Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.11.2000, Page 15

Læknablaðið - 15.11.2000, Page 15
FRÆÐIGREINAR / LYFLÆKNINGAR Skjaldkirtilsstarfsemi og tíðni grunn- sjúkdóma hjá sjúklingum með gáttatif Birgir Jóhannsson , Sigurður Ólafsson Uggi Agnarsson Ari Jóhannesson 'Lyflækningadeild Landspítala Fossvogi, lyflækningadeild Sjúkrahúss Akraness, lyflækningadeild Landspítala Hringbraut. Fyrirspumir, bréfaskipti: Sigurður Ólafsson lyflækningadeild Landspítala Fossvogi, 108 Reykjavík. Netfang: sigurdol@shr.is Lykilorð: gáttatif ofstarfsemi í skjaldkirtli, grunnsjúkdómar. Ágrip Tilgangur: Að athuga algengi ofstarfsemi í skjaldkirtli og kanna þekkta grunnsjúkdóma hjá sjúklingum sem leggjast inn á lyflækningadeild og hafa gáttatif (atrial fibrillation). Efniviður og aðferðir: Athugaðir voru sjúklingar á lyflækningadeild. Snið rannsóknarinnar var annars vegar afturskyggnt (1993-1994) og hins vegar framskyggnt (1.4.1995-31.12.1997). í aftur- skyggnum hluta rannsóknarinnar var farið yfir sjúkraskrár allra sem fengið höfðu útskriftar- greininguna gáttatif og aflað upplýsinga um skjaldkirtilspróf. í framskyggna hlutanum var mælt skjaldstýrihormón (thyroid stimulation hormone, TSH), týroxín (T4) og þríjoðótýrónín (T3) í sermi sjúklinga með gáttatif. Þekktir grunnsjúkdómar voru einnig skráðir. Niðurstöðun Eitt hundrað sextíu og sjö sjúk- lingar reyndust hafa gáttatif (58 í afturskyggnum hluta, 109 í framskyggnum hluta). Karlar voru í meirihluta (59,3%) og meðalaldur 73,7 ár (26-100 ára). Fullnægjandi upplýsingar um skjaldkirtilspróf fengust hjá 135 sjúklingum. Skjaldkirtilspróf voru afbrigðileg hjá 24 (17,8 %), þar af 17 konum (71%). Tíu höfðu einangraða hækkun á skjaldstýrihormóni, sjö einangraða lækkun á skjaldstýrihormóni, tveir vanstarfsemi í skjaldkirtli og fimm höfðu önnur afbrigði. Sem grunnsjúkdóm höfðu 76 af 167 háþrýsting (45,5%), 44 krans- æðasjúkdóm (26,3%) og 27 Iokusjúkdóm (16,2%). Hjá 32 (19,2%) var enginn þekktur grunnsjúk- dómur til staðar. Ályktanir: 1) Ofstarfsemi í skjaldkirtli er sjaldgæf hjá sjúklingum sem leggjast inn á lyflækningadeild og hafa gáttatif. Venjubundin mæling á skjaldkirtilshormónum hjá þessum sjúklingahópi er því óþörf. 2) Ósértækar breyt- ingar á skjaldkirtilsprófum eru algengastar, líklega vegna áhrifa sjúkdóma utan skjaldkirtils eða lyfja. 3) Háþrýstingur, kransæðasjúkdómur og sjúk- dómar í hjartalokum eru algengustu grunnsjúk- dómarnir í þessum hópi sjúklinga. Inngangur Gáttatifi (atrial fibrillation) var fyrst lýst á hjartarafriti árið 1909 (1). Allt frá þeim tíma hefur mönnum verið ljóst að um algengan kvilla er að ræða og nú á tímum er gáttatif sú hjartsláttartruflun sem leiðir til flestra innlagna á sjúkrahús (1). íslensk ENGLISH SUMMARY Jóhannsson B, Ólafsson S, Agnarsson U, Jóhannesson A Thyrotoxicosis and coexistent diseases in atrial fibrillation Læknablaðið 2000; 86: 743-7 Objective: To evaluate the prevalence of thyrotoxicosis and coexistent diseases in patients with atrial fibrillation admitted to a general medicine ward. Material and methods: All patients with the discharge diagnosis of atrial fibrillation were studied. The study design was retrospective for the years 1993-1994 and prospective from April 1995 through December 1997. Information on thyroid function tests was obtained from medical records in the retrospective part, but TSH, T4 and T3 were measured for patients admitted during the prospective part. Coexistent diseases were recorded. Results: Atrial fibrillation was diagnosed in 167 patients (58 in the retrospective part and 109 in the prospective part). Males were predominant (59.3%) and the average age was 73.7 years (span 26-100). Adequate information on thyroid function tests was available for 135 patients (58.6% of the retrospective part and 92.7% of the prospective part). 24 (17.8%) had abnormal thyroid function tests, predominantly women (71 %). Ten had an isolated elevation of TSH, seven an isolated depression of TSH, two hypothyroidism and five other abnormalities. Hypertension was the most common coexistent disease (76 of 167 patients (45.5%). Ischemic heart disease was found in 44 (26.3%) and valvular heart disease in 27 (16.2%). No known coexistent disease was found in 32 (19.2%). Conclusions: 1) Thyrotoxicosis is rare in patients with atrial fibrillation who are admitted to a general medicine ward. Routine measurement of thyroid function tests in this patient population is therefore not warrented. 2) Unspecific abnormalities of thyroid function tests are common and are most likely due to diseases outside the thyroid gland or medications. 3) Hypertension, ischemic heart disease and heart valve disease are the most common coexistent diseases in this group of patients. Key words: atrial fibrillation, thyrotoxicosis, coexistent diseases. Correspondence: Sigurður Ólafsson. E-mail: sigurdol@shr.is rannsókn sýndi fram á að 0,28% af einstaklingum á aldrinum 32-64 ára höfðu gáttatif (2), en algengi þess fer hratt vaxandi með hækkandi aldri (3). Gáttatif Læknablaðið 2000/86 743
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.