Fréttablaðið - 09.08.2014, Page 92

Fréttablaðið - 09.08.2014, Page 92
9. ágúst 2014 LAUGARDAGUR| MENNING | 48 „Þetta er nokkurs konar framhald af ótrúlega vel heppnuðum tónleik- um í fyrra, það gekk svo vel og því ákveðið að gera þetta aftur,“ segir tónlistarmaðurinn Friðrik Ómar Hjörleifsson en hann kemur fram á og skipuleggur heljarmikla tón- leika sem fram fara á laugardags- kvöldið á Dalvík. „Það voru um 30 þúsund manns þarna í fyrra, ég lofa mjög flottu sjói,“ segir Frið- rik Ómar. Hann hefur staðið fyrir afskap- lega vel heppnuðum sýningum, sem hafa verið til heiðurs hljómsveitum og tónlistarmönnum á borð við Bee Gees, Elvis Presley, Freddie Merc- ury og Meatloaf svo að fátt eitt sé nefnt og á tónleik unum verða þekktustu og vinsælustu lögin úr þessum sýningum flutt af miklum sönghetjum. Eyþór Ingi Gunnlaugs- son, Matthías Matthíasson, Dagur Sigurðsson, Stefán Jakobsson, Pétur Örn Guðmundsson, Eiríkur Hauksson, Stefanía Svavars dóttir, Erna Hrönn Ólafsdóttir, Heiða Ólafsdóttir, Regína Ósk Óskars- dóttir og Selma Björnsdóttir koma fram auk Friðriks Ómars. Þá verð- ur á sviðinu tíu manna hljómsveit skipuð frábærum hljóðfæraleik- urum. „Þetta verður allt saman frítt í boði Samherja og það verður öllu tjaldað til svo að ekki sé meira sagt,“ segir Friðrik Ómar. Risa- hljóðkerfi, stærsta útisvið lands- ins, stærsti sjónvarpsskjár lands- ins sem er um 50 fermetrar og allur ljósabúnaður sem Exton býður upp á verður notað til þess að gera tón- leikana sem flottasta. „Það er svo gaman að fá svona verkefni, þetta verða líklega stærstu tónleikar sem haldnir hafa verið á Dalvík, ég get ekki beðið,“ segir Friðrik Ómar. - glp Öllu tjaldað til á Dalvík Mikil tónlistarveisla fer fram á Dalvík á laugardagskvöldið þar sem landsþekktir tónlistarmenn stíga á svið og fara um víðan völl. FRÍÐUR FLOKKUR Hér sjáum við hópinn sem kemur fram á stórtónleikum á Dalvík á laugardagskvöldið. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Tónleikar 17.00 Lilja Guðmundsdóttir sópran Hildigunnur Einarsdóttir mezzósópran og Ingileif Bryndís Þórsdóttir píanóleik- ari koma fram í tónleikaröðinni Perlur íslenskra sönglaga í Hörpu. Á efnisskrá eru íslensk sönglög, gömul og ný, auk þess sem sagt er frá tónskáldum og efni og tilurð laga. Tónleikarnir eru í Kaldalóni. 20.00 Kanadíska rokkgoðsögnin Bryan Adams hefur undanfarin ár ferðast einn með gítar um heiminn ásamt píanó- leikara á svokölluðum Bare Bones Tour en í þetta sinn kemur tónlistarmaður- inn fram á Íslandi í Eldborgarsal Hörpu. Miða má nálgast á heimasíðu midi.is. 21.00 Jake Shulman-Ment og Eleonore Weill koma fram í Mengi. Jake er klezmer- fiðluleikari á hæsta mælikvarða og Eleonore er multi-instrumentalisti og gjörningalistamaður. Miðaverð er 2.000 krónur. Sýningar 11.00 Expo-skálinn í Hörpu. 360 gráðu upplifun af íslenskri náttúru. Skálinn verður opinn alla daga frá 10.00 til 18.00 og verður myndin sýnd á hálf- tíma fresti. Aðgangseyrir er kr. 1.500. 13.00 Sýningin S.I.R.K.U.S. er sett saman með yngri börnin í huga en þó ekki á kostnað eldri áhorfenda. Hún er klukkutími og er miðuð við leik- skólaaldur. Sirkus Íslands er staddur með tjaldið sitt Jöklu á Selfossi og er miðaverð 2.500 krónur. 14.00 Þorbjörg Gunnarsdóttir sýningar- stjóri leiðir gesti um sýninguna Svipmyndir eins augnabliks. Ljósmyndir Þorsteins Jósepssonar í Þjóðminjasafni Íslands. Þorsteinn var kunnur rithöf- undur og blaðamaður og ferðaðist víða og hafa ljósmyndir hans mikið heimildagildi vegna þess hve margþætt skráning hans var á landi og lífsháttum. 15.00 Guðmundur Oddur Magnússon, betur þekktur sem Goddur, heldur fyrirlestur í Ketilhúsinu á Akureyri um starfsferil Gísla B. Björnssonar í graf- ískri hönnun síðastliðna fimm áratugi. 16.00 Heima er best er alíslensk sirkus- skemmtun þar sem öll fjölskyldan nýtur þess að horfa á ótrúlega leikni listamanna Sirkuss Íslands. Sirkusinn er staddur með tjaldið sitt Jöklu á Selfossi og er miðaverð 3.000 krónur. 19.00 How to become Icelandic in 60 minutes er leiksýning sem leikin er á ensku, samin og flutt af Bjarna Hauki Þórssyni og leikstýrt af Sigurði Sigur- jónssyni. Sýningin er flutt í Hörpu og er miðaverð 4.200 krónur. 20.00 Eftir óralanga bið munu goð- sagnir grínsins í Monty Python stíga á stokk í lifandi uppfærslu á sviði árið 2014. Bíó Paradís sýnir uppfærsluna út ágúst. 20.00 Skinnsemi er kabarettsýning með sirkusívafi þar sem lagt er upp úr fullorðinshúmor og stundum sýnt smá skinn. Sirkus Íslands er staddur með tjaldið sitt Jöklu á Selfossi og er miðaverð 3.500 krónur. 20.00 Verkið Landsliðið á línu er skrif- að og leikið af Arnari Dan Kristjánssyni og er það flutt í Tjarnarbíói. Miðaverð er 2.000 krónur. Íþróttir 19.00 Íslenska karlalandsliðið leikur í undankeppni Evrópumótsins, EuroBasket 2015. Í þetta sinn leikur landslið Íslands á móti Bretlandi og fer leikurinn fram í Laugardalshöll. Miðaverð er 1.500 krónur. Uppákomur 11.30 Regnbogahátíð fjölskyldunnar í Viðey. Viðey tekur vel á móti hinsegin fjölskyldum með frábærri fjölskyldu- dagskrá og regnbogaveitingum. Ferjan siglir frá Skarfabakka í Sundahöfn á klukkustundar fresti frá kl. 11.15 til 17.15. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Tónleikar 14.00 Lokadagur menningarveislunnar á Sólheimum. Ragnar Bjarnason og Þor- geir Ástvaldsson halda tónleika í Sól- heimakirkju. Aðgangur er ókeypis. 15.00 Söngkonan Margrét Eir kemur fram ásamt hljómsveit á sumardjass- tónleikaröð Jómfrúarinnar við Lækjar- götu. Tónleikarnir fara fram utandyra á Jómfrúartorginu og er aðgangur ókeypis. 17.00 Í tilefni hinsegin daga ætlar hljómsveitin Lame Dudes að flytja blúsa í öllum regnbogans litum í Hressógarðinum. Aðgangur ókeypis og litríkur klæðnaður áskilinn. 17.00 Söngkonan Jónína Björt Gunnars dóttir heldur styrktartónleika fyrir nám sitt í New York á Menningar- húsinu Bergi á Dalvík. Frítt er inn á tónleikana en tekið við frjálsum fram- lögum. 21.00 Pönk á Patró í Sjóræningja- húsinu á Patreksfirði í sjötta sinn. Tvær hljómsveitir mæta og pönka í ár og eru það dj flugvél og geimskip og Grísalappalísa. 22.00 Tónlistamennirnir KK og Magnús Eiríksson koma fram á Café Rosenberg. Á tónleikunum spila þeir lög úr laga- safni hvors annars auk sameiginlegra lagasmíða, en þeir hafa gefið út þrjár plötur með eigið efni. Aðgangseyrir er 2.000 krónur. Sýningar 10.00 Á sýningunni Villt hreindýr á Íslandi í Hörpu er hægt að sjá og fræðast um hreindýr og líf þeirra. Aðgangseyrir er 1.900 krónur. 11.00 Expo-skálinn í Hörpu. 360 gráðu upplifun af íslenskri náttúru. Skálinn verður opinn alla daga frá 10.00 til 18.00 og verður myndin sýnd á hálf- tíma fresti. Aðgangseyrir er kr. 1.500. 14.00 Sýningin S.I.R.K.U.S. er sett saman með yngri börnin í huga en þó ekki á kostnað eldri áhorfenda. Hún er klukkutími og er miðuð við leik- skólaaldur. Sirkus Íslands er staddur með tjaldið sitt Jöklu á Selfossi og er miðaverð 2.500 krónur. 15.00 Mireya Samper opnar sýninguna Flæði í efri sölum Listasafns Kópavogs- Gerðarsafns. Á sýningunni eru innsetn- ingar með tví- og þrívíða verkum sem unnin voru á árunum 2013 og 2014. 17.00 Heima er best er alíslensk sirkus- skemmtun. Sirkusinn er staddur með tjaldið sitt Jöklu á Selfossi og er miða- verð 3.000 krónur. Íþróttir 13.00 Fjórða og þar með síðasta umferð Íslandsmótsins í drift á akstursbraut AÍH í Kapelluhrauni í Hafnarfirði. Dansleikir 23.00 Litla Gayballið haldið í fyrsta sinn á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg 8. Tómas Magnús Tómasson og hans kampakátu kunningjar koma fram, ásamt fjölda gesta, en aðgangur er ókeypis. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@ frettabladid.is LAUGARDAGUR SUNNUDAGUR Umsóknarfrestur 1. september Æskulýðs- sjóður Menntaskólinn við Hamrahlíð www.mh.is STÖÐUPRÓF Í ÁGÚST 2014 Stöðupróf á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins verða haldin í Menntaskólanum við Hamrahlíð sem hér segir: Danska/Danish (6 einingar/10 fein*) mán. 18. ágúst kl. 16:00. Enska/English (9 einingar/15 fein*) mán. 18. ágúst kl. 16:00. Franska/French (12 einingar/20 fein*) fim. 14. ágúst kl. 16:00. Ítalska/Italian (12 einingar/20 fein*) fim. 14. ágúst kl. 16:00. Norsk/Norwegian (6 einingar/10 fein*) mán. 18. ágúst kl. 16:00. Spænska/Spanish (12 einingar/20 fein*) fös. 15. ágúst kl. 16:00. Stærðfræði/Mathematics fim. 14. ágúst kl. 16:00. Sænska(Swedish (6 einingar/10 fein*) mán. 18. ágúst kl. 16:00. Þýska/German (12 einingar/20 fein*), fim. 14. ágúst kl. 16:00. *hámarks einingafjöldi sem hægt er að ná, frá og með fyrsta áfanga á framhaldsskólastigi. Rafræn skráning í stöðupróf fer fram á heimasíðu skólans www.mh.is. Frekari upplýsingar á skrifstofu skólans í síma 595-5200. Sýna þarf persónuskilríki með mynd í prófinu. Prófgjald, kr. 8000 fyrir hvert próf, ber að greiða inn á reikning Menntaskólans við Hamrahlíð í banka 323 hb 26 nr 106, kt. 460269-3509. Greiðslufrestur er til hádegis á prófdegi, nauðsynlegt er að fram komi nafn og kennitala próftaka. Réttur til próftöku byggist á að prófgjald hafi verið greitt. PLACEMENT TESTS Placement tests (for Secondary School credit) will be held at Menntaskólinn við Hamrahlíð in the subjects listed above. On-line registration takes place on the school website www.mh.is. For more information call the school office tel. 595-5200 after August 10th. Everyone sitting the test must show an ID with a picture. The fee, kr. 8000 per test, should be paid to the account of the Menntaskólinn við Hamrahlíð bank 323 – 26 – account no. 106, id. 460269-3509 before noon on the day of the test. Please provide the name and identification number of the examinee when paying. Only those that have paid can sit the exam. (stæ103/5 fein, stæ203/5 fein, stæ263/5 fein) Rektor. Nj óttu með v eitingum frá Aal to Bi str o Save the Children á Íslandi
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.