hafa vakið mikla
athygli og fjallað hefur verið um þau
í fjölmiðlum vestra. „Ég hef sko lent
í ýmsu,“ segir Steinunn og hlær þeg-
ar blaðamaður rifjar upp fyrri
skemmdarverk. Skúlptúr eftir hana
var stolið í Hull á Englandi sumarið
2011, hluta af verkinu Voyage sem
gert var til minningar um breska
sjómenn sem látist hafa við strendur
Íslands. Skúlptúrinn stóð ofan á
fjögurra metra hárri stuðlabergs-
súlu og fannst aldrei. Tekið var mót
af systurverki Voyage í Vík í Mýr-
dal, skúlptúrinn endurgerður þannig
og verkið afhjúpað öðru sinni í Hull
árið 2012. „Í rauninni má segja að
miðað við hvað ég er með mörg verk
út um allt og á opinberum stöðum, í
almenningsgörðum þar sem er engin
regluleg vöktun í gangi, þá er þetta
ótrúlega lítið,“ segir Steinunn um
þau skemmdarverk sem unnin hafa
verið á verkum hennar. Hún segir
sýninguna í Grant Park hafa vakið
mikla athygli og að ákveðið hafi ver-
ið að framlengja hana til 20. október
en henni átti að ljúka í ágúst á þessu
ári. helgisnaer@mbl.is
Landamæri Hluti af sýningu Steinunnar, Borders, í Grant Park í Chicago.
Úðað á 18 skúlptúra
TILBOÐSDAGUR
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR
ATH GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR
–BARA LÚXUS
www.laugarasbio.is
RUSSELL CROWE EMMA WATSON JENNIFER CONNELLY
STÓRMYNDIN SEM TEKIN VAR UPP Á ÍSLANDI
12
12
L
ÍSL TAL
Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is
Miðasala og nánari upplýsingar
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
CAPTAIN AMERICA 2 3D Sýnd kl. 5 - 8 - 10:45(P)
NOAH Sýnd kl. 6 - 8 - 9 - 10:45
HNETURÁNIÐ 2D Sýnd kl. 6
POWE
RSÝN
ING
KL. 10
:45
VARIETY
EMPIRE
THE HOLLYWOOD
REPORTER
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
CAPTAINAMERICA23DKL.5:10-8-10:45
CAPTAINAMERICA22DKL.10:20
CAPTAINAMERICA2VIP2DKL.5:10-8-10:45
NOAH KL.5:10-8-10:45
NEEDFORSPEED KL.8-10:45
POMPEII KL.5:40-8
300:RISEOFANEMPIRE2D KL.10:20
NONSTOP KL.8
MUPPETSMOSTWANTEDENSTAL2D KL.5:30
THELEGOMOVIE ÍSLTAL2D KL.5:50
KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI
ÞRIÐJUDAGS
TILBOÐ Í DAG
CAPTAINAMERICA2 KL.8-10:45
NOAH KL.8
NEEDFORSPEED KL.10:45
HENTURÁNIÐ ÍSLTAL3D KL.6
HR.PÍBODYOGSÉRMANN ÍSLTAL3DKL.5:50
KEFLAVÍK
AKUREYRI
CAPTAINAMERICA23DKL.5:15-8 -10:45
NOAH KL.8
NEEDFORSPEED KL.10:45
MUPPETSMOSTWANTEDENSTAL2DKL.5:30
CAPTAINAMERICA2 KL.3D:10:45 2D:6-9
NOAH KL.8-10:20
GAMLINGINN KL.5:30-8
12YEARSASLAVE KL. 5:20
CAPTAINAMERICA2 KL.3D:8-10:45 2D:5:10
NOAH KL.5:10-7:40-10:30
NEEDFORSPEED KL.8-10:20
MUPPETSMOSTWANTEDENSTAL2DKL.5:30
300:RISEOFANEMPIRE2DKL.8-10:45
GAMLINGINN KL.5:10
AARON PAUL ÚR BREAKING BAD
FLOTTASTI BÍLAHASAR SEM
ÞÚ HEFUR SÉÐ
M
IND
-BL
OW
ING
ACT
ION
FRÁBÆRMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
VILLAGE VOICE
THE PLAYLIST
THE HOLLYWOOD REPORTER
L.K.G - FBL.
EMPIRE
STÓRMYNDIN SEM TEKIN VAR UPP Á ÍSLANDI
RUSSELL CROWE EMMAWATSON JENNIFERCONNELLY
STÓRFENGLEG...
ÞESSAMYNDVERÐA
ALLIR AÐSJÁ.
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR
EMPIRE
ENTERTAINMENT WEEKLY
TOTAL FILM
THE GUARDIAN
ÞRIÐ
JUDA
GSTI
LBOÐ
ÞRIÐ
JUDA
GSTI
LBOÐ
ÞR
IÐJ
UD
AG
ST
ILB
OÐ
ÞRIÐ
JUDA
GSTI
LBO
Ð
ÞR
IÐJ
UD
AG
ST
ILB
OÐ