Stígandi - 01.07.1943, Blaðsíða 72

Stígandi - 01.07.1943, Blaðsíða 72
62 BJARNI STÓRHRÍÐ STÍGANDI fram. Ég sá, hvar Bjargspiltar komu, en það dró sundur með okkur. Afram, áfram, hvít heiðin var sem endalaus gröf. Ég hafði gengið í röskan klukkutíma, er ég sá dökkleita þústu fram undan, og flýtti mér þangað. Grunur minn var orðinn að vissu. Þarna sat Sólveig, sunnan í holti, hlémegin við lítið barð, og hallaðist upp við það. Þvert um fætur henni lá stallsystir henn- ar, líkt og Sólveig hefði haldið henni í örmum sér, en skort þrek til að halda svo lengur. Veðurofsinn hafði svifað snjónum að mestu frá þeim jafnóðum, svo að af honum höfðu þær lítið skjól hlotið. En Sólveig hafði auðsjáanlega kostað kapps um að hlúa að stallsystur sinni, því að sjálf var hún til muna klæðminni. Bjarni stórhríð þagði lengi, og ég varð þess allt í einu aftur var, að það var sumar og blíðviðri. Þegar hann tók aftur til máls, var rödd hans jafn ástríðulaus og örugg sem fyrr. „Hin stúlkan var fyrir löngu önduð, en Sólveig var enn með lífsmarki, þótt ótrúlegt sé. Ég er þess fullviss, að hún þekkti mig. En hún gat sig hvergi hreyft, aðeins augun voru lifandi, og and- artak var eins og brygði fyrir skugga af hlýju, ástríku brosi í þeim. En svo sló á þau starandi bliki, „erfðasilfur“ móður hennar átti ekki lengur að ganga frá kynslóð til kynslóðar. Dauðinn hafði lagt löghald á það. Það var ekki karlmannlegt, en ég kast- aði mér niður og grét hásum, sogandi gráti. Aftur og aftur kall- aði ég nafn Sólveigar og gat ekki og vildi ekki trúa því, að hún væri dáin. Þegar Bjargspiltar komu, hafði ég jafnað mig að nokkru. En Sólveigu fékk enginn þeirra að snerta. Ég tók þenn- an létta, litla líkama, kaldan og stirðan, í fang mér og bar hann aleinn heim að Bjargi. En ég var ekki með heilu sinni. I þrjú dægur sat ég yfir líkinu og lét ekki af þeirri heimskulegu trú, að Sólveigu gæti ég vakið til lífsins aftur, ef ég neri limi hennar nógu lengi með snjó. Loks sótti faðir minn mig að Bjargi og fór með mig nauðugan, viljugan heim, og þar lá ég mest allan vet- urinn, ekki líkamlega sjúkur, en sálin var öll í brotum. Með vor- inu komst ég aftur á fætur. En ég var gjörbreyttur. Mig langaði ekki til neins og hafði ekki vilja á nokkru, og ég eirði hvergi. Á sumrin var ég hingað og þangað í kaupavinnu, en á vetrum oftast við sjóróðra. Og alstaðar var ég haldinn „undarlegur", eins og það var orðað. En á hverju vori fór ég pílagrímsför að litlu leiði í útnorðurhorni kirkjugarðsins á Stað og hlúði að reyniviðnum, sem ég hafði gróðursett á leiði Sólveigar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Stígandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.