Læknablaðið - 15.11.2000, Blaðsíða 79
UMRÆÐA & FRÉTTIR / SJÚKLINGATRYGGING
USTAHM'lt)
í REYKJAVIK
31. mai'—J“ Ainl 1986 V
Vilborg P. Hauksdóttir. það frekar. Þannig eru það þeir sem eru sjálfstætt
starfandi heilbrigðisstarfsmenn og stofnanir sem ekki
eru í eigu ríkisins sem er skylt að kaupa sér vá-
tryggingu.“
Reglugerðir og kynning
I ráðuneytinu hefur að undanförnu verið unnið
hörðum höndum að því að semja tvær reglugerðir
sem kveða nánar á um framkvæmd laganna. Annars
vegar er það reglugerð samkvæmt 10. grein laganna
sem undirrituð var 13. október síðastliðinn. Þar er
meðal annars kveðið á um lágmark vátryggingar-
fjárhæðar innan hvers árs og framkvæmd vá-
tryggingarskyldu. Hins vegar er það reglugerð
samvkæmt 14. grein laganna þar sem kveðið er á um
starfsemi og málsmeðferð sjúklingatryggingar Trygg-
ingastofnunar ríkisins. Auk þess er ráðuneytið að
beita sér fyrir kynningu á lögunum. Því liggur beint
við að spyrja næst um reglugerðirnar.
„Eins og ég hef greint frá þá var fyrri reglugerðin
undirrituð af ráðherra 13. október síðastliðinn en hún
fjallar um vátryggingar þeirra sem veita heilbrigðis-
þjónustu. Við undirbúning reglugerðarinnar var haft
samband við þá aðila sem mest koma að
framkvæmdinni, það er tryggingfélögin, og Lækna-
félagið. Undirbúningur að síðari reglugerðinni um
starfsemi og málsmeðferð Tryggingastofnunar ríkis-
ins er hafinn en stefnt er að því að þeirri vinnu verði
lokið í þessum mánuði. Reglugerðardrögin eru
unnin í samvinnu við Tryggingastofnun þar sem
mikilvægt er að stofnunin komi sínum sjónarmiðum
að.“
Ábyrgð án sakar
Hvernig ertt íslensku lögin samanborið við lög
annarra landa?
„Sjúklingatrygging er sérnorrænt fyrirbrigði. Það
var alltaf ætlunin að við fylgdum fordæmi hinna
Norðurlandanna enda hefur reynsla þeirra af sjúk-
lingatryggingu verið mjög góð. Okkar lög eru um
margt lík lögum á hinum Norðurlöndunum, einkum í
Danmörku, en þó göngum við skrefi lengra en Danir
og förum að ráði Finna og Svía með því að láta lögin
einnig ná til einkarekinnar heilbrigðisþjónustu, til
dæmis sjálfstætt starfandi lækna. í Danmörku taka
lögin aðeins til opinberrar heilbrigðisþjónustu. Ég
var í ágústmánuði síðastliðnum á ráðstefnu í Finn-
landi þar sem sjúklingatrygging á Norðurlöndunum
var kynnt því hún þykir mjög sérstök. Bretar hafa
verið að velta sjúklingaryggingum fyrir sér en það
mál er enn í skoðun hjá þeim.
Bandaríkjamennirnir á ráðstefnunni sýndu
sjúklingatryggingunni mikinn áhuga þrátt fyrir að
kerfið hjá þeim sé gerólíkt norræna kerfinu. Þeir voru
meðal annars að velta því fyrir sér hvort
bótafjárhæðirnar væru ekki allt of lágar, en þá var
þeim bent á að sjúklingar á Norðurlöndum þurfi ekki
að leggja sérstaklega út fyrir kostnaði af
sjúkrahúsþjónustu og annarri læknisþjónustu. Það
skýrði ef til vill lægri bótafjárhæð. Reynsla
Norðurlandanna hefur verið sú að dómsmálum hefur
fækkað verulega enda er þetta greiðari leið fyrir
sjúkling til að fá bætur. Ekki er verið að leita að
sökudólgi samkvæmt lögunum þar sem þau ganga út
frá ábyrgð án sakar. í Svíþjóð eru til að mynda aðeins
10-15 dómsmál á ári sem þeir telja mjög lítið.
Umfjöllun um dómsmál er mjög neikvæð og
sjúklingatrygging er því talin mun betri kostur. Með
þessum lögum er tryggt að ef fólk á rétt á bótum geti
það fengið þær án þess að þurfa að vera að togast á
um þær fyrir dómstólum.“
Fylgjumst með reynslu hinna Norðurlandanna
Nú hefur verið haft á orði að kröfum kunni að fjölga í
kjölfar laganna. liver er þín skoðun á því?
„Ég er ekki viss um að þeim fjölgi umfram það
sem reiknað var með samkvæmt lögunum. Þetta er
víðtækari trygging, mun víðtækari en sjúklinga-
trygging samkvæmt Karvelslögunum sem gildir í dag,
og auðveldara er að sækja rétt sinn heldur en ef fara
þarf fyrir dómstóla. Það má vel vera að lögin verði til
þess að fólk sendi frekar inn umsókn um bætur og láti
reyna á þau.
Við lítum talsvert til framkvæmdarinnar í
Danmörku en þar er komin átta ára reynsla á lögin.
Þar var þróunin sú að fyrstu árin voru umsóknir
talsvert fleiri en afgreidd mál en eftir sex ár virðist
vera komið á jafnvægi. Það kom líka í ljós að málum
fjölgaði á hverju ári fyrstu fimm árin en nú virðist sem
þeim sé hætt að fjölga. Við gerum ráð fyrir svipaðri
þróun hér á landi. Danir gefa út ársskýrslur um
framkvæmd laganna og þar eru birt ágrip úrskurða.
Það tel ég mjög til fyrirmyndar og geri ráð fyrir að
Tryggingastofnun ríkisins byggi ársskýrslu sína um
Læknablaðið 2000/86 801