Fréttablaðið - 09.08.2014, Blaðsíða 2
9. ágúst 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2
FRÉTTIR
FIMM Í FRÉTTUM GEIMVÍSINDI, HJÁLPARSTARF OG BLÓÐGJÖFGLEÐIFRÉTTIN
VIKAN 03.08.➜09.08.2014
Kjörís í Hveragerði ætlar að bjóða
upp á ís úr brjóstamjólk kvenna í
Hveragerði á Ísdeginum í bænum
sem haldinn verður um næstu
helgi. „Þegar það spurðist út að
við ætluðum að bjóða upp á ís
gerðan úr brjóstamjólk buðust
nokkrar frábærar, hraustar og fal-
legar konur sem voru að fæða upprennandi Hvergerð-
inga til þess að gefa mjólk í verkefnið,“ sagði Guðrún
Hafsteinsdóttir, forstjóri Kjöríss, í samtali við Vísi.
Brjóstamjólkurísinn er kallaður Búbís. Hann verður
eingöngu í boði á Ísdeginum.
Kjörís framleiðir ís úr brjóstamjólk
TRYGGVI GUNNARSSON ,
umboðsmaður Alþingis, ítrek-
aði spurningar sínar til Hönnu
Birnu Kristjánsdóttur innanrík-
isráðherra um samskipti hennar
við lögreglustjórann í Reykjavík.
Hann spurði forsætisráðherra
líka um siðareglur ríkisstjórnarinnar.
EVA MARÍA ÞÓRARINSDÓTT-
IR LANGE, formaður stjórnar
Hinsegin daga, var á meðal
þeirra sem mættu í Blóðbank-
ann á þriðjudaginn til að gefa
blóð fyrir hönd sam- og tvíkyn-
hneigðra karla, sem fá ekki að
gerast blóðgjafar.
ELÍN ODDSDÓTTIR skurð-
hjúkrunarfræðingur er komin
til Gasastrandarinnar á vegum
Rauða krossins. Þar tekur hún
þátt í hjúkrun fólks sem hefur
særst í árásum Ísraelshers.
ANNA LINDGREN er Íslend-
ingur búsett í Vestmannalandi
í Svíþjóð. Skógareldar grönd-
uðu sumarhúsi fjölskyldunnar
og fólk flúði heimabæ hennar
Nordberg, en heimilið bjargað-
ist á endanum.
➜ KÁRI HELGA-
SON útskrifaðist
með doktorsgráðu
í stjörnufræði frá
háskólanum í Mary-
land. Hann hefur
stundað rannsóknir
með vísindamönnum
NASA, er á leiðinni til
rannsókna í Þýska-
landi og segist
ekki mundu
slá hendinni
á móti boði
um að gerast
geimfari.
SUÐURLANDSBRAUT 26 - REYKJAVÍK - SÍMI 569 1500
BÍLTÆKIMP3 SPILARAR ÚTVÖRPHLJÓMBORÐ
HEYRNARTÓL
REIKNIVÉLAR
SJÓNVÖRP
FERÐATÆKI MAGNARARBÍLMAGNARAR
ÞRÁÐLAUSIR SÍMAR
MEIRA EN 2000 VÖRUTEGUNDIR MEÐ ÓTRÚLEGUM AFSLÆTTIALLT AÐ 75% AFSLÁTTUR
ELDAVÉLAR
ÍSSKÁPAR
ÞVOTTAVÉLAR
OFNAR
OPIÐ!
ALLA HELGINA
LAUGARDAG 11-16
SUNNUDAG 13-17
Á SUÐURLANDSBRAUT
Sjá allt úrvalið á ht.is
SUNNUDAGUR Óvissustig við Sólheimajökul Al-
mannavarnir lýstu yfir óvissustigi við Sólheimajökul, en
óttast var að jakar gætu brotnað framan af jöklinum og
valdið flóðbylgju í lóninu sem hefur myndast. Umferð
ferðamanna var takmörkuð.
MÁNUDAGUR Stórslysalaus helgi Útihátíðir
verslunarmannahelgarinnar tókust vel og helgin gekk
stórslysalaust fyrir sig. Þó varð dálítið uppnám síðustu
nóttina á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum þegar skyndi-
lega brast á með hvassviðri og fjöldi tjalda hátíðargesta
fauk út í buskann.
ÞRIÐJUDAGUR Mestu skógareldar Svíþjóðar
Þúsundir manna flúðu skæða og útbreidda skógarelda
í Vestmannalandi í Svíþjóð. Mikið eignatjón varð og
einn maður lést. Eldarnir eru taldir þeir mestu í Svíþjóð
á síðari tímum. Önnur Evrópuríki sendu Svíum aðstoð.
MIÐVIKUDAGUR Ebólafaraldur breiðist út Stjórn-
völd í Nígeríu staðfestu annað dauðsfallið þar í landi af
völdum ebólaveirunnar. Miklar varúðarráðstafanir hafa
verið gerðar víða um heim og Alþjóðaheilbrigðisstofn-
unin lýst yfir alþjóðlegu neyðarástandi.
FIMMTUDAGUR Uppgangur í sjávarútveginum
Störfum í sjávarútvegi fjölgaði úr 7.200 árið 2008
í 9.100 í árslok 2012. Betri aflabrögð skýra fjölgun
starfa, ekki síst vinnsla makríls til manneldis. Fisk-
vinnslufólki fjölgaði um 1.200 á tímabilinu.
FÖSTUDAGUR Vantar hrefnu Hrefnuveiðimenn
anna ekki eftirspurn eftir hvalkjötinu. Aðeins hafa
veiðst átján hrefnur í sumar, en framkvæmdastjóri
Hrefnuveiðimanna ehf. segir að gott væri að hafa tíu
til viðbótar.
LAUGARDAGUR Heyrnarskertir fá ekki túlka
„Táknmálstúlkun nýtist
ekki heyrnarskertum þar
sem íslenskan er þeirra
móðurmál.“
SÍÐA 4
Kolbrún Stefánsdóttir,
framkvæmdastjóri Heyrnarhjálpar
HÚSNÆÐISMÁL „Þetta eru einhverjar
viðamestu breytingar sem ráðist hefur
verið í í húsnæðismálum hér á landi.
Þegar þær hafa að fullu komið til fram-
kvæmda hafa þær áhrif á hvert einasta
heimili í landinu,“ segir Eygló Harð-
ardóttir, félags- og húsnæðismálaráð-
herra.
Í ráðuneyti Eyglóar eru í smíðum
nokkur frumvörp sem varða húsnæðis-
markaðinn hér á landi og stefnir ráð-
herra að því að leggja þau fram á haust-
og vorþingi. Frumvörpin verða byggð
á skýrslu nefndar um framtíðarskipan
húsnæðismála hér á landi.
Íbúðalánasjóður verður lagður af í
núverandi mynd, honum verður skipt
upp. Sett verða á laggirnar sérstök hús-
næðislánafélög þar sem félögin mega
eingöngu lána til húsnæðiskaupa og eiga
þau að fjármagna útlán með útgáfu sér-
tryggðra húsnæðisverðskuldabréfa.
Lánasafn Íbúðalánasjóðs verður látið
renna út en núverandi lántakendur
sjóðsins eiga að fá þjónustu frá sér-
stöku húsnæðislánafélagi.
Eygló segir að hún stefni að því að
hér á landi verði virkur leigumarkaður
svo fólk hafi val um hvort það eigi hús-
næði eða leigi það.
„Við ætlum að sameina vaxtabætur
og húsaleigubætur í eitt húsnæðisbóta-
kerfi. Eftir það miðast stuðningurinn
við efnahag en ekki búsetuform,“ segir
Eygló og bætir við að hún telji þetta
stórt skref fram á við.
Þá á að setja ný lög um leigumark-
aðinn. „Eitt af því sem vantar að skil-
greina hér á landi er hvað telst lang-
tímahúsaleiga,“ segir ráðherra og bætir
við að það verði að búa til hvata svo fólk
geti leigt til lengri tíma. Slíkt verði gert
með því að bæta á sama tíma stöðu
leigjenda og leigusala.
Eygló segir að ekki hafi verið rætt
sérstaklega að setja þak á leiguverð.
„Breytingar á húsnæðisbótakerfinu
eiga að koma til móts við þá sem eru á
leigumarkaði,“ segir Eygló.
Lagt verður til að fjölga íbúðum
félaga sem eru rekin án hagnaðarsjón-
armiða. Rætt hefur verið um að lækka
fjármagnstekjuskatt á tekjur af útleigu
íbúðarhúsnæðis um helming, eða úr 20
prósentum í tíu prósent.
Þá á að endurskoða lög um húsnæð-
issamvinnufélög með það að markmiði
að starfsemi þeirra verði efld svo þau
styðji enn betur við nýtt framtíðar-
skipulag húsnæðismála.
johanna@frettabladid.is
Aðgerðirnar hafa áhrif
á öll heimili á Íslandi
Félagsmálaráðherra segir unnið að viðamiklum breytingum á húsnæðiskerfinu sem snerti öll
heimili landsins. Búa á til sérstök húsnæðislánafélög. Þá á að sameina í eitt vaxta- og húsaleigu-
bótakerfi og koma á laggirnar virkum leigumarkaði. Nauðsynlegt sé að skilgreina langtímaleigu.
VIÐAMIKLAR BREYTINGAR Gagngerar breytingar verða lagðar til á skipan húsnæðismála á haust-
þingi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Þegar breytingarnar hafa að
fullu komið til framkvæmda hafa
þær áhrif á hvert einasta heimili í
landinu.
Við ætlum að sameina
vaxtabætur og húsaleigubætur í
eitt húsnæðisbótakerfi. Eftir það
miðast stuðningurinn við efna-
hag en ekki búsetuform.
Eygló Harðardóttir
félagsmálaráðherra
HEILBRIGÐISMÁL Vinna við fjár-
lagafrumvarp næsta árs er í fullum
gangi en fjármálaráðherra hefur
lagt á það ríka áherslu að skila
hallalausum fjárlögum. Samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins liggur
fyrir að Landspítalinn fari fram úr
fjárlögum ársins 2014, væntanlega
um nokkur hundruð milljónir króna,
en forstjóri spítalans segir ástæður
þessa vera einfaldar.
„Ég vil fyrst og fremst nefna
tvennt. Annars vegar það, sem
öllum er ljóst sem horfa á fréttir, að
ítrekað hefur verið mjög mikið álag
á spítalanum. Óvænt og umfram það
sem við gátum gert ráð fyrir. Svo
dæmi sé tekið þá fjölgaði dvalar-
nóttum á spítalanum í júní og júlí
um 5 prósent frá síðasta ári og inni-
liggjandi sjúklingum um 3 prósent,“
segir Páll Matthíasson, forstjóri
Landspítalans.
Þá hafi vökudeild spítalans, sem
gerir ráð fyrir 12 til 14 börnum,
verið með yfir 20 börn meirihluta
þessa árs sem þýðir 60 milljónir
króna í aukakostnað fyrir spítalann.
Hins vegar nefnir Páll vaxandi
kostnað og öryggisógn vegna þess
að spítalinn sé í gömlu húsnæði sem
sé dreift um allt höfuðborgarsvæð-
ið.
„Það er þannig að eins og rekstur-
inn hjá okkur er þá veltum við fyrir
okkur hverri krónu. Við getum ekki
slegið af öryggi og ef árið er okkur
óhagstætt varðandi álag áfram,
verðum við að skera af einhverja
þjónustu, ef til þess kæmi að við
værum að fara fram úr áætlun eða
hefðum ekki skilning stjórnvalda,“
segir Páll.
Páll segir spítalann hafa verið
fjársveltan í mörg ár.
- GAG
Forstjóri Landspítalans segir hugsanlegt að skera verði niður þjónustu í ár:
Keyra langt fram úr fjárlögum
STREMBIÐ VERKEFNI Páll segist skynja
velvilja hjá stjórnvöldum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM