Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.11.2000, Page 70

Læknablaðið - 15.11.2000, Page 70
UMRÆÐA & FRÉTTIR / SAMNINGUR LÍ OG LYFJAFYRIRTÆKJA Samskipti lækna og lyfjafyrirtækja Samningur milli Læknafélags íslands og Samtaka verslunarinnar Læknafélag Íslands og Samtök verslun- arinnar f.h. lyfjafyrirtækja, gera með sér svofelldan samning um samstarf lækna og fyrirtækja, sem framleiða og flytja inn lyf: Markmið 1. gr. Samskipti lækna og lyfjafyrirtækja eru nauðsynlegur þáttur í þróun sífellt betri lyfjameðferðar við sjúkdómum og í fræðslu lækna á meðferð með lyfjum. Læknar og lyfjafyrirtæki hafa gagnkvæma hagsmuni af samskiptum sín á milli að því markmiði að bæta meðferð sjúkdóma og líðan sjúklinga. Læknafélag íslands og Samtök verslunar- innar f.h. lyfjafyrirtækja eru sammála um, að samskiptum lækna og lyfjafyrirtækja skuli þannig háttað hverju sinni, að hvor aðili sé hinum óháður í einu og öllu. Hafa Læknafélag íslands og Samtök verslunarinnar, f.h. lyfjafyrirtækja samið eftirfarandi reglur til að stuðla að sjálfstæði lækna og lyfjafyrirtækja í samskiptum sín á milli. Fræðsla og kynningar 2. gr. Markmið lyfjakynninga lyfjafyrirtækja er að fræða lækna um ný lyf og notkun lyfja. Lyfjakynningar skulu að jafnaði fara fram á vinnustað lækna. Fræðslan skal vera samkvæmt fyrirfram skipulagðri dagskrá. Hún skal vera hlutlæg, nákvæm og sönn og í samræmi við lög og almennt siðferði. Þar skal veitingum mjög stillt í hóf. 3. gr. Fræðslufundir fyrir lækna, sem haldnir eru á vegum lyfjafyrirtækja, skulu skipu- lagðir fyrirfram í samráði við lækni(a). Læknar ákveða sjálfir form og efni fyrirlestra, sem þeir flytja á þeim fundum. í dagskrá þeirra funda skal greinilega skilja hinn faglega þátt lækna frá þætti auglýsinga og kynninga lyfjafyrirtækja á lyfjum. Eðlilegt er, að læknar, sem flytja erindi á fundum á vegum lyfjafyrirtækja, fái greitt sanngjarnt endurgjald fyrir vinnuframlag sitt og útlagðan kostnað. Efni frá fundum skal gefið út í samráði lækna og lyfjafyrirtækja, svo tryggja megi, að það gefi rétta mynd af framsettu efni. Styrki lyfjafýrirtæki fundi, námskeið eða málþing, sem haldin eru á vegum lækna eða fundi, námskeið og málþing, sem læknar taka þátt í, skal þess getið í fundarboði og í upphafi viðkomandi fundar. A fundum, námskeiðum og málþingum, sem læknar halda fyrir lækna, er heimilt að gefa lyfjafyrirtækjum kost á að auglýsa framleiðslu sína og þjónustu með samningi gegn gjaldi. 4. gr. Læknir(ar) getur þegið styrki frá lyfjafyrirtækjum til að sækja fræðslufundi erlendis sem þjóna eðlilegum markmiðum viðhalds- og endurmenntunar lækna um lyf og notkun lyfja. Eðlilegt er að útlagður kostnaður læknis sé greiddur vegna ferða og gistingar. Sá kostnaður skal almennt vera hóflegur. Ekki er við hæfi að bjóða eða þiggja ferðir, sem hafa að höfuðmarkmiði að koma framleiðslu lyfjafyrirtækjanna á framfæri. Ekki er við hæfi að greiddur sé kostnaður maka eða annarra ferðafélaga lækna í slíkum ferðum. Rannsóknarsamstarf 5. gr. Eðlilegt er að læknar og lyfjafyrirtæki hafi með sér rannsóknarsamstarf við lyfjarannsóknir. í því samstarfi ber að virða gildandi lög og reglur, Helsinkiyfirlýsinguna frá 1964 með síðari breytingum og reglur um „Good Clinical Practice". Þá skulu aðilar í byrjun gera skriflegan samning, sem kveður á um hlutverk læknisins í rannsókninni og vinnuframlag hans. í rannsóknarsamstarfi er lækni(um) heimilt að gera samning við lyfjafyrirtæki um sanngjarna þóknun fyrir vinnuframlag og útlagðan kostnað. Einnig skal í samningi um rannsóknarsamstarf kveðið á um hvernig nota eigi niðurstöður viðkomandi rannsóknar(a). Önnur samskipti 6. gr. Læknar geta tekið þátt í eða séð um að útbúa fræðsluefni fyrir lyfjafyrirtæki enda sé höfundar getið á útgáfunni. Læknar geta tekið að sér ráðgjafarstörf með samningi við lyfjafyrirtæki. 7. gr. Ávallt skal getið um störf og ráðgjöf lækna í þágu lyfjafyrirtækja er þeir fjalla í máli eða á prenti um málefni er tengjast lyfjafyrirtækjum. 8. gr. Lyfjakynnar mega ekki bjóða læknum fé eða gjafir gegn viðtali og læknar mega ekki fara fram á slíkt. 9. gr. Samningur þessi tekur gildi þegar hann hefur verið samþykktur á aðalfundi Læknafélags íslands og af Lyfjahópi Sam- taka verslunarinnar og tilkynning þar um hefur borist samningsaðila skriflega. Hann skal endurskoðaður fyrir 1. janúar 2003. Samningur þessi var samþykktur á aðalfundi Læknafélags íslands á ísafirði 26. ágúst 2000 og á félagsfundi í lyfjahópi Samtaka verslunarinnar hinn 14. september 2000. Kópavogi 19. október 2000 F.h. Lœknafélags íslands Sigurbjörn Sveinsson (sign) F.h. Lyfjahóps Samtaka verslunarinnar Guðbjörg Alferðsdóttir (sign) 794 Læknablaðið 2000/86
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.