Stígandi - 01.04.1944, Side 40

Stígandi - 01.04.1944, Side 40
118 GUNNAR í HÓLUM STÍGANDI Flutti Tómas þangað. Eignuðust þau Sigríður einn son, er Jón hét. Þegar Ingibjörg Gunnarsdóttir var orðin gjafvaxta, vildi fað- ir hennar gifta hana manni, sem Kolbeinn hét og átti heima á Stórahamri. Hann þótti vel gefinn og hagmæltur, en vínhneigð- ur nokkuð. Mun Gunnari hafa þótt hann skemmtilegur félagi. Sjálfur var hann ekki frábitinn víni. En þegar til Ingibjargar kom, aftók hún með öllu að giftast Kolbeini. Þótti Gunnari það illt vegna þess, að hann hafði gefið biðlinum vilyrði sitt. Þó lík- aði honum enn verr, þegar hann komst að því, að hún hafði val- ið sér annað mannsefni og að það var bernskuleikbróðir hennar, Tómas, sonur Tómasar Egilssonar. Kvað hann, að þau ráð skyldu aldrei takast með sínu samþykki. Ingibjörg mun hafa verið skaplík föður sínum og ekki líkleg til undanlátsemi. Tók hann það ráð að koma henni til vinafólks síns í Hvassafelli, und- ir því yfirskyni, að hún lærði þar kvenlegar hannyrðir, vonaði, að svo myndu „fyrnast ástir sem fundir“, því að ekki var líklegt, að ferðir Tómasar yrðu jafnmargar að Hvassafelli og þær höfðu áður verið að Hólum. Lét hann nú búa dóttur sína vel að heim- an og fylgdi henni út á hlað, þegar hún fór. Ingibjörg sagði fátt um þetta allt, en þegar hún reið úr hlaði leit hún til föður síns og sagði allfastmælt: „Ég er nú á bak stigin, en ekki burt riðin, faðir minn.“ Skömmu síðar vitnaðist það, að hún var barnshafandi. Var hún þá flutt heim, lýsingum hraðað og búið til brúðkaups að þeirra tíma sið. Gunnar var í þungu skapi þá daga. Brúðkaups- daginn lá hann í rúminu og breiddi yfir höfuð sér allan daginn. Skyggði þetta mikið á veizlugleðina. Var Gunnar venjulega glaður og reifur í gestahópi, en þennan ósigur veitti honum örðugt að sætta sig við. Ekki sá á hinni ungu brúði harm eða eftirsjá, enda var hún þrekmikil kona. Eftir veizluna kom upp bragur, sem Gunnar hafði kveðið þennan dag. Var sumt í honum beiskjublandið. Ekki hefi ég heyrt hann nema tvær eða þrjár vísur. Mig minnir, að hann byrjaði svona: Víst hefir langur verið hér veizlu tilbúnaður. Margur svangur mettast fer, mikill gangur þetta er.

x

Stígandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.