Stígandi - 01.07.1943, Qupperneq 60

Stígandi - 01.07.1943, Qupperneq 60
50 FRÚIN Á GRUND STÍGANDI sem nafn hennar er nefnt. í fyrra skiptið skrifaði Tryggvi Gunn- arsson, dóttursonur hennar, stutta grein í Almanak Þjóðvina- félagsins til þess að vara menn við því að vera of bráðir á sér að úrskurða þá látna, sem lífsmark sæist ekki með. Sagði hann í því sambandi sögu af frú Valgerði Briem ömmu sinni. Þegar hún var ung stúlka, veiktist hún skyndilega mikið, en féll svo í einhvern dvala, svo að allir viðstaddir hugðu hana dána. Hún heyrði allt, sem gerðist, grát og kveinstafi ættingjanna og undirbúninginn að sauma utan um líkama hennar, eins og þá var siður. En hvernig sem hún reyndi, gat hún ekki hreyft legg eða lið né bært til augnalokin. Loksins, þegar stúlkan var að enda við að brjóta líkhjúpinn að fótum hennar, gat hún örlítið hreyft eina tá. Var þá farið að stumra yfir henni. Raknaði hún fljótt við og hresstist, náði fullri heilsu og var hraust alla ævi síðan. Hitt er frásaga, sem birtist fyrir nokkrum árum í þjóðsagna- safni. Er þar skýrt frá sýn, er bar fyrir merkan bónda í Eyjafirði, þar sem hann stóð að slætti, ásamt vinnumönnum sínum, dag- inn sem frú Valgerður dó. Virtist þeim bjartur geisli líða upp í loftið yfir Grundarbænum. Sýnir það vel, hvern hug Eyfirðingar báru til hennar, að þeim fannst það eðlilegt, að dauði hennar hefði verið dýrðlegri en flestra annarra, af því að líf hennar var svo auðugt af góðum verkum. Frú Valgerður ólst að nokkru leyti upp hjá Jóni Jakobssyni móðurbróður sínum á Espihóli, sem þá var sýslumaður í Eyja- fjarðarsýslu. Var hann mjög vinsæll af alþýðu, ljúfur í máli við alla og gekk ekki hart eftir greiðslum hjá snauðum mönnum. Komu þeir oft á manntalsþing með hnappheldur, teyminga, gjarðir og reipi, og tók hann þetta upp í þinggjöldin. Kom mörg- um það vel, því að peningar voru þá í fárra höndum. Sagt var, að hann hefði tekið svo nærri sér að geta ekki bætt úr vandræð- um allra, sem til hans leituðu, að hann hefði oft tárast yfir því. Þó var hann karlmenni í sjón og að burðum, svo að kraftasögur af honum fóru víða um landið. Um Sigríði konu hans gengu aðr- ar sögur. Þótti hún naum til útláta, vinnuhörð og ekki góð við umrenninga. En ekki má gleyma því, að margir voru þá lang- þurfamenn, og óvíst að heimilið hafi verið jafnauðugt af birgð- um og menn hugðu, því að sýslumaður hafði mikið mannahald við byggingar og jarðabætur, svo að sumir mæltu, að Espihóll hefði verið reisulegasta stórbýli á Norðurlandi um daga hans.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Stígandi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.