Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2000, Síða 27

Læknablaðið - 15.01.2000, Síða 27
FRÆÐIGREINAR / GJÖRGÆSLA Alvarlegir höfuðáverkar á gjörgæsludeild Sjúkrahúss Reykjavíkur 1994-1998 Atli Einarsson' Kristinn Sigvaldason' Niels Chr. Nielsen' Bjarni Hannesson2 Ágrip Tilgangur: Höfuðáverkum hefur farið fækkandi á síð- ustu áratugum auk þess sem dánartíðni hefur farið lækkandi. Tilgangur rannsóknarinnar var að athuga hvort slík þróun hefði átt sér stað hér á landi síðastlið- in ár. Efniviður og aðferðir: Farið var yfir tölvuskráningu allra sjúklinga sem lögðust inn á gjörgæsludeild Sjúkra- húss Reykjavíkur vegna höfuðáverka á árunum 1994- 1998. Athugað var hver slysavaldur var auk þess sem ástand sjúklings við komu var kannað. Einnig var leitað eftir hvernig meðferð þeirra var háttað á gjör- gæsludeild og ástand við útskrift. Niðurstöður: Alls lögðust 236 sjúklingar inn á gjör- gæsludeild á tímabilinu sem er að meðaltali 47 sjúk- lingar á ári. Umferðarslys voru algengasta orsök höf- uðáverka eða í 43% tilfella og dánartíðni var 11,7%. Ölvun var samverkandi orsök í mörgum tilfellum þar sem um fall var að ræða, mest árið 1998 eða 75%. Dánartíðni þeirra sem voru greindir með alvarlegustu höfuðáverkana, Glasgow Coma Score (GCS) 8 eða minna, sem voru um 40% sjúklinganna, var miklu hærri eða 24,7% á móti 3,4% ef GCS var yfir 8. Sjúk- lingar sem lögðust inn á árinu 1998 voru með alvar- legri höfuðáverka og meðaltími þeirra sem þurftu að vera í öndunarvél var lengri en árin á undan. Alvktanir: Fjöldi þeirra sem lögðust inn á gjörgæslu- deild vegna höfuðáverka fór lækkandi í samanburði við eldri rannsókn sem gerð var hér á landi. Dánar- tíðni var 11,7% sem er lægri tíðni en meðal nágranna- þjóða okkar en þar er dánartíðni 15-20%. Umtals- verður árangur hefur náðst varðandi meðferð sjúk- linga með alvarlegustu höfuðáverkana (GCS 8 eða minna) þar sem dánartíðni hefur lækkað um helming' miðað við fyrir 20 árum. Ölvun var samverkandi þáttur í mörgum tilfellum þar sem um fall var að ræða auk þess sem það var vaxandi vandamál á tímabilinu. Aukinn fjöldi sjúklinga með alvarlegri áverka á sein- ustu tveim árum bendir til að enn sé þörf á öflugu for- vamarstarfi. Frá ‘svæfínga- og gjörgæslu- deild og 2heila- og taugaskurð- deild Sjúkrahúss Reykjavikur. Fyrirspurnir, bréfaskipti: Kristinn Sigvaldason, svæf- inga- og gjörgæsludeild Sjúkrahúss Reykjavíkur, Foss- vogi, 108 Reykjavík. Sími: 525 1000; netfang: kristsig@shr.is Lykilorð: höfuðáverkar, gjörgœsludeild, slys, innankúpuþrýstingur. Inngangur Talið er að höfuðáverkar séu orsök um þriðjungs allra dauðsfalla vegna slysa (1). Höfðuðáverki er því mjög hættulegt ástand og ber að taka alvarlega. Á síðustu áratugum hafa allir þeir sem hlotið hafa alvarlega höf- uðáverka á Islandi lagst inn á gjörgæsludeild Sjúkra- húss Reykjavíkur til meðferðar og eftirlits. Haldin hefur verið skrá um allar innlagnir frá opnun deildar- innar um 1970 og með því hefur skapast grundvöllur ENGLISH SUMMARY Einarsson A, Sigvaldason K, Nielsen NC, Hannesson B Head injury at Reykjavík Hospital, intensive care unit, 1994-1998 Læknablaðið 2000; 86: 25-9 Objective: Reykjavík Hospital is the main trauma hospital in lceland, receiving all severe head injuries in the country. Incidence of head injury and mortality has been decreas- ing in the last decades. The aim of this study was to ana- lyse data on admission, treatment and outcome of patients admitted to intensive care unit with severe head injury and compare with other countries. Material and methods: In this study we looked retrospec- tively at the incidence of severe head injuries admitted to the intensive care unit at Reykjavik Hospital 1994-1998. Number of patients, type of injury, length of stay, length of ventilator treatment. Glasgow Coma Score (GCS), APACHE II (Acute Physiologic and Chronic Health Evalua- tion) score and mortality was analysed. Results: A total of 236 patients was admitted with an average of 47 patients per year. Traffic accidents were the most common cause of injury and mortality was 11.7%. Ethanol consumption was seen in many cases where fall was the cause of accident, most often in the year 1998 in 75% of cases. Mortality of patients with GCS <8 that was 40% of the patients was must higher or 24.7% compared with patients with GCS >8 where mortality was 3.4%. There was an increase in admissions in 1998, with more severe injuries and significantly longer length of stay and ventilator treatment. •Conclusions: Number of patients with head injury was decreasing in comparison with older studies. The results of treatment are rather good in comparison with other countries with relatively low mortality, or 11.7% versus 15- 20% in nearby countries. There has been improvement of outcome in patients with the most severe head injury (GCS <8) since 20 years ago, where up to 50% of the patients died but in our study mortality was 24.7%. Alcohol con- sumption was seen in 46% of cases where fall was the cause of head injury. Those that suffer head trauma are most often young people and preventive measures must continue with full strength in order to decrease the inci- dence of accidents in our society. Keyword: head injury, intensive care, trauma, intracranial pressure. Correspondence: Kristinn Sigvaldason. E-mail: kristsig® shr.is Læknablaðið 2000/86 25
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.