Stígandi - 01.07.1943, Side 45

Stígandi - 01.07.1943, Side 45
STÍGANDI ÞRÁINN: SAMTÍÐ MÍN OG ÉG Þú, samtíð, er við brjóst mig barst, mér breytilega hlóst og varst svo kenjafull og klækjamörg, en kærleiksauðug lézt. Með svikaalúð seiddir mig og sýndarfegurð veiddir mig, en er ég hafði agni kingt, þú að mér hlóst — og grézt. Til fulls ég aldrei þekkti þig, ÞÚ laugst að mér og blekktir mig, en oftast þó mér sagðir satt, er svika vændi þig. Við hlátri er bjóst ég, hryggðist þú, er hróss ég vænti, styggðist þú, er sjálfsögð refsing sýndist mér, þú sæmdum hlóðst á mig. Og sjálfsagt aldrei semur oss, og síður ekkert kemur oss en þurfa sífellt þannig tafl að þreyta millum oss. En vandheft raun sú reynist oss, ríkari að baki leynist oss, því lífsins herra hefir oss á herðar lagt þann kross.

x

Stígandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.