Morgunblaðið - 08.04.2014, Side 44
ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 98. DAGUR ÁRSINS 2014
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Drukknuðu á Tenerife
2. Svarti kassinn jafnvel fundinn
3. Ásdís Rán sló í gegn á dansgólfinu
4. Læknar og kennarar fastagestir …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Heimskunnur ljósmyndari, Brian
Griffin, mun taka þátt í alþjóðlegu
minja- og listaframtaki Jóhanns Sig-
marssonar, Miðbaugs-minjaverkefn-
inu, skrásetja það í myndum og taka
þátt í sýningum sem tengjast því,
skv. tilkynningu. Jóhann segir þetta
mikinn heiður fyrir listhópinn sem
komi að verkefninu, Griffin sé bæði
virtur og margverðlaunaður ljós-
myndari og þátttaka hans muni auka
enn listrænt gildi verkefnisins auk
þess sem skráning hans á ferlinu
verði listaverk í sjálfu sér.
Miðbaugs-minjaverkefnið er al-
þjóðlegt farandverkefni listamanna
sem ætla að skapa listaverk úr sögu-
legum minjum, þ. á m. heimsminjum
og verða verkin sýnd á alþjóðlegum
listsýningum og seld á uppboði í lok
hverrar sýningar. Griffin er enskur og
hefur m.a. myndað fyrir tímaritin
Rolling Stone, Esquire, LIFE, Face og
Vogue og verk hans prýtt plötu-
umslög þekktra tónlistarmanna, svo
fátt eitt sé nefnt. Af verðlaunum og
viðurkenningum sem hann hefur
hlotið má nefna að dagblaðið The
Guardian tilnefndi hann ljósmyndara
áratugarins árið 1989.
Ljósmynd/Ashley Franklin
Griffin í Miðbaugs-
minjaverkefninu
Frímúrarakórinn heldur á laug-
ardaginn, 12. apríl, tvenna tónleika
í Regluheimilinu í Reykjavík undir
stjórn Jónasar Þóris. Fjöldi gesta
tekur lagið með frímúrurum, SCF-
Frímúrarakórinn frá Finn-
landi og Kristján Jó-
hannsson tenór m.a.
Selt verður inn á tón-
leikana sem verða kl. 14
og 17.
Frímúrarakórar og
Kristján Jóhannsson
VEÐUR
Alda Leif Jónsdóttir, sem
fagnaði Íslandsmeistaratitli
í körfuknattleik með Snæ-
felli í fyrrakvöld, varð síðast
Íslandsmeistari með
Íþróttafélagi stúdenta árið
2000. Síðan þá hefur hún
átt þrjú börn og lent í erf-
iðum meiðslum en segir
aldrei hafa komið til greina
að leggja skóna á hilluna.
Hún ætlar að ákveða í róleg-
heitunum hvað tekur við
eftir tímabilið. »1
Átti þrjú börn á
milli meistaratitla
Alfreð Finnbogason skoraði um
helgina sitt fimmtugasta mark í hol-
lensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu
á aðeins tæplega tveimur
keppnistímabilum. Hann fetar
þar með í fótspor Luis Suárez
sem var síðastur til
þess að ná svo
mörgum
mörkum á
tveimur tíma-
bilum í Hol-
landi, með
Ajax fyrir fjór-
um árum. »4
Alfreð fetar í fótspor
Luis Suárez
Grindavík jafnaði einvígið við Njarð-
vík í Ljónagryfjunni í gærkvöld, 1:1, í
undanúrslitum Dominos-deildar karla
í körfuknattleik með öruggum sigri,
95:73. Þar með lauk sjö leikja sig-
urgöngu Njarðvíkinga sem sópuðu
Haukum út í 8-liða úrslitunum. Liðin
mætast þriðja sinni í Grindavík á
föstudagskvöld en vinna þarf þrjá
leiki til að komast í úrslitin. »3
Sjö leikja sigurgöngu
Njarðvíkinga lokið
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Berent Karl Hafsteinsson var tví-
tugur þegar hann lenti í alvarlegu
mótorhjólaslysi á Akranesi og braut
nærri fjórðung beina líkamans. Hon-
um var haldið sofandi í þrjár vikur
og missti vinstri fótinn neðan við hné
í kjölfar sýkingar. Hann var heppinn
að lifa slysið af og axlar fulla ábyrgð
á sínum þætti en hann var á í kring-
um 200 km hraða þegar hann lenti á
kanti og kastaðist út í sjóvarnar-
garð. Síðustu ár hefur hann ferðast
um landið og frætt tíundubekkinga
um hætturnar í umferðinni í gegn-
um reynslusögu sína.
„Ég er þakklátur fyrir að hafa
bara slasað sjálfan mig og þurfa ekki
að lifa með því að hafa tekið annað
líf. Hanna, kærastan mín á þessum
tíma, var með mér á hjólinu en ég
bað hana að fara af áður en ég slas-
aði mig,“ segir Berent, eða Benni
Kalli, eins og hann er kallaður.
Ekki storka örlögunum
Í fræðslunni segir Benni krökk-
unum frá unglingsárum sínum,
hvernig týpa hann var og hvernig
slysið bar að. Þá rekur hann sjúkra-
söguna og hvaða áhrif atburðurinn
hafði á hann og fjölskyldu hans.
Endurhæfingu Benna mun aldrei
ljúka og hann er aldrei án verkja.
„Ég segi við krakkana að ef þú lend-
ir í svona alvarlegu slysi þá gengur
það sem eftir er af lífinu út á að
reyna að halda þér eins góðum og
hægt er,“ segir hann. Í fyrra heim-
sótti hann 60 skóla og 125 tíundu
bekki en hann hefur í gegnum tíðina
notið stuðnings sveitarfélaga og fyr-
irtækja, sem hann er afar þakklátur
fyrir. Við fræðsluna notar hann m.a.
myndir fyrir og eftir slysið.
„Auðvitað næ ég ekki til allra en
ef ég forða bara einhverjum einum
frá því að lenda í svona hörmulegu
slysi er tilganginum náð,“ segir
Benni. „Ég segi það við krakkana að
ég trúi því að það sé tilgangur með
lífinu. Ég hefði sjálfur viljað hitta
einhvern gaur sem leggur spilin
bara á borðið og segir umbúðalaust:
Ef þú storkar örlögunum og leikur
þér að eldinum, þá brennirðu þig
fyrr eða síðar. Spurningin er bara
hversu illa.“
Benni segist ekki merkja við-
horfsbreytingu hjá krökkunum frá
því að hann hóf fræðsluna 2007-2008
og markmið hans er óbreytt.
„Ég vil sýna krökkunum hvað ég
er í raun og veru góður og heppinn. Í
dag eru margir krakkar sem líður
illa, eru þunglyndir og lenda í stríðni
og ég vil sýna þeim að maður getur
sigrast á flestu; maður verður bara
að vera mátulega bjartsýnn,“ segir
hann.
Benni deilir reynslusögu sinni
Tilganginum
náð ef hann forðar
einum frá slysi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stuðningur Benni ásamt fjölskyldu sinni; konunni Maríu og börnunum Daneyju Láru og Viðari Erni. Benni segir mikið
hafa mætt á aðstandendum sínum eftir slysið og er þeim afar þakklátur. Hann segir þá stundum gleymast í umræðunni.
Þegar bekkirnir eru stórir er þeim
stundum skipt í stelpuhóp og
strákahóp. Benni segir kynin leggja
ólíkar spurningar fyrir hann.
„Strákarnir spyrja meira: „Hvað
er það hraðasta sem þú hefur far-
ið?“ eða: „Hvað er það mesta sem
þú hefur lyft í bekk?“ Stelpurnar
spyrja hins vegar hvernig áhrif
þetta hafði á Hönnu andlega.
„Hvernig brást fjölskyldan þín við?
Hvernig leið þér andlega?“ Strák-
arnir eru nú ekki að stressa sig á
því að spyrja að svoleiðis hlutum,“
segir hann.
Hvað andlega þáttinn varðar seg-
ist Benni vera fullkomlega heið-
arlegur. „Það er svolítið tabú, ég
opna svolítið á það. Ég hitti geð-
lækni reglulega og er á þunglynd-
islyfjum og ef ég er búinn að vera
mjög slæmur af verkjum og eiga
erfitt með svefn verð ég oft verri
andlega. Það er svona fylgifiskur.“
Spyrja ólíkra spurninga
FORVITIN UM ÝMISLEGT
Á miðvikudag Suðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s. Skýjað með
köflum og yfirleitt þurrt norðaustan- og austanlands, annars
lítilsháttar rigning. Hiti 3 til 8 stig að deginum.
VEÐUR » 8 www.mbl.is
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Sunnan 3-8 m/s. Bjart með köflum og
yfirleitt þurrt norðaustantil, annars dálítil rigning eða skúrir, en
úrkomulítið síðdegis. Hiti 3 til 12 stig, hlýjast norðaustantil.