Fréttablaðið - 09.08.2014, Blaðsíða 71
KYNNING − AUGLÝSING Safar og þeytingar9. ÁGÚST 2014 LAUGARDAGUR 3
Við leggjum megináherslu á að selja fyrir íslenska fram-leiðendur en innan vébanda
fyrirtækisins eru, auk Akurs, Garð-
yrkjustöðin Sunna á Sól heimum
í Grímsnesi og Garðyrkjustöð
Heilsustofnunarinnar í Hveragerði.
Þess utan flytjum við inn grænmeti
og ávexti frá hollenska fyrirtæk-
inu Eosta og erum fyrst og fremst í
ferskvöru,“ segir eigandinn Þórður
Halldórsson.
Græni hlekkurinn dreifir líf-
rænum vörum í allar heilsu búðir
og smávöruverslanir en líka í
stórmarkaði, veitingahús, skóla
og mötuneyti um allt land. „Við
rekum jafnframt matarmarkaðinn
Bændur í bænum að Nethyl en þar
er hægt að nálgast vörur frá öllum
ofantöldum aðilum og f leiri líf-
rænum framleiðendum hér á landi.
Má þar nefna Móður jörð, Biobú og
Brauðhúsið. „Þess utan flytjum við
inn lífrænar þurrvörur og djús frá
sænska fyrirtækinu Saltå Kvarn en
viðskiptavinir geta verið fullvissir
um að ganga einungis að lífrænum
vörum í versluninni.“
Samhliða matarmarkaðnum reka
hjónin netverslunina Grænmeti í
áskrift en hún er jafn gömul Garð-
yrkjustöðinni Akri sem þau stofn-
uðu árið 1991. „Við vildum borða
betur og bjóða börnunum okkar
upp á það besta. Þess vegna fórum
við út í lífræna ræktun. Á þessum
árum var nánast engin verslun sem
hafði áhuga á að kaupa lífrænt en
hins vegar fullt af einstaklingum.
Við fórum því af stað með áskriftar-
sölu sem nú hefur breyst í netversl-
un. Þar getur fólk pantað líf rænar
afurðir vikulega og sótt
þær á næstu Olísstöð
á höfuðborgarsvæð-
inu. Stórar pant-
anir keyrum við
heim og sendum
um allt land,“
útskýrir Þórður.
En af hverju
velur fólk lífrænt?
„Fyrst og fremst
er það að hugsa
um hollustu og heil-
brigði. Þeir sem hugsa málið lengra
hafa auk þess umhverfissjónarmið
að leiðarljósi. Grundvöllur lífrænn-
ar ræktunar er að byggja upp frjó-
semi jarðvegs og viðhalda henni en
minnkandi frjósemi jarðvegs er eitt
stærsta vandamál framtíðarinnar.
Hefðbundin ræktun með tilbúnum
áburði og eiturefnum dregur úr frjó-
semi jarðvegs og eru mörg stórfyrir-
tæki farin að kaupa lönd í
Afríku til að rækta því
heima lönd in er u
úr sér gengin. Þá
skiptir ekki máli
hversu miklum
áburði er mokað
yfir. Uppskeran
er í engu sam-
ræmi við það sem
menn setja niður.
Með lífrænni rækt-
un má viðhalda frjó-
semi jarðvegs og stemma stigu við
þessari eyðingu. Þannig aukast
líkurnar á að við höfum jörð til að
rækta í framtíðinni,“ segir Þórður.
„Auk þess hefur því lengi verið hald-
ið fram að lífrænt ræktað hráefni
innihaldi meira af næringarefnum
og nýlegar langtímarannsóknir frá
Englandi renna stoðum undir það.“
Þórður segir mikla vakningu
hafa orðið í framleiðslu og neyslu
á lífrænum afurðum undanfarin
ár. „Eftir hrun héldum við jafnvel
að þróunin yrði á hinn veginn en
raunin varð sú að fólk varð með-
vitaðra um umhverfið og heilsuna
og fór frekar að velja lífrænt. Eftir-
spurnin eftir veitingastöðum með
slíkar áherslur hefur sömu leiðis
aukist og hafa þeir margir fetað
þessa leið. Það er því mikill upp-
gangur á þessu sviði.“
Fleiri velja lífrænt ræktað
Græni hlekkurinn er heildsölu- og dreifingarfyrirtæki sem sérhæfir sig í markaðssetningu á lífrænum vörum. Fyrirtækið
er rekið af hjónunum Karólínu Gunnarsdóttur og Þórði Halldórssyni sem jafnframt reka Garðyrkjustöðina Akur að Laugarási
í Biskupstungum. Þórður segir að eftirspurn eftir lífrænum vörum hafi aukist eftir hrun.
Að láta gott af sér leiða með matarinnkaupum er hugmynda-
fræðin á bak við „1 sent til framtíðar“ sem Nature & More
standa fyrir. Fyrir hvert kíló af ávöxtum sem selt er í herferð-
inni fer eitt sent til félagslegra verkefna á hverjum stað. Hugo
Sanchez er eplaræktandi hjá Nature & More og hefur með
þessu verkefni stutt við 15 fátæk eyðimerkurþorp í Argentínu.
Epli og perur frá Nature & More bæta líf fólks í eyðimörk Pata-
góníu. Þegar keypt eru lífræn epli og perur frá Hugo Sanchez fæst
meira en bragðgóðir ávextir því hluti af framlegðinni fer í Pata-
góníueyðimerkurverkefnið. Öll fjölskylda Hugos tekur þátt í verk-
efninu og stuðlar að betri lífsskilyrðum ásamt bjartari framtíð
fyrir heimamenn.
Fjölskylda Hugos vinnur náið með presti staðarins, Javier Agu-
irre, sem hrinti verkefninu af stað. „Að okkar mati er mikilvægast
að tryggja unga fólkinu í El Cuy-héraði góða menntun til að auka
framtíðarmöguleika þess,“ útskýrir Hugo. „Ef þau vilja halda
áfram skólagöngu eftir grunnskóla þurfa þau að flytja að heim-
an og fara til General Roca, þar sem framhaldsskólinn er. Það er
okkar markmið að styðja þau í þessu ferli. Við höfum
líka komið á fót bókasafni og skipuleggjum skoð-
unar ferðir.“ Auk menntunar hefur Patagóníueyði-
merkurverkefnið séð um gróðursetningu trjáa,
byggingu smárra gróðurhúsa og komið upp hrein-
lætisaðstöðu og raf lögnum en þetta er
einungis hluti alls sem gert hefur verið.
Til að tryggja að viðskipta vinir
Nature & More séu meðvitaðir og
fái betri skilning á verkefninu
hefur Nature & More látið útbúa
fræðsluefni sem sent er til kaup-
enda.
Auk Patagóníu eru f leiri
verkefni sem falla undir
1 cent til framtíðar-her-
ferðina, má þar nefna
vatnsbrunn í Búrkína
Fasó og stuðning við
kennslu í Mexíkó.
Vörur frá Nature &
More fást í Fjarðarkaup-
um, Melabúðinni, Krón-
unni, Nóatúni, í versluninni
Bændur í bænum og netversl-
uninni Grænmeti í áskrift.
1 sent til framtíðar – lítil
skref en góður árangur
- G
ræ
ni
hlekkurinn -
Lífrænt og ljúf
fe
ng
t
BIOLOGISCH / ORGANIC
… þegar þú kaupir epli og perur frá Hugo þá styrkir
þú Patagonian eyðimerkur verkefnið!
… þetta verkefni aðstoðar Mapuche frumbyggjana
í hinni hrjóstrugu Patagoninan eyðimörk í
Argentínu.
… peningarnir sem safnast fara óskiptir til að
mennta ungmenni hjá Mapuche fólkinu.
… allir sem njóta góðs af verkefninu eru gríðalega
þakklátir. Gracias!
… minnsta kosti 1 evrucent af hverju seldu kílói fer
beint í þetta verkefni.
Vissir þú að…
enter at
natureandmore.com
healthy,organic,fair
Lífrænt ræktuð
Epli og Perur
Frá Hugo Sanchez
með frábærri sögu
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast
á www.natureandmore.com
og slá inn kóðann 313.
- G
ræ
ni
hlekkurinn -
Lífrænt og ljúf
fe
ng
t