Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.04.2014, Side 41
27.4. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41
O
pinberar heimsóknir kóngafólks eru nú aldeilis eitt-
hvað sem kryddar tilveru royalista. Að geta fylgst
með klæðaburði, fasi, hárgreiðslum og háttalagi
þess sem er í mestu uppáhaldi er nú bara eins og að
fá magnesíum-sprautu hjá heimilislækninum.
Sál royalistans lyftist upp og hann fær aukinn
lífskraft.
Katrín hertogaynja af Cambridge og Vil-
hjálmur eiginmaður hennar hafa svo sann-
arlega verið hress í sinni opinberu heim-
sókn í Ástralíu. Hún hefur skartað
hverjum kjólnum á fætur öðrum og svo er
kápusafn hertogaynjunnar ekki með lak-
asta móti. Um klæðaburð eiginmanns
hennar er minna hægt að
segja enda er hann ekki
nærri því jafnspennandi
og hún.
Þar sem ég lá yfir
myndum inni í erlenda
myndabankanum sem ég
hef aðgang að áttaði ég
mig á því að það er alveg
sama í hvað hertogaynjan
fer – allar flíkur leggja of-
uráherslu á mittislínuna.
Svo sést hún aldrei í föt-
um sem smellpassa ekki á
hana. Það er allt úthugsað
og útpælt, ekkert gúlpast
kjánalega á einhverjum
vandræðalegum stöðum.
Föt hertogaynjunnar
eru þannig að það er alveg
sama í hvaða stellingu hún er – fötin líta vel
út.
Mér er þetta dálítið hugleikið því ís-
lenskar konur gleyma allt of oft að klæðast
bara fötum sem klæða þær. Stundum hef
ég það á tilfinningunni að þráin eftir því að
eignast eitthvað nýtt taki völdin í stað þess að konan
velji af kostgæfni og vandi valið. Oft er nefnilega mun
betra að nota bara gömlu fötin sín, ef þau klæða mann,
en að kaupa eitthvað nýtt – bara til að vera í nýju.
Það sem er líka dálítið hamlandi hérlendis er hvað
það er lítið úrval. Stundum finnst mér ekki vera til
neitt nema víðar skyrtur og níðþröngar buxur. Ég
hef haft það á tilfinningunni að það sé eins og inn-
kaupafólk haldi að konur vilji ekkert annað. Þær
sem eru með svipaðan vöxt og hertogaynjan
lenda því í stökustu vandræðum með að finna
sér föt því allt er svo vítt um mittið. Sara í Júník
fer reyndar ekki í þennan flokk því hún kaupir
bara þröng föt á konur.
Konur með grannt mitti og mjúk læri verða ekki
mjög lögulegar þegar þær eru komnar í víða
skyrtu (sem felur mittið) og þröngar buxur.
Nema náttúrlega að farið sé í agnarsmáan og
vel sniðinn jakka yfir sem vekur athygli á mitt-
inu.
Hugsið um þetta þegar þið eruð
inni í mátunarklefa og reynið að
vanda ykkur. Ekki kaupa bara
eitthvað af því þið eruð í svo miklu
stuði af því það var svo gott veður
á sumardaginn fyrsta og ykkur
langar í föt í lit. Það er ekkert
fengið með því að eiga
fullan skáp af ein-
hverjum fatatuskum
ef þær gera ekkert
fyrir mann. Ég
meina, hvers
virði er það að
draga andann
ef maður ætlar
bara algerlega
að sleppa því að
vera gordjöss …
martamaria@mbl.is
Royalistar fá
vítamínsprautu
Hertogaynjan af
Cambridge í kápu
frá Michael Kors.
Mittislínan
er alltaf
á sínum stað.
Sniðsaumarnir á þessari kápu eru dásamlegir.
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911
www.facebook.com/spennandi - www.spennandi.com
Opið: Mán. - fim: 12 - 18 og fös. 12-16
3322 & Innate - frönsk hönnun vor 2014
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Komið
og skoðið
úrvalið
Seljum einnig:
Peysur, buxur,
pils, leggings
o.m.fl.