Læknablaðið - 15.11.2000, Side 70
UMRÆÐA & FRÉTTIR / SAMNINGUR LÍ OG LYFJAFYRIRTÆKJA
Samskipti lækna og lyfjafyrirtækja
Samningur milli Læknafélags íslands og Samtaka verslunarinnar
Læknafélag Íslands og Samtök verslun-
arinnar f.h. lyfjafyrirtækja, gera með sér
svofelldan samning um samstarf lækna og
fyrirtækja, sem framleiða og flytja inn lyf:
Markmið
1. gr.
Samskipti lækna og lyfjafyrirtækja eru
nauðsynlegur þáttur í þróun sífellt betri
lyfjameðferðar við sjúkdómum og í fræðslu
lækna á meðferð með lyfjum. Læknar og
lyfjafyrirtæki hafa gagnkvæma hagsmuni af
samskiptum sín á milli að því markmiði að
bæta meðferð sjúkdóma og líðan sjúklinga.
Læknafélag íslands og Samtök verslunar-
innar f.h. lyfjafyrirtækja eru sammála um, að
samskiptum lækna og lyfjafyrirtækja skuli
þannig háttað hverju sinni, að hvor aðili sé
hinum óháður í einu og öllu.
Hafa Læknafélag íslands og Samtök
verslunarinnar, f.h. lyfjafyrirtækja samið
eftirfarandi reglur til að stuðla að sjálfstæði
lækna og lyfjafyrirtækja í samskiptum sín á
milli.
Fræðsla og kynningar
2. gr.
Markmið lyfjakynninga lyfjafyrirtækja er
að fræða lækna um ný lyf og notkun lyfja.
Lyfjakynningar skulu að jafnaði fara fram á
vinnustað lækna. Fræðslan skal vera
samkvæmt fyrirfram skipulagðri dagskrá.
Hún skal vera hlutlæg, nákvæm og sönn og í
samræmi við lög og almennt siðferði. Þar
skal veitingum mjög stillt í hóf.
3. gr.
Fræðslufundir fyrir lækna, sem haldnir
eru á vegum lyfjafyrirtækja, skulu skipu-
lagðir fyrirfram í samráði við lækni(a).
Læknar ákveða sjálfir form og efni
fyrirlestra, sem þeir flytja á þeim fundum. í
dagskrá þeirra funda skal greinilega skilja
hinn faglega þátt lækna frá þætti auglýsinga
og kynninga lyfjafyrirtækja á lyfjum.
Eðlilegt er, að læknar, sem flytja erindi á
fundum á vegum lyfjafyrirtækja, fái greitt
sanngjarnt endurgjald fyrir vinnuframlag sitt
og útlagðan kostnað. Efni frá fundum skal
gefið út í samráði lækna og lyfjafyrirtækja,
svo tryggja megi, að það gefi rétta mynd af
framsettu efni.
Styrki lyfjafýrirtæki fundi, námskeið eða
málþing, sem haldin eru á vegum lækna eða
fundi, námskeið og málþing, sem læknar
taka þátt í, skal þess getið í fundarboði og í
upphafi viðkomandi fundar.
A fundum, námskeiðum og málþingum,
sem læknar halda fyrir lækna, er heimilt að
gefa lyfjafyrirtækjum kost á að auglýsa
framleiðslu sína og þjónustu með samningi
gegn gjaldi.
4. gr.
Læknir(ar) getur þegið styrki frá
lyfjafyrirtækjum til að sækja fræðslufundi
erlendis sem þjóna eðlilegum markmiðum
viðhalds- og endurmenntunar lækna um lyf
og notkun lyfja. Eðlilegt er að útlagður
kostnaður læknis sé greiddur vegna ferða og
gistingar. Sá kostnaður skal almennt vera
hóflegur. Ekki er við hæfi að bjóða eða
þiggja ferðir, sem hafa að höfuðmarkmiði að
koma framleiðslu lyfjafyrirtækjanna á
framfæri. Ekki er við hæfi að greiddur sé
kostnaður maka eða annarra ferðafélaga
lækna í slíkum ferðum.
Rannsóknarsamstarf
5. gr.
Eðlilegt er að læknar og lyfjafyrirtæki
hafi með sér rannsóknarsamstarf við
lyfjarannsóknir. í því samstarfi ber að virða
gildandi lög og reglur, Helsinkiyfirlýsinguna
frá 1964 með síðari breytingum og reglur um
„Good Clinical Practice". Þá skulu aðilar í
byrjun gera skriflegan samning, sem kveður
á um hlutverk læknisins í rannsókninni og
vinnuframlag hans. í rannsóknarsamstarfi
er lækni(um) heimilt að gera samning við
lyfjafyrirtæki um sanngjarna þóknun fyrir
vinnuframlag og útlagðan kostnað. Einnig
skal í samningi um rannsóknarsamstarf
kveðið á um hvernig nota eigi niðurstöður
viðkomandi rannsóknar(a).
Önnur samskipti
6. gr.
Læknar geta tekið þátt í eða séð um að
útbúa fræðsluefni fyrir lyfjafyrirtæki enda sé
höfundar getið á útgáfunni.
Læknar geta tekið að sér ráðgjafarstörf
með samningi við lyfjafyrirtæki.
7. gr.
Ávallt skal getið um störf og ráðgjöf
lækna í þágu lyfjafyrirtækja er þeir fjalla í
máli eða á prenti um málefni er tengjast
lyfjafyrirtækjum.
8. gr.
Lyfjakynnar mega ekki bjóða læknum fé
eða gjafir gegn viðtali og læknar mega ekki
fara fram á slíkt.
9. gr.
Samningur þessi tekur gildi þegar hann
hefur verið samþykktur á aðalfundi
Læknafélags íslands og af Lyfjahópi Sam-
taka verslunarinnar og tilkynning þar um
hefur borist samningsaðila skriflega. Hann
skal endurskoðaður fyrir 1. janúar 2003.
Samningur þessi var samþykktur á
aðalfundi Læknafélags íslands á ísafirði 26.
ágúst 2000 og á félagsfundi í lyfjahópi
Samtaka verslunarinnar hinn 14. september
2000.
Kópavogi 19. október 2000
F.h. Lœknafélags íslands
Sigurbjörn Sveinsson (sign)
F.h. Lyfjahóps Samtaka verslunarinnar
Guðbjörg Alferðsdóttir (sign)
794 Læknablaðið 2000/86