Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.04.2014, Qupperneq 21
Miðaverð í leikhúsin í erlendum stórborgum getur verið ægilega hátt, í
samanburði við íslensk leikhús, en ef þú planar ferðina með nokkrum
fyrirvara er hægt er að spara sér nokkra þúsundkalla með því að eyða
dálitlum tíma á internetinu.
Margar vefsíður selja miða á sýningar víða um heim, sem og ein-
staklingar á e-bay eða Facebook-síðum og slíku og þarf þá að gæta sín á
svindlurum. Þar gildir þumalputtareglan að ef það „hljómar of vel til að
vera satt“ þá er það sennilega ekki satt! Varist vefsíður þar sem
himinhá þjónustugjöld bætast ofan á miðaverðið, þau ættu að
auki aldrei að vera hærri en 25% þess sem miðinn kostar. Ein vinsælasta
miðasölusíðan fyrir flestar borgir er www.ticketmaster.com (co.uk fyr-
ir Bretland) og www.timeout.com og ekki síst á www.tkts.com (Lond-
on) og www.tdf.org (New York) en þar er engu smurt aukalega á mið-
ana sem koma í sölu.
Það góða við leikhúsin í útlöndum er að þar eru miðarnir verðlagðir
eftir því hversu góð sætin eru svo verðflokkarnir eru yfirleitt nokkrir.
Og hægt er að skoða sætaskipan á flestum vefsíðunum svo ef
þér finnst ekki aðalatriði að sitja á fremsta bekk geturðu fengið miða á
lægra verði. Sum sæti eru sérstaklega merkt „Restricted view“ (tak-
markað útsýni) og eiga í öllum tilfellum að vera talsvert ódýrari en önn-
ur. Útsýnið frá þeim er hins vegar ekki endilega alveg glatað svo ef þér
er sama þótt að eilítið horn á handriði beri fyrir annan endann á svið-
inu geturðu e.t.v. notið leiksýningar fyrir mun minni pening en sessu-
nautur þinn. Ef miðar eru keyptir í anddyri leikhúsa er starfsfólkið
vanalega mjög hjálplegt og getur útskýrt í hverju hið „takmarkaða
útsýni“ felst og hjálpað við að meta hve slæmt/gott sætið er.
Í leikhús á síðustu stundu
Ef þú ákveður að skella þér í leikhús á síðustu stundu, eða það er
hreinlega uppselt á sýninguna sem þig langar á marga mánuði fram í
tímann, þá er hægt að nýta sér vefsíður á borð við www.lastmin-
ute.com til að finna leikhúsmiða sem fara í sölu með stuttum
fyrirvara, og þá oft á sanngjörnu verði. Einnig selja flest
leikhúsin ósótta miða eftir hádegi á sýningardegi
svo þeir sem hafa tíma til þess geta prófað að fara í
röðina þar. En þá er vitaskuld ekki hægt að gera
neinar kröfur um sætaval, verð eða fjölda miða,
annað hvort stekkur maður á það sem býðst eða
sleppir því.
Miðar keyptir á netinu
AFP
27.4. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21
Flestir kannast við West End-leikhúshverfið í Lond-
on, oft kallað „Theatreland“ (Leikhúsland) þar sem
stærstu og vinsælustu sýningarnar eru settar upp,
flestar í gömlum og glæsilegum leikhúsum. Þar ganga
stórar sýningar ár eftir ár og reiða sig á vinsældir
meðal ferðamanna í borginni. Þannig hefur ABBA-
söngleikurinn Mamma Mia! verið í sýningu á West
End í 15 ár og Vesalingarnir (Les Misérables) gengið
þar lengst allra söngleikja, í tæp 30 ár. Það er alltaf
líf og fjör á West End, líka á sumrin, og hægt að
fara á sýningar að degi til (matinée-sýningar) ef það
hentar betur inn í ferðaplanið. Þótt ekki sé alltaf
gaman að klæða sig upp fyrir leikhús er þess alls ekki
krafist á West End og algengt að ferðamenn séu bara
á stuttbuxum og bol og jafnvel með lítinn bakpoka
meðferðis.
Það ættu flestir að geta fundið eitthvað við sitt
hæfi í Leikhúslandi en þar eru um 40 leikhús sem
sýna langt í frá eingöngu vinsæla söngleiki, heldur
einnig sígild verk eftir þekktustu leikskáld heims og
skarta oft einhverjum vinsælustu leikurum samtím-
ans, þannig steig Jude Law nýlega á svið sem Hinrik
V. Hins vegar eru fjölmörg leikhús utan West End
ekki síður þekkt og áhugaverð eins og t.d. Almeida-
leikhúsið í Angel-hverfinu, sem hlaut Olivier-
verðlaunin nýlega á uppskeruhátíð London-
leikhúsanna.
Á suðurbakka Thames-árinnar er svo t.d. Shake-
speare’s Globe og svo sjálft konunglega þjóðleik-
húsið, sem áður var hýst í The Old Vic-leikhúsinu
skammt frá, í nágrenni Waterloo-lestarstöðvarinnar.
The Old Vic á sér litríka og erfiða sögu en hefur á
síðustu árum endurheimt sinn fyrri ljóma og skartar
reglulega stórum nöfnum í leikhúsheiminum. Þá er
leikhúsið í samstarfi um að setja upp minni leiksýn-
ingar og listgjörninga í The Old Vic Tunnels,
gömlum lestargöngum undir Waterloo-lestarstöð-
inni. Og flestir Íslendingar þekkja The Young Vic,
sjálfstætt leikhús sem er runnið undan rifjum leiklist-
arskóla The Old Vic, en þar er lögð áhersla á meiri
fjölbreytni og tilraunastarfsemi í uppsetningum og
hefur m.a. Vesturport sett þar upp sýningar.
LONDON
590 3000 wowtravel@wowtravel.is
Menningarferð til
Varsjár og Kraká
1.-8. ágúst 2014
Verð frá: 149.900 kr.
Fararstjóri:Óttar Guðmundsson
læknir og rithöfundur.
Í ferðinni kynnir Óttar fyrir gestum
sínum sögu, menningu, listir og
mannvirki þessara borga, sem hafa
þolað bæði súrt og sætt og er
saga þeirra oft á tíðum ótrúleg.
BÓKAÐU Í TÍMA