Fréttablaðið - 09.08.2014, Side 45

Fréttablaðið - 09.08.2014, Side 45
| ATVINNA | LÖGFRÆÐINGUR Capacent Ráðningar Capacent Ráðningar Ármúla 13 // Hvannavöllum 14 Sími 540 1000 ÁRNASON FAKTOR óskar eftir að ráða lögfræðing til starfa. Leitað er að kraftmiklum og metnaðarfullum einstaklingi sem hefur áhuga á að vinna í sterku teymi starfsmanna fyrirtækisins. Starfssvið: • Almenn ráðgjöf á sviði hugverkaréttar og þá sérstaklega á sviði vörumerkja, hönnunar, léna og einkaleyfa. Almenn ráðgjöf hvað varðar önnur auðkenni og hugverk í atvinnustarfsemi • Almennt utanumhald, rekstur og vernd á framangreindum réttindum • Önnur lögfræðileg vinna, svo sem samningagerð, er tengist vernd hugverka Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólagráða í lögfræði, cand.jur. eða meistaragráða (5 ára nám í lögfræði áskilið) • Áhugi og þekking á hugverkarétti æskileg og þá sérstaklega hugverkarétti á sviði iðnaðar • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti, mjög góð íslensku- og enskukunnátta • Samskiptafærni og geta til að starfa í teymi • Skipulagshæfileikar, samviskusemi, sjálfstæði og áreiðanleiki Umsóknarfrestur er til og með 20. ágúst nk. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Capacent Ráðninga, www.capacent.is. Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Nánari upplýsingar veita Helga Jónsdóttir (helga.jonsdottir@capacent.is) og Erik Christianson Chaillot (erik.chaillot@capacent.is) hjá Capacent Ráðningum. Árnason Faktor sérhæfir sig í ráðgjöf um vernd hugverka með sérstaka áherslu á þjónustu við íslenskt atvinnulíf. Starfsfólk okkar hefur áratuga reynslu á sviði hugverkaréttar og leggjum við mikla áherslu á þjálfun og þekkingaruppbyggingu starfsmanna til hagsbóta fyrir viðskiptavini okkar. Starfsmenn félagsins hafa menntun og reynslu á sviði laga, tækni, raun- og hugvísinda. SVIÐSSTJÓRI FJÁRMÁLA- OG ÞJÓNUSTUSVIÐS Capacent Ráðningar Capacent Ráðningar Ármúla 13 // Hvannavöllum 14 Sími 540 1000 Norðurorka hf. leitar að framsæknum einstaklingi í stöðu sviðsstjóra fjármála- og þjónustusviðs. Staðan heyrir undir forstjóra og á sviðsstjóri sæti í framkvæmdaráði fyrirtækisins. Sviðsstjóri er ábyrgður fyrir fjármálum, bókhaldi, rekstri almennra tölvukerfa, rekstri þjónustuvers, birgðahaldi og fasteignaumsýslu. Í framkvæmdaráði eiga sæti 4 aðilar, allt karlmenn. Konur eru sérstaklega hvattar til að sækja um starfið. Norðurorka hf. rekur rafveitu og fráveitu á Akureyri, hitaveitu og vatnsveitu á Akureyri, Hrísey, Eyjafjarðarsveit og á Svalbarðsströnd. Þá rekur Norðurorka hf. hitaveitu á Ólafsfirði, Grenivík og í Hörgársveit og Fnjóskadal. Norðurorka hf. annast einnig fjárreiður og bókhald fyrir dóttur- og hlutdeildarfélög m.a. Fallorku ehf. sem framleiðir raforku og er að fullu í eigu Norðurorku hf. Starfs- og ábyrgðarsvið: • Ábyrgð á daglegri fjármálastjórn, bókhaldi og fjárreiðum • Undirbúningur, gerð og eftirfylgni fjárhagsáætlana • Ábyrgð á árshlutareikningi og ársuppgjöri • Greining gagna og verkefnastjórnun • Rekstur almennra upplýsingakerfa • Þátttaka og frumkvæði að umbótastarfi • Önnur verkefni eftir ákvörðun yfirmanns Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólapróf í viðskiptafræðum, framhaldsmenntun æskileg • Reynsla af áætlanagerð og fjármálastjórn • Víðtæk fjármálaþekking • Ögun og skipulag í vinnubrögðum • Yfirburðahæfni í mannlegum samskiptum • Metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum Umsóknarfrestur er til og með 24. ágúst nk. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Capacent Ráðninga, www.capacent.is. Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Nánari upplýsingar veita Þóra Pétursdóttir (thora.petursdottir@capacent.is) og Helga Jónsdóttir (helga.jonsdottir@capacent.is) hjá Capacent Ráðningum. Meginhlutverk Norðurorku hf. er að þjónusta heimili og atvinnulíf með vinnslu og dreifingu á heitu vatni og neysluvatni og rekstri dreifikerfis raforku og fráveitu. Norðurorka hf. starfar samkvæmt vottuðu gæðakerfi ISO 9001. LAUGARDAGUR 9. ágúst 2014 3
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.