Stígandi - 01.07.1943, Blaðsíða 57

Stígandi - 01.07.1943, Blaðsíða 57
STÍGANDI SKOLLA-FAXI 47 Það freyddi um granirnar á þeim, tungan lafði út úr þeim, og skrokkarnir á þeim voru blóðrisa af að troðast gegnum skóginn. Með hjörðunum voru ungir kálfar, sem eldri dýrin reyndu að láta fylgjast með, en sumir týndust úr lestinni, þeir féllu um koll og hreyfðust ekki, en kýrnar yfirgáfu þá ekki. Þær stóðu yfir þeim föllnum, þefuðu af þeim, gengu kringum þá, en þeir hreyfð- ust ekki. Einstaka fullvaxinn tarfur, með froðu í rauðum nösum, stanzaði, er hann sá kýrnar standa ráðþrota yfir kálfunum, hann snerist öskrandi nokkra hringi um staðinn, sparkaði upp jarð- veginn með skörpum klaufunum, en lagði svo á flótta, er næsta reykjarský lagði yfir, hann skorti móðureðlið, umhyggjuna fyrir afkvæminu, en kýrnar skildu ekki við kálfana, þær hjúkr- uðu þeim og töluðu við þá á sínu máli, sögðu þeim að vera óhræddum, því að mamma væri hjá þeim“. „Haldið þér áfram“, sagði Vasonji, þegar ég tók mér málhvíld, og hann bandaði til mín hvítri hendi til merkis um, að ég héldi áfram.-------„Eldurinn hafði læst sig í kvoðutrén, er stóðu í tveggja mílna fjarlægð frá kofanum, og snarkið og brakið var mikið, en þó yfirgnæfði slaghörpuleikurinn það lengst af. Eg, sem hlýddi á leik Stafanescu þessa nótt, gerði mér þá grein fyrir honum, að það væru göngulög Heljar, með undirleik eldsins. — Eða voru þar skyndispor Satans, sem slagharpan túlkaði undir fingrum hans? Enginn hefir heyrt annan eins leik eða tóna. Seinast hljóp ég að kofahurðinni og barði, og er ég fékk ekk- ert svar, braut ég hana upp og gekk inn. Stafanescu sneri baki við mér, hendur hans flugu upp og niður eftir nótum slaghörp- unnar, en rauða faxið á höfði hans flaksaðist til, sitt á hvað. Eg gekk að baki honum og greip í axlirnar á honum, um leið sneri hann sér við til hálfs, og ég sá framan í hann í fyrsta og síðasta sinni, og ég hrökk við--------“ Joachim Vasonji huldi andlitið í höndum sér, reri á stólnum og tautaði við sjálfan sig: „Þetta með Stafanescu — þetta, sem útilokaði hann frá hljómleikahúsum álfunnar — og allra landa, það gerðist hér í Salzburg, það var þess vegna, að hann fór í útlegð frá öllu og öllum, til að leika fyrir auðnina, þögnina og stjörnur himinsins“. ------Eins og hann gerði nóttina, sem ég hitti hann. En þetta hafði gerzt þannig, að konungborin kona frá einu Balkanríkjanna varð svo reið við Stafanescu, af því að hann
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Stígandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.