Fréttablaðið - 09.08.2014, Blaðsíða 96
9. ágúst 2014 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 52
■ Ekki borða sveppi sem þú þekkir ekki. Það eru til eitraðir sveppir sem valda
veikindum. Þrátt fyrir að þeir valdi fæstir dauðsföllum geta hlotist af því
veruleg óþægindi að borða svepp sem ekki er ætlaður til átu.
■ Ekki borða sveppi sem vaxa nálægt umferð. Þeir draga í sig mengun.
■ Ekki tína sveppi í poka. Þar loftar ekki nógu vel um þá, þeir klessast saman
og hitna.
HVAÐ BER AÐ VARAST?
■ Sveppina má borða hráa en mun
meira bragð fæst með því að
steikja þá, sjá heilræði Gísla.
■ Ferskir sveppir geymast ekki
lengur en í sólarhring.
■ Ef geyma þarf sveppina má frysta
þá. Þá er best að steikja þá á þurri
pönnu, án allrar feiti, og leyfa
mesta vatninu að gufa upp. Síðan
má skella þeim í box og inn í frysti.
■ Þurrkaðir sveppir eru einnig
gæðafæða og geta geymst árum
saman. Þá eru þeir settir á vír-
grind í ofn á 50-60°C hita. Þeir
eru tilbúnir þegar þeir eru harðir
og stökkir. Þurrkaða sveppi þarf að
leggja í bleyti í stundarfjórðung
áður en þeir eru steiktir en þeim
má fleygja beint í súpur og pott-
rétti.
NEYSLA OG GEYMSLA
Sveppir fylgja trjátegundum. Þá
má því alltaf finna í nálægð við þá
trjátegund sem þeir tilheyra. Ása
mælir með því að byrjendur kynni
sér eftirfarandi tvær tegundir og
einbeiti sér að þeim fyrst um sinn.
1. Lerkisveppurinn:
■ Fylgir lerkitrjám.
■ Appelsínugulur eða gullinbrúnn
að lit.
■ Pípulagið gult.
■ Sést vel í náttúrunni.
2. Furusveppur:
■ Fylgir furutrjám.
■ Súkkulaðibrúnn á hattinum.
Leiðbeiningar:
■ Best er að taka þessa sveppi unga.
■ Ekki má tína þá þegar þeir eru
flatir og vatnsríkir, þá kemur
maðkur í þá og best að láta þá
vera og leyfa þeim að fjölga sér í
náttúrunni.
■ Bestu sveppirnir eru með pípum
undir.
Sveppategundir fyrir byrjendur:
„Ágúst er aðalmánuðurinn en
sveppirnir voru farnir að spretta
upp í júlí eða um mánaðamótin,“
segir Ása Margrét Ásgrímsdótt-
ir, einn helsti sveppasérfræðingur
Íslands, en hún hefur tínt og borð-
að íslenska matsveppi í hartnær
hálfa öld. Hún segir mikla aukn-
ingu í matsvepp-
um undanfarin
ár samfara
aukinni
skógrækt
h é r á
landi.
Dásam-
legt er að halda
út í skóg með körfu, nesti og í
góðum félagsskap og mælir Ása
með því að haldið sé út fyrir borg-
ina, til dæmis í Heiðmörk, þar
sem sveppir draga í sig mengun
og eru ekki góðir séu þeir nálægt
mikilli umferð. Hún leggur einn-
ig áherslu á að fólk kynni sér vel
sveppategundir sem gott er að
tína áður en haldið er af stað eða
fái einhvern sveppafróðan með
sér. nanna@frettabladid.is
Allt fyrir byrjendur um sveppatínslu
Sveppir vaxa villtir í skóglendi á Íslandi en þeir hafa sótt mjög í sig veðrið á síðustu árum. Fréttablaðið leitaði til helsta sveppa-
sérfræðings landsins sem lagði grunninn fyrir byrjendur í sveppatínslu, hvaða tegundir skal tína og hvað ber að varast.
REYNSLUBOLTI Ása Margrét Ásgrímsdóttir hefur yfir fjörutíu ára reynslu af
sveppatínslu og matreiðslu. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
■ Kynna sér vel sveppategundir
og hvað ber að varast.
■ Finna til körfu eða ílát þar
sem loftar vel um sveppina.
Jafnvel pappakassa með
loftgötum. Alls ekki plastpoka.
„Ég fer frekar úr flíspeysunni
og tíni í hana en að setja
sveppina í poka,“ segir Ása
sveppasérfræðingur.
➜ Undirbúningur
1
2
Skoda Fabia Amb.
1.6 TDI. Árgerð 2013, dísil
Ekinn 17.000 km, beinsk.
VW Bjalla Design 160 hö
Árgerð 2012, bensín
Ekinn 22.000 km, beinsk.
Ásett verð
2.690.000,-
VW Passat Alltrack
4Motion. Árgerð 2012, dísil
Ekinn 30.000 km, sjálfsk.
VW Tiguan Sport&Style
2.0 TDI. Árgerð 2013, dísil
Ekinn 31.000 km, sjálfsk.
Ásett verð
5.990.000,-
Ásett verð
3.990.000,-
Ásett verð
5.790.000,-
Komdu og skoðaðu úrvalið!
Laugavegi 174 | Sími 590 5040
Opið virka daga frá kl. 10-18
og laugardaga kl. 12-16
Audi A5 2.0 TFSI quattro
Árgerð 2012, bensín
Ekinn 21.000 km, sjálfskiptur
Ásett verð
8.490.000,-
NOTAÐIR GÆÐINGAR
Í MIKLU ÚRVALI
Opið í dag frá kl. 12-16
SIÐMENNT
w w w . s i d m e n n t . i s
Siðmennt styður opið, víðsýnt og fjölbreytt samfélag
Til hamingju með daginn!
LÍFIÐ
9. ágúst 2014 LAUGARDAGUR