Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.04.2014, Side 18
Þ
að er hverju orði sannara
að munkarnir sem
byggðu klaustrin í Me-
teora réðust ekki á garð-
inn þar sem hann var lægstur.
Bein þýðing gríska heitisins
Meteora er „í miðju himinhvolfs-
ins“ (e. middle of the sky) og á
sú samlíking svo sannarlega við
um staðsetningu híbýlanna sem
um ræðir hér, klaustrin í klett-
unum.
Klettadrangarnir sem bera þau
rísa eins og turnar út úr lands-
lagi Þessalíu-sléttunnar, ríflega
300 km norðvestur af Aþenu. Ár-
lega sækir fjöldi ferðamanna,
jafnt grískir sem víðar að komn-
ir, þessar lendur heim enda afar
tilkomumiklar.
Sökum sérstöðu sinnar komust
klaustrin á heimsminjaskrá
UNESCO, enda þykja þau ein-
stök, byggð á slóðum sem taldar
eru hafa mótast fyrir milljónum
ára. Eru oddhvassir klettadrang-
arnir taldir gamall hluti hafs-
botns, sem færðist til við jarð-
skorpuhreyfingar og tók að
þorna og mótast af veðri og
vindum.
Byggð frá 11. öld
Heimildir eru um byggð í klett-
unum allt frá 11. öld. Áttu þar
einkum í hlut einsetumenn sem
virðast hafa fundið þar sinn frið.
Þegar vígamenn Tyrkjaveldis
fóru að fara um Grikkland með
óöld á 15. öld, sáu munkar
grísku rétttrúnaðarkirkjunnar á
svæðinu sér þann kost vænstan
að færa sig upp í klettana. Þar
væri óhægara um vik fyrir mis-
indismenn að ná til þeirra, auk
þess sem betra rúm gæfist til að
iðka andann, í friði og spekt.
Alls voru 24 klaustur reist alls,
á nokkrum dröngum. Í dag eru
innan við 10 þeirra í notkun og
hægt að heimsækja sum þeirra.
Fara ferðamenn núorðið um stiga
og stíga til að komast upp, en
auk þess er einstaka, einfaldan
kláf einnig að finna til að láta
ferja sig upp og niður. Framan
af notuðust menn hins vegar
nánast eingöngu við reipi og
körfur, til að hífa ýmist menn,
vistir og byggingarefni í þessar
hæstu hæðir. Þar var hins vegar
ró og frið að finna. Auk þess að
iðka trúna herma heimildir og
munir að munkarnir hafi stundað
þar listsköpun og skrif, auk þess
að huga að matjurtagörðum og
halda hænur. Þeir þurftu hins
vegar að treysta á bæjarbúa úr
nálægum bæjum á borð við Ka-
lampaka og Kastraki til að fá
kjöt og aðrar vörur upp.
Að sögn eins viðmælanda
blaðsins, sem staddur var á þess-
um slóðum fyrir nokkrum árum,
er hreint með ólíkindum að
standa við botn klettadranganna
tilkomumiklu og virða fyrir sér
húsakynnin ofar. Hvarflar hug-
urinn þar óneitanlega að verk-
fræðiþekkingu manna fyrr á tím-
um. Hefur líklega ekki verið
síðra að hafa andann einnig með
sér áður en flutt var á slíkar
slóðir, auk þess sem þær voru
síst fyrir lofthrædda.
METEORA Í GRIKKLANDI
Heimsminjar
á himnasúlum
UM PÁSKANA VAR HÆGT AÐ BERJA AUGUM KVIKMYND-
INA METEORA Í EINU KVIKMYNDAHÚSI HÖFUÐBORG-
ARINNAR. DREGUR HÚN NAFN SITT AF FORVITNILEGU
SVÆÐI Í GRIKKLANDI, ÞAR SEM 24 TILKOMUMIKIL KLAUST-
UR TRÓNA YFIR UMHVERFINU, EFST Á SNARBRÖTTUM
KLETTADRÖNGUM.
Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir gunnhildur@mbl.is
Beina þýðingu heitisins Meteora mætti útleggja sem „í miðju himinhvolfsins“. Er nafngiftin einkar vel valin, enda klaustrin
öll byggð í mikilli hæð, þangað sem trauðla var komist. Virðast munkarnir hafa sótt í friðinn og fjarlægðina.
Hvernig munkunum kom til hugar að flytjast á svo afskekkta klettatoppa, með
tilheyrandi flóknum byggingarframkvæmdum og flutningum, er áhugavert.
Reipi og körfur voru helstu tólin til
að koma fólki og vistum upp áður.
Ferðalög
og flakk *Von er á fjölda ferðamanna til Brasilíu að fylgjast með knattspyrnu ísumar. Einhverjir þar eru líklegir til að leggja leið sína á bar Franc-isco Helder Braga Fernandes í Sao Paolo. Samkvæmt Telegraphsneri hinn 54 ára gamli vert þar vörn í sókn eftir að fólk tók að hafaorð á líkindum hans og hryðjuverkamannsins sáluga, og jafnvelbiðja um myndir. Gerir vertinn nú út á samlíkinguna þótt umdeildsé. Situr hann ósjaldan fyrir með gestum sínum á barnum Bar do
Bin Laden. Hafa vinsældirnar verið slíkar að fleiri Bin Laden barir
hafa sprottið upp, eins einkennilega og það kann að hljóma.
Bin Laden bar vinsæll í Brasilíu
Aukið líf og fjör við bakka Thames-ár ber vorinu skýrt vitni í
Richmond. Kaffihús og krár iða af lífi, hvarvetna má sjá fólk að
njóta blíðunnar, ýmist yfir drykk, á rölti meðfram árbakkanum eða
jafnvel í siglingu á ánni.
Richmond er notalegur lítill bær, nánast úthverfi frá London.
Þrátt fyrir nálægðina við flugvöllinn þykir svæðið afar barnvænt,
með fallegum miðbæ, grænum svæðum og gönguleiðum. Nálægð-
in við stórborgina er einhvern veginn fjarlæg hér, eins og til dæm-
is þegar hjólað er um Richmond Park uppi á hæðinni. Þar er al-
vanalegt að koma að dádýrastóði í mestu makindum. Er þá ekkert
annað að gera en að hægja förina, en halda engu að síður áfram í
rólegheitunum.
Aukið líf og fjör við árbakka Thames í Richmond vísar á vorið.
Horft niður að Thames-á á fögrum degi.
Vorið komið við Thames-bakka
Dádýr flatmaga í Richmond Park.
PÓSTKORT F
RÁ RICHMON
D