Stígandi - 01.07.1943, Blaðsíða 25

Stígandi - 01.07.1943, Blaðsíða 25
STÍGANDI Á KROSSGÖTUM — 15 skap, sbr. hirðkvæðin, helgikvæðin og rímurnar, stundum hefir ljóðið sótt á, sbr. dansa og vikivaka-viðlögin. Og nú er svo kom- ið, að ljóðið er komið í öndvegi. Meginþungi þeirrar skáldlistar, sem áður leitaði sér framrásar í kvæðinu, hefir lagzt í farveg skáldsagnagerðarinnar. Þar er meiri framavon, fleiri vilja lesa. Þrátt fyrir þessi liðhvörf telja margir, að ef til vill hafi aldrei verið ort betur en nú á íslenzka tungu. Þetta má vera, hvað form og fágun snertir. En vantar ekki oft átök, skapsmuni? Þeg- ar við blöðum gegnum kvæði yngri skáldanna frá 1925—1939 verður kannske eitt mest áberandi við þau: Geðblær þungra drauma. Hvar er karlmennska 19. aldar skáldanna, dirfska í hugsun, trú á framtíðina? Er það grunur ókominna ógna, sem varpað hefir skugga sínum yfir kvæði skáldanna, skáldanna, sem alltaf eru talin sjá lengra fram en almenningur, er það ógn líðandi tíma, sem hefir lætt þessum hljómi inn í kvæðin? „Brýnsluguðir, bítur ekki sigðin bráðum nógu vel —“ Eða er þetta tízka, sem svona kemur fram? Hvort heldur sem er, skulum við vona, að þetta séu aðeins stundarsvipmót. En við skulum gera okkur það ljóst, að íslenzk kveðskaparlist færir mjög saman ríki sitt, ef hún missir kvæðisþáttinn úr höll sinni. Ljóðið er oft meira og minna háð líðandi stund, þeim við- tækjum, sem útvarpað er fyrir þá og þá stundina, raunar ekki þau beztu, en þó mörg af þeim, sem okkur þykja nú góð. Þau eru ekki eins vel fallin í heild til þess að varðveita ættleifð kyn- slóðanna, málið, til þess að njóta ljóðanna er ekki eins nauðsyn- leg allýtarleg málþekking. Þetta verður, þegar til lengdar lætur, mikill ókostur. Og þetta er hættulegur ókostur á þeim tímum, sem nú eru. En er þá sökin öll skáldanna? Eg held ekki. Sökin er engu síður okkar lesendanna, eða sem ættum að vera lesendurnir. Við höfum ekki verið góðir lesendur og gagnrýnendur skáld- anna. Fjöldi fólks les alls ekki kveðskap, og er enginn vafi á, að þar er um allöra afturför að ræða. Ljóðabækur eru hættar að seljast, svo nokkru nemi, og ef við lesendurnir sjáum ekki að okkur í tíma, verður þess varla ýkjalangt að bíða, að íslendingar týni niður að mestu sinni sérstæðu kveðskaparlist. Okkur hættir svo oft til að gleyma því, að við erum aðeins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Stígandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.