Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.01.2000, Qupperneq 7

Læknablaðið - 15.01.2000, Qupperneq 7
FRÁ RITSTJÓRN Nýtt útlit á aldamótaári Læknablaðið heilsar lesendum sínum á nýju ári með nýtt útlit í farteskinu. Það er vart við því að búast að 85 ára gamalt og virðulegt blað ástundi kollsteypur, hvorki innihalds- né útlits- lega. Unnið hefur verið að útlitsbreytingunni í alllangan tíma og reynt að vanda í hvívetna til verka. Naut Læknablaðið ráðgjafar Guðjóns Sveinbjömssonar prentara við endurhönnun blaðsins. Frá því fyrsta tölublað Læknablaðsins leit dagsins ljós í janúar 1915 hefur mikið vatn runnið til sjávar. Blaðið hefur átt sín ris og hnig eins og við er að búast. Það hefur meira að segja flutt úr landi tímabundið, en á árunum 1980 til 1994 var Læknablaðið prentað í Danmörku hjá útgáfu- fyrirtæki Danska læknafélagsins. Á þeim ámm varð blaðið einnig tvöfalt að hluta til með útgáfu Fréttabréfs lækna sem kom út á árunum 1983- 1994, en sameinaðist Læknablaðinu við heim- flutninginn á miðju ári 1994. Frá árinu 1977 hafa af og til verið gefin út Fylgirit Læknablaðsins er varða einstök afmörkuð málefni eða atburði og eru Fylgiritin orðin alls 38, þá er ógetið ýmissa minni upplýsingabæklinga sem fylgt hafa Lækna- blaðinu. Utgáfan er því orðin talsverð að vöxtum. Megintilgangur Læknablaðsins hefur ætíð verið tvíþættur: fræðilegur og félagslegur. Báðum þáttum hefur verið ætlað að styrkja stöðu læknis- fræðinnar og félagslega og faglega stöðu lækna. Hröð þróun innan læknisfræðinnar hefur endur- speglast á síðum blaðsins og ekki síst ýmis sið- fræðileg vandamál sem siglt hafa í kjölfar tækni- legrar og fræðilegrar framþróunar. Vissulega hefur ýmislegt breyst í áranna rás. Forsíðu fyrsta tölublaðsins, fyrir réttum 85 árum, skrýddi tóbaksauglýsing og mátti reyndar lesa tóbaksauglýsingar í Læknablaðinu allt til ársins 1954. Undanfarin 10 ár eða frá október 1989 hafa myndir af verkum íslenskra listamanna hins veg- ar prýtt forsíðu blaðsins. Vonandi finnst fleirum sem mér þetta vera dæmi um breytingu til batn- aðar. Formið sem Læknablaðið hefur verið í fram til þessa var farið að þrengja mjög að innihaldi blaðsins og gaf lítið sem ekkert færi á útlitslegri tilbreytingu, en með breytingunni nú gefst færi á margbreytilegri framsetningu og frágangi en hingað til. Einstaka nýbreytni er þegar komin á koppinn svo sem umfjöllun um listamann mánað- arins og væntanlega fylgir fleira í kjölfarið. Fastir póstar öðlast meira frelsi í rými svo sem dyggir pistlahöfundar blaðsins og skal þar fremsta nefna Árna Björnsson og Jóhann Heiðar Jóhannsson, sá síðarnefndi á hér sinn 118. íðorðapistil. Með útlitsbreytingunni sem nú lítur dagsins ljós mun Læknablaöinu vonandi takast það ætl- unarverk að verða betra, aðgengilegra og fallegra blað en hingað til og er þá átt við altæka merk- ingu þessara orða. Það er á hinn bóginn öllum hollt að hafa í huga að ekkert blað verður betra en þau sem í það skrifa. Birna Þórðardóttir Frágangur fræðilegra greina Höfundar sendi tvair gerðir handrita lil ritstjórnar Læknablaðsins, Hlíðasmára 8, 200 Kópavogi. Annað án nafna höfunda, stofnana og án þakka sé um þær að ræða. Greininni fylgi yfirlýsing þess efnis að allir höfundar séu lokaformi greinar samþykkir og þeir afsali sér birtingarrétti til blaðsins. Handriti skal skilað með tvöföldu línubili á A-4 blöðum. Hver hluti skal byrja á nýrri blaðsíðu í eftirtalinni röð: • Titilsíða, höfundar, stofn- anir, lykilorð • Ágrip og heiti greinar á ensku • Ágrip á íslensku • Meginmál • Þakkir • Heimildir Töflur og myndir skulu vera á ensku eða íslensku, að vali höfunda. Tölvuunnar mvndir og gröf komi á disklingi ásamt út- prenti. Tölvugögn (data) að baki gröfum fylgi með. Sérstaklega þarf að semja um birtingu litmynda. Eftir lokafrágang berist allar greinar á tölvutæku formi með útprenti. Taka skal fram vinnsluumhverfi. Sjá upplýsingar um frágang fræðilegra greina: http://www.icemed.is/laekna bladid Umræðuhluti Skilafrestur er 20. undan- farandi mánaðar, nema annað sé tekið fram. Læknablaðið 2000/86 7
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.