Fréttablaðið - 09.08.2014, Blaðsíða 38
FÓLK|HELGIN
Fiskidagurinn mikli verður haldinn á Dalvík í dag og hefur dagskráin aldrei verið glæsilegri. Þetta er
fjórtánda árið sem dagurinn er hald-
inn og meðal fjölbreyttra viðburða má
nefna að reynt verður að slá heimsmet
í pítsugerð, boðið verður upp á risa-
knús, filsur verða kynntar til sögunnar
í fyrsta sinn en það eru fiskipylsur í
brauði, slegið verður upp stórkost-
legri tónlistarveislu á stóra sviðinu
og heimsfrumsýning verður á merki-
legum neðansjávarmyndböndum sem
margir bíða spenntir eftir. Í gær lauk
síðan hinu sívinsæla fiskisúpukvöldi
sem haldið var tíunda árið í röð en
þar buðu 120 fjölskyldur í bænum upp
á ýmsar útgáfur af fiskisúpu.
Að sögn Júlíusar Júlíussonar, fram-
kvæmdastjóra Fiskidagsins mikla, hef-
ur þó markmið dagsins alltaf verið að
koma fólki saman, hafa gaman og auð-
vitað að borða fullt af fiski. „Há punktur
Fiskidagsins er þegar sjálfboðaliðar
og grillsveitir Fiskidagsins mikla gefa
ljúffenga fiskrétti af öllum stærðum og
gerðum á hafnarsvæðinu á laugardeg-
inum. Matarbásarnir eru opnaðir kl. 11
og verða opnir til kl. 17 og það verður
nægur matur fyrir alla hátíðargesti.“
Matseðillinn inniheldur alltaf klass-
íska rétti ár eftir ár en þó er alltaf
boðið upp á einhverjar nýjungar á
hverju ári. „Í ár munum við bjóða
upp á filsur í fyrsta skipti á Íslandi
en það eru fiskipylsur í brauði. Þær
verða bara framleiddar fyrir þennan
dag. Við munum einnig bjóða upp á
nýjar marineringar þegar við grillum
bleikju og þorsk. Svo má nefna að í
fyrsta sinn bjóðum við upp á rétt sem
er ekki fiskréttur en þar mun Grímur
kokkur bjóða upp á indverskt græn-
metisbuff auk hins vinsæla plokkfisks.
Við ætlum líka að reyna við heimsmet
þegar við munum baka 80 fermetra
saltfiskpítsu þar sem við notumst við
eitt tonn af hráefni.“ Allur matur og
skemmtanir á hátíðarsvæðinu eru
ókeypis.
Um 26 þúsund manns sóttu há-
tíðina í fyrra og býst Júlíus við
sambærilegum fjölda í dag. „Hingað
koma margir brottfluttir Dalvíkingar
auk gesta úr öllum landsfjórðungum.
Margir koma hingað ár eftir ár og eru
jafnvel farnir að ganga í ýmis sjálf-
boðaliðastörf og hjálpa þannig til við
að gera Fiskidaginn mikla að þeirri
einstöku hátíð sem hann er.“
Allar nánari upplýsingar www.fiski-
dagurinnmikli.is og á Facebook.
■ starri@365.is
FISKIHÁTÍÐ ÁRSINS
MATARVEISLA Fjölmenni sækir Fiskidaginn mikla á Dalvík árlega. Boðið er
upp á fjölbreytta dagskrá fyrir fjölskylduna en fiskréttirnir eru aðalmálið.
MATARVEISLA
Um 26.000 manns
mættu í fyrra og nutu
góðra veitinga og fjöl-
breyttra skemmtiatriða.
Í gær var árlegt fiski-
súpukvöld.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Það verður mikið um dýrðir á
Suðureyri um helgina þar sem
einleikjahátíðin Act Alone er
haldin. Frítt er inn á alla við-
burði hátíðarinnar sem eru
ætlaðir fólki á öllum aldri. Eins
og nafnið gefur til kynna troða
listamenn einir upp og verður
fjölbreytnin mikil eins og
undan farin ár.
Hátíðin hófst á miðvikudag-
inn en lýkur á morgun, sunnu-
dag. Meðal atriða sem boðið
verður upp á í dag er þrifa-
gjörningur Önnu Richards-
dóttur sem tekur Suðureyri í
gegn, Bernd Ogrodnik sýnir
barnaleikritið Pétur og Úlfinn,
Hjörtur Jóhann Jónsson sýnir
leikritið Grande, Arnar Jónsson
leikari flytur leikritið Sveins-
stykki og Eiríkur Örn Norðdahl
flytur ljóðaprógrammið Swing
Ding Deng Xiaoping. Villi Nagl-
bítur býður upp á kvöldvöku
og fyrr um daginn verður boðið
til fiskiveislu þar sem gestir
geta gætt sér á tapasréttum auk
þess sem Vísindanámskeið Villa
verður í boði fyrir börnin.
Undanfarna daga hafa meðal
annars gítarleikarinn Björn
Thoroddsen og Stuðmaðurinn
Egill Ólafsson haldið tónleika
og Saga Sigurðardóttir sýndi
dansverkið Scape of Grace í
gær.
Act Alone lýkur á morgun,
sunnudag, með söngdagskrá
Bjarna Ara í Suðureyrarkirkju.
Hátíðin hefur verið haldin
árlega frá árinu 2004. Alls hafa
verið sýnd yfir 100 verk á há-
tíðinni og alltaf hefur aðgangur
verið ókeypis.
Nánari upplýsingar má finna
á www.sudureyri.is/actalone og
á Facebook.
EINLEIKJAHÁTÍÐ
Á SUÐUREYRI
Bæjarlind 6 • S. 554 7030
www.rita.is
Við erum á Facebook
VERÐHRUN
Á ÚTSÖLU
20% AUKAAFSLÁTTUR
AF ÚTSÖLUVERÐI
ENN ER HÆGT AÐ GERA GÓÐ KAUP
Þjónustusími: 561 4200 Bílabúð Benna dekkjaþjónusta
Jeppadekk
Save the Children á Íslandi