Stígandi - 01.07.1943, Blaðsíða 51

Stígandi - 01.07.1943, Blaðsíða 51
STÍGANDI SKOLLA-FAXI 41 „Ég er ekki gefinn fyrir tónlist“, sagði ég. „Ég kom til Salz- burg fyrir bænarstað kunningja míns, ekki vegna tónleikanna“. Hann kinkaði kolli, — hefir þótzt sjá á mér, að ég hafði engar gáfur á því sviði. í augum hans var ég ómenntaður ruddi ->— þessir tónsnillingar þekkja hvor annan á lyktinni og yfirbragð- inu. Þetta, að kinka kolli framan í mig til fullvissu um, að hann vissi, að ég hvorki vissi né skildi neitt í tónlist, það hafði egnt mig gegn honum, og ég hugsaði með mér: „Fjandinn huggi hann, ég skal tala um tónlist við hann, áður en lýkur. Ekki á þessari vanalegu blaða- og tónlistarmanna-mállýzku, heldur eftir mínum eigin nótum“. Svo hélt ég áfram: „Þetta, sem ég nefndi hljóðfæraslátt, var ekki góðrar tegundar. Það gekk í gegnum merg og bein og reif vitundina í tætlur, mér varð inn- anbrjósts eins og ég hefði gleypt sprengiefni og það sprungið niðri í mér, skyndilega var ég orðinn hluti af umhverfinu: Trjám, sléttum, runnum og þurrum fljótsfarvegi. Ég var allur á flótta, en þá sundurslitinn. Agnir af vitund minni voru á undan- haldi, þær flúðu og flögruðu milli hinna þögulu þungbúnu trjáa. Klifruðu upp bolinn, en stukku svo úr liminu yfir í næsta tré, leituðu þá til jarðar og þutu svo upp í hæstu greinar á næsta augabragði. Sála mín var eins og kastbogi. Hún þaut yfir glóð- heita sléttuna, beygði svo af og kom til mín aftur; en ekki fyrr en hljófæraslættinum lauk. Ég batt hestana við gamalt mímósatré og læddist hljóðlega í áttina, sem hljóðið kom úr. Mér var andlega óglatt. Hafði ég hlustað á seið! Var ég að ærast?“ Vasonji kinkaði aðeins kolli, og vildi auðsjáanlega ekki tapa neinu úr frásögn minni.. Ég var þó kvíðandi enn, hver endalokin yrðu. Ég lýsti fyrir honum kofanum, sem stóð í útjaðri skógarins. Það var löng bygging með hallalitlu þaki og reft með berki, sem flett hafði verið af trjánum í stórum skíðum. Síðan hafði þakið verið grjótborið, svo að það fyki ekki. Eftir að síðustu tónarnir voru þagnaðir og liðnir út í bláinn, þá var eins og þögn frumskógarins yrði enn magnaðri og víðfeðmari en áður. Líkt og væri hún að safna nýju liði til að leggja til orrustu við tónana, þegar þeir þyrptust næst út úr kofanum í skóginum. Engin þögn er jafnoki þeirrar, sem eyðimerkur og frumskógar Ástralíu geyma. Fuglarnir þar eru hljóðir, því að þeir hafa aldrei dirfzt að syngja. Ég beið í nánd við kofann nokkra stund, en sá engan og heyrði engan. Ég var undir áhrifum, hafði annarlegan hroll; og þó var þetta einhver
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Stígandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.