Fréttablaðið - 09.08.2014, Blaðsíða 86
9. ágúst 2014 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 42TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Ástkær bróðir minn og frændi okkar,
JÓN ÁRNI VILMUNDARSON
loftskeytamaður og fyrrv.
deildarstjóri hjá Landssímanum,
Dunhaga 11,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík
miðvikudaginn 13. ágúst kl. 13.00.
Þórunn Vilmundardóttir
Kolbrún Baldursdóttir Guðmundur Fr. Ottósson
Guðmundur Einarsson Alda Elíasardóttir
Guðmundur B. Salómonsson Svava Benediktsdóttir
önnur frændsystkini og makar.
Móðir okkar,
INGIBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Hæli í Flókadal,
er dáin. Jarðarför verður auglýst síðar.
Einlægar þakkir til starfsfólks Hrafnistu,
Boðaþingi 5-7, fyrir umhyggju þess og
hlýhug í garð hinnar látnu.
Björk, Ásgeir, Ingunn og Helga Ingimundarbörn.
Hjartans þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð, hlýhug og aðstoð við
andlát og útför okkar ástkæra
RAGNARS LEÓSSONAR
Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili,
Akranesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Höfða
fyrir frábæra aðstoð og umönnun.
Fríða Ragnarsdóttir Ásgeir R. Guðmundsson
Kristín Ragnarsdóttir Grettir Hákonarson
Ragna Ragnarsdóttir Helgi Guðnason
Birna Ragnarsdóttir Kristinn Eiríksson
Leó Ragnarsson Halldóra Gylfadóttir
og fjölskyldur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi,
BALDUR SIGURÐSSON
Tunguvegi 32, Reykjavík,
lést á Landspítalanum laugardaginn
2. ágúst. Útför hans fer fram frá Bústaða-
kirkju þriðjudaginn 12. ágúst kl. 13.00.
Matthildur Finnbogadóttir
Hörður Ómar Guðjónsson Eyrún Anna Ívarsdóttir
Þorgerður Baldursdóttir Vilhjálmur Guðbjörnsson
Sigurður Óli Baldursson
Gísli Baldursson Ásta Sólrún Guðmundsdóttir
Kristinn Óskar Baldursson
Heimir Baldursson
Hlín Baldursdóttir Víðir Sigurðsson
Þórdís Baldursdóttir
Vilborg Baldursdóttir
Solveig Baldursdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Hjartanlegar þakkir til allra sem sýndu okkur
og fjölskyldu okkar vináttu og hlýju við
andlát okkar ástkæru
RAGNHILDAR GUNNARSDÓTTUR
Birgir Ottósson
Gunnar Birgisson
Gylfi Birgisson Svandís Kristiansen
Unnur Birgisdóttir
Kjartan Birgisson Halldóra Ingólfsdóttir
Guðlaug Hildur Birgisdóttir Rúnar Einarsson
og fjölskyldur.
Hjartans þakkir til ættingja og vina fyrir
auðsýnda samúð og hlýhug við andlát
og útför okkar elskulegu dóttur, móður,
tengdamóður og ömmu,
HELGU GUÐNADÓTTUR
Innilegt þakklæti til starfsfólks
kvenlækningadeildar Landspítalans fyrir
frábæra umönnun, hlýhug og stuðning.
Júlíana Ragnarsdóttir Guðni Þorsteinsson
Rögnvaldur Bjarnason Oddný Arnarsdóttir
Anna Margrét Bjarnadóttir Þorvarður Tjörvi Ólafsson
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
HULDA HEIÐRÚN EYJÓLFSDÓTTIR
frá Seyðisfirði,
áður til heimilis að Framnesvegi 62,
Reykjavík,
andaðist á dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Grund miðvikudaginn 6. ágúst.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Valgerður Halldórsdóttir Helgi H. Steingrímsson
Sigríður Halldórsdóttir Gylfi Þorkelsson
Óli Friðgeir Halldórsson María Björk Daðadóttir
ömmubörn og langömmubörn.
„Ég las bókina þegar ég var sjö
ára en þá áttaði ég mig náttúrulega
engan veginn á þessum hlutum,“
segir Þórdís Gísladóttir um bók-
ina um Múmínálfana, Pípuhattur
Galdrakarlsins, eftir Tove Jansson
en Þórdís birti nýlega áhugaverða
grein þar sem hún bendir á ýmis
dulin merki um samkynhneigð Jans-
son í bókinni.
„Síðan þegar ég var orðin fullorð-
in komst ég að því að hún var sam-
kynhneigð og bjó með konu frá því
að hún var mjög ung,“ segir Þór-
dís en samkynhneigð var bönnuð í
Finnlandi á þessum
tíma. „Eftir að ég las
ævisögu hennar
eftir Boel West-
in þá fór ég að
pæla meira
og meira í
þessu,“ lýsir
Þórdís.
„Það
eru tvær
persónur í
bókinni sem
heita Þöng-
ull og Þrasi
sem eru svona útlendingar í bókinni
og tala annað tungumál en Múm-
ínálfarnir. Þessar persónur heita
reyndar Tofs lan og Vifslan í upp-
runalegu bókinni á sænsku en það
voru gælunöfn Tove og Vivicu Band-
ler, ástkonu hennar.“
Þórdís segi að í bókinni sé sam-
band Þönguls og Þrasa náið og fal-
legt en þeim er lýst sem sannköll-
uðum jaðarverum, illskiljanlegum
útlendingum, smávöxnum og ótta-
slegnum en þeir báru þunga tösku
með sér hvert sem þeir fóru.
„Það fór ekki mikið fyrir þeim, og
oftast gengu þeir saman um gólf og
héldust í hendur,“ stendur í bókinni.
„Leyndarmálið í töskunni þeirra,
sem afhjúpað er í lokakafla bókar-
innar, er rúbínsteinn á stærð við hlé-
barðahöfuð, tákn sjálfrar ástarinn-
ar,“ segir Þórdís en þar gæti verið
skírskotun í líðan sumra samkyn-
hneigðra sem þurfa að burðast með
sinn eigin rúbínstein. baldvin@365.is
Dulin samkynhneigð
Þórdís Gísladóttir skrifaði grein þar sem hún bendir á að í bók Tove Jansson, Pípuhattur
Galdrakarlsins, megi sjá skírskotanir í samkynhneigð rithöfundarins.
LUNKIÐ LJÓÐSKÁLD þórdís gísladóttir gaf einnig út ljóðabókina velúr fyrir sumarið
„Ég er komin á þennan yndislega stað
þar sem Hallgrímur sleit barnsskón-
um. Kirkjan er lítil en ég vona að gest-
ir og gangandi líti hér inn, staldri við
og hlusti á einhverja kafla. Ég bara
sit og les og stend og les,“ segir Stein-
unn Jóhannesdóttir, stödd að Gröf á
Höfðaströnd. Þar hefur hún upplest-
ur í gömlu torfkirkjunni í dag klukk-
an 14 á Heimanfylgju, skáldsögu sinni
um uppvöxt Hallgríms Péturssonar,
byggða á heimildum um ættfólk hans
og samtíð. Steinunn ætlar að lesa til
klukkan 18 í dag og halda svo áfram
með bókina til enda á næstu fimm
dögum en vera þá í Auðunarstofu á
Hólum frá 16 til 18 og 20 til 22. „Það
er smá átak að gera þetta en það verð-
ur skemmtilegt og ég hlakka til,“ segir
hún sannfærandi. Spurð hvort enginn
leysi hana af svarar hún: „Jú, Einar
minn tekur kafla og kafla,“ og á þar
við eiginmann sinn, Einar Karl Har-
aldsson. „Ég þarf að komast út að næra
mig og pissa og kannski hrista mig til
hita!“
Upplestur Steinunnar er í aðdrag-
anda Hólahátíðar sem haldin verð-
ur um næstu helgi og er tileinkuð
bernsku- og æskuárum Hallgríms í
Skagafirði, í tilefni þess að 400 ár eru
liðin frá fæðingu hans. „Mig lang-
ar að gefa Skagfirðingum og ferða-
löngum færi á að kynnast Hallgrími
aðeins sem barni og unglingi og átta
sig á við hvaða skilyrði hann ólst upp,
hvað hann tók sér fyrir hendur og
hvað var að gerast í kringum hann.
Eftir að hann flutti til Hóla upplifði
hann mikla átakatíma bæði í einkalífi
og í sam félaginu,“ segir Steinunn og
tekur fram að aðgangur að lestrinum
sé ókeypis og frjáls. gun@frettabladid.is
Á heimaslóð Hallgríms
Steinunn Jóhannesdóttir rithöfundur byrjar upplestur á bók sinni Heimanfylgju, skáld-
sögu um uppvöxt Hallgríms Péturssonar, í Grafarkirkju á Höfðaströnd í dag. Hún heldur
áfram með bókina næstu daga heima á Hólum. Lesturinn er upptaktur að Hólahátíð.
VIÐ GRAFARKIRKJU „Mig langar að gefa Skagfirðingum og ferðalöngum færi á að kynnast
Hallgrími sem barni og unglingi,“ segir Steinunn.