Fréttablaðið - 09.08.2014, Blaðsíða 24
9. ágúst 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 24
ÞRIÐJUDAG R
Kalkúnsbringa
og skinka
MÁNUDAG R
Sterkur ítalskur
MIÐVIKUDAG R
Pizzabátur
FIMMTUDAG R
Skinkubátur
G
ild
ir
ei
ng
ön
gu
fy
rir
6
to
m
m
u
bá
t.
G
ild
ir
ek
ki
m
eð
ö
ðr
um
ti
lb
oð
um
e
ða
a
fs
la
tt
ar
kj
ör
um
.
BÁTUR
DAGSINS
Subway kynnir
bát dagsins.
7 mismunandi bátar alla daga
vikunnar, allan ágúst á 549 kr.
ar heldur meira bara þekkingar-
leysi og svo auðvitað þessi ægilega
forvitni, að fá að vita hvernig hann
varð til. Maður fær stundum alveg
nóg af henni.“
Hilmar: „Þeir sem hafa fordóma
eða einhverja andúð fara strax í
stellingar: Ha? Tvær mæður? Bíddu,
er það ekki líffræðilega ómögulegt?
Og eru þar með að gengisfella hug-
takið foreldri. Þegar ég tók við for-
mennsku í samtökunum ’78 fór ég í
viðtal við DV þar sem ég kom inn á
þetta og þar var mikið kommenterað
um að þetta væri nú eitthvað skrítið
og þyrfti að útskýra betur. Ég við-
urkenni að stundum pirrast maður
en ég hef ákveðið að setja sjálfan
mig í það hlutverk að fræða frekar
en pirr ast, það er bara þegar þetta
verður persónulegt sem maður verð-
ur þreyttur á þessu. Einhver Face-
book-vinkona mín sem ég þekki
varla nokkuð vatt sér til dæmis að
mér úti á götu og spurði hvernig
við hefðum gert þetta. Þessi fram-
hleypni getur orðið alveg ótrúleg.“
Sigga: „Algengustu viðbrögðin
eru samt: Vá, hvað hann er ríkur!“
Fjölskyldur eru alls konar
Hilmar er alþjóðafulltrúi hjá
Reykjavíkurborg og formaður Sam-
takanna ’78 og Sigga Birna er fjöl-
skyldu- og leiklistarmeðferðarfræð-
ingur og kennari að mennt, kennir
leiklist við Hagaskóla, er ráðgjafi
hjá Samtökunum ´78 og sjálfstætt
starfandi meðferðarfræðingur.
Faye er ensk og þær Sigga Birna
eiga heimili bæði á Íslandi og Eng-
landi auk þess að dveljast öll sumur
á Grikklandi þar sem Faye sinnir
ferðaþjónustu. Kári Valur á því í
raun fjögur heimili í þremur lönd-
um og er orðinn ansi ferðavanur
því hann hefur farið fjórtán sinn-
um í flug á sinni fimmtán mán-
aða ævi. Foreldrar hans segjast
enda vera miklar flökkukindur og
sammála um að tilkoma hans eigi
ekki að breyta neinu um það. Sigga:
„Það skýrist auðvitað að hluta til af
því að önnur móðir hans er erlend
og hann á stóra fjölskyldu á Eng-
landi líka. Svo er samfélagið sem
við búum í á Grikklandi eins og ein
stór fjölskylda. Auk þess á hann fjöl-
skyldumeðlimi og ættingja út um
allt Ísland, bæði blóðskylda og ekki
skylda. Fjölskylda er nefnilega ekk-
ert endilega bara þeir sem eru blóð-
skyldir, það er misskilningur.“
Hilmar: „Aðalatriðið er auðvi-
tað að barnið fái ást og umhyggju.
Fjölskyldumynstur er algjört auka-
atriði.“
Sigga: „Það er ekki til nein rétt
tegund af fjölskyldu. Fólk sem vinn-
ur í skólakerfinu þekkir það að vera
með tíu börn og engin tvö eiga eins
fjölskyldu.“
Ekki sjálfstæðismaður!
Í allri þeirri umræðu sem átt hefur
sér stað um ættleiðingar sam-
kynhneigðra hefur oft verið velt
upp þeirri spurningu hvort sam-
kynhneigð sé genetísk. Hilmar og
Sigga Birna eru sammála um að sú
umræða sé orðin ansi þreytt, enda
sé ekkert sem bendi til þess að börn
sem eiga eða alast upp hjá samkyn-
hneigðum foreldrum séu frekar
samkynhneigð en önnur börn.“
Hilmar: „Þessi umræða er mjög
viðkvæm, aðallega vegna þess að
hún er notuð af mörgum til að sanna
tilvistarrétt sinn. En mér persónu-
lega finnst þetta frekar óáhugaverð
umræða og þessi spurning ekki
GLEÐI OG GAMAN Það er aldrei lognmolla í kringum fjörkálfinn Kára Val, foreldrunum til óblandinnar ánægju.
FRÉTTBLAÐIÐ/DANÍEL
Sigga: „Ég hef eiginlega
meiri áhyggjur af því að
hann verði sjálfstæðis-
maður!“
Hilmar: „Minn stærsti
ótti í þessu sambandi er að
hann verði fótboltamaður.“