Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.2000, Síða 60

Læknablaðið - 15.11.2000, Síða 60
UMRÆÐA & FRÉTTIR / A F SJÓNARHÓLI STJÓRNAR Nauðsyn mismunandi rekstrarforma í heilsugæslu Þórir B. Kolbeinsson Höfundur er heilsugæslulæknir að Hellu, formaður Félags íslenskra heimilislækna og á sæti í stjórn LÍ. Sjónarmið þau er fram koma í pistlinum Af sjúnarhúli stjúrnar eru höfundar hverju sinni og ber ekki að taka sem samþykktir stjórnar LÍ. ÞÁ ER GÆSAVEIÐITÍMANUM LOKIÐ, golfvöllurinn að færast í vetrarskrúðann og búið að draga undan hestunum. Vetrarstarfið framundan. Hver segir að ekki geti farið vel um okkur sem enn sitjum á landsbyggðinni þó við þurfum að horfa á eftir börnum okkar og vinum hverfa á höfuðborgar- svæðið? Stundum held ég að við gleymum ánægjunni við að geta stundað læknislistina, fagið sem við sjálf völdum okkur og höfum ánægju af. Vissulega ber meir á gagnrýni í garð lækna í þjóðfélaginu en áður en við verðum að þola það og læra af því. Gagnrýni getur líka verið uppbyggileg. Hins vegar þurfum við að passa að setja baráttu okkar fyrir betri kjörum fram á þann hátt að þær nái eyrum viðsemjanda okkar en séu ekki misskildar á þann veg að starf læknis sé ekki eftirsóknarvert. Kollegar mínir í heimilislæknastétt segja stundum að starf heimilislækna á landsbyggðinni sé einfaldara og afmarkaðra en starfið í þéttbýli. Kannski er hlutverk okkar gegnsærra en eðli þess er það sama. Við heimilislæknar bjóðum samfellu, erum til staðar og fylgjum okkar fólki gegnum súrt og sætt í 25-40 ár á meðan aðrir læknar glíma frekar við tilfallandi eða afmörkuð vandamál. Kannanir sýna, að það að hafa sama lækninn, er það sem fólk leggur höfuðáherslu á í samskiptum við lækni og ég get ekki annað en undrast, þegar það er talið vandamál að fólk sem flytur milli hverfa skuli ekki vilja flytja sig á aðra heilsugæslustöð heldur hafa sama lækninn áfram. Þarna stangast á hagkvæmni heilsugæslustöðva þar sem safnað er saman ýmiss konar þjónustu líkt og á sjúkrahúsum og hagsmunir sjúklingsins sem langar að hafa sama lækninn. Undanfarið hefur komið fram að óánægja er með aðgengi að heimilislæknum á höfuðborgarsvæðinu. Yfirvöld ýja að því að heimilislæknar fari sér hægar en áður vegna breyttra kjarasamninga en heimilis- læknar hafa bent á mikla fólksfjölgun og að uppbygg- ing heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu hafi verið látin sitja á hakanum. Fjöldi heimilislækna í Reykjavík takmarkast af fjölda stöðugilda heilsugæslulækna á heilsugæslustöðvum og samningi heimilislækna utan heilsugæslustöðva, sem reyndar hefur ekki verið bætt inn á í mörg ár. Tryggingastofnun ríkisins hefur neitað að gera samning um stofurekstur við sérfræð- inga í heimilislækningum eins og tíðkast hjá öðrum sérgreinalæknum. Hvers vegna? Vissulega var það framfaraspor að koma á fót heilsugæslustöðvum. Hins vegar virðast menn ekki átta sig á því að jafnframt fóru að koma sérmenntaðir heimilislæknar. Þessir læknar eru sérmenntaðir til að sinna því, sem kallað hefur verið á ensku primary care, með sambærilegt nám hvað tíma og innihald varðar og aðrir sérgreinalæknar. Hví skyldu sérfræð- ingar í heimilislækningum ekki geta opnað sjálf- stæðar læknastofur við hlið heilsugæslustöðva eins og aðrir sérgreinalæknar opna stofur við hlið sjúkrahúsa og göngudeilda? Hver er munurinn? Varla halda menn að fagleg vinnubrögð læknisins séu önnur á stofu en á heilsugæslustöð? Félag íslenskra heimilislækna kærði fyrir Sam- keppnisstofnun þá mismunun að sérfræðingar í heimilislækningum gætu ekki fengið samning við TR. Urskurður stofnunarinnar var á þá leið að fjórir af fimm nefndarmönnum töldu ekki ástæðu til að aðhafast neitt en sá fimmti taldi að þetta væri mismunun. Við áfrýjun málsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála var þessi úrskurður staðfestur og talið að heimilislæknar og aðrir sérgreinalæknar störfuðu ekki á sama samkeppnismarkaði, þar sem löggjafinn ætlaðist ekki til að aðrir sérgreinalæknar væru að sinna því sem kallað er almennar lækningar. Það liggur nú fyrir FÍH að taka ákvörðun um viðbrögð við þessum úrskurði. Aðalfundir FÍH og Læknafélags Islands hafa ályktað að æskilegt sé að til séu mismunandi rekstrarform og að þeir styðji að sérfræðingar í heimilislækningum eigi kost á stofurekstri. Ríkisvaldið virðist ekki sama sinnis. Skyldi eitthvað af vanda heilsugæslunnar tengjast þessu? 786 Læknablaðið 2000/86
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.