Stígandi - 01.07.1943, Blaðsíða 56

Stígandi - 01.07.1943, Blaðsíða 56
46 SKOLLA-FAXI STÍGANDI hefir breytt sér, og eldurinn er á næstu grösum, ég hefi tvo hesta, sem þið getið fengið — það eru síðustu forvöð að fara héðan!“ „Hvað sagði hún?“ spurði Vasonji. „Hún .sagði, að maðurinn mundi ekki fara, eldurinn gerði hvorki til né frá, hvað hann snerti.-----Svo þagnaði hún í miðri setningu. Af tali hennar fékk ég þá hugmynd, að maðurinn væri ekki með fullu ráði. Nei, hún sagði það ekki berum orðum, en hún sagði, að hvað hann snerti, hefði eldurinn enga þýðingu. Var ástæðulaust að láta sér detta í hug, að sá maður væri ekki með réttu ráði, sem sat og hamraði á slaghörpu, þegar tíu mílna löng eldkvika, sem bar við himin, kom veltandi gegnum skóginn og stefndi beint á kofann? „En þér?“ spurði ég, „þér verðið að komast héðan“. „Nei, ég skil ekki við hann, það er mín vegna, að hann er hér“. — í þessum svifum bar vindurinn heitan, kæfandi þef af brennandi skógi að vitum okkar. Ég greip til konunnar og ætl- aði að draga hana á burtu, en hún brást við snöggt og sleit sig af mér og gekk inn í koíann, en skellti hurðinni aftur. Slaghörpuleikurinn hafði haldið áfram, meðan við ræddumst við, og þegar hún var farin inn, færðist hann í aukana, varð villtari, varð trylltari". Vasonji hafði aldrei séð skógareld, hann hafði aðeins séð þessar glæður, sem unglingar eru að tendra á hæðum og hólum á Maríumessu eða á Jónsmessunótt, svo að ég varð að lýsa fyrir honum, hvernig eldurinn hagaði sér og reyna að láta hann sjá hann, eins og hann hafði birzt mér, þegar brim hans valt yfir skóginn og á kofann þessa eftirminnilegu sumarnótt í janúar- byrjun. „Ég hljóp niður að fljótinu, sótti hestana. Villimaðurinn var búinn að söðla sinn hest. Reykinn lagði yfir í þykkum, svörtum skýjum, hestarnir skulfu á beinunum af hræðslu. A götuslóða, sem lá fram með ánni, voru skepnur á ferð, það voru þrjár hryss- ur með folöldum. Þær höfðu snemma lagt á flótta undan eldin- um, því að þær vissu, að folöldin mundu lýjast, og þau voru orð- in lúin, en hryssurnar sáu um, að þau fylgdust með, þær hug- hreystu þau — kumruðu við þau — gerðu við þau gælur, töldu á þann hátt kjark í þau. Þær höfðu séð skógareld áður og óttuð- ust, að folöldin hefðu ekki þol til að hraða flóttanum sem þurfti. Skógareldur gerir alla hesta að veðhlaupagæðingum, ef þeir að- eins finna lyktina af honum. Á eftir hryssunum komu nautgripahjarðir í löngum röðum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Stígandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.