Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.11.2000, Qupperneq 83

Læknablaðið - 15.11.2000, Qupperneq 83
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÍÐORÐASAFN LÆKNA 127 Leynikrabbamein Jóhann Heiðar Jóhannsson Netfang: johannhj@landspitali.is Eins og fram kom í 118. pistli hefur carcinonia occulta fengið íslenska heitið leynikrabbamein í Iðorðasafninu og sér undirritaður ekki ástæðu til að gera tillögu um að breyta því. Aðrar samsetningar íðorðasafnsins, þar sem occult kemur fyrir, eru samræmdar og nota orðhlutann leyni-. í almennum orðabókum má finna viðtekin heiti á ýmsum fyrirbærum sem starfa á laun, leynifélag, leyni- lögregla, leyniskytta, leynivínsali og leyniþjónusta. Segja má þó að í almennu máli sé nokkur hefð fyrir því að þýða occult með orðhlutanum dul- eða dular-. Með þeirri aðferð gæti carcinoma occulta fengið heitið dulkrabbamein. Ágóðinn við það er sá að auðveldara verður þá að muna hvert erlenda heitið er. Mestur yrði ágóðinn þó ef tækist að finna nýtt íslenskt heiti sem vísaði í tvö aðaleinkenni occult carcinoma: að liggja í leyni og að hafa sent frá sér meinvörp. Meinvorp I framhaldi af umræðu um krabbamein má rifja upp þýðingar Iðorðasafnsins á gríska heitinu metastasis. meinvarp, meinrek, meinsáð, sáðmein. Læknisfræði- Dægradvöl í síðasta pistli var dægradvölin úr bókinni Heilsurœkt og mannamein, sem út kom árið 1943, nánar tiltekið úr kaflanum Aðferðir til þess að halda nœmum sjúkdómum í skefjum, bls. 204. Höfundur kaflans er Niels Dungal, prófessor í meinafræði, og var hann að leiðbeina um það hvernig forðast ætti sýkla. Dægradvölin í þetta skipti er heldur eldri, eins og sjá má af stafsetn- ingunni. Dægradvöl II. Um hvað er rætt og hver er höfund- urinn? „Það verður því að leggja ríkt kapp á, að veikin sje uppgötvuð í tíma, hjá þeim sem hana fá. En þetta hvílir að mestu leyti á sjúklingunum sjálfum, og útheimtir fyrst og fremst þekkingu á háttalagi veikinnar. í öðru lagi athygli og eftirtekt, en umfram allt áhuga og framtakssemi. - Það er til lítils gagn, þó menn fái grun um að ekki sje allt með feldu hvað........snertir, ef sá grunur er jafnharðan kæfður í sinnuleysi og trassaskap." orðabók Stedmans gefur til kynna að metastasis hafi verið notað á þrjá vegu: 1. um tilfærslu sjúkdóms eða tjáningarmerkja hans frá einum líkamshluta til annars og tekur dæmi um hettusótt, þegar sjúkdómurinn virðist hlaupa úr munnvatns- kirtlunum niður í eistun; 2. um útbreiðslu staðbundins sjúkdóms til annarra svæða, svo sem útbreiðslu illkynja æxlis frá frumæxli til fjarlægra staða; 3. um flutning baktería frá einum líkamshluta til annars, ýmist með blóði eða vessa. Tilefni upprifjunar er íslensk þýðing á ensku sögninni to metastasize. íðorðasafn lækna gefur eingöngu miðmyndina af íslensku sögninni að varpa, það er að segja að meinvarpast. Undirritaður heyrði hins vegar virtan og smekkvísan starfsbróður nota sögnina að verpa. Hann sagðist líta svo á að frumæxlið verpti til annarra staða og vildi ekki ljá máls á þeirri túlkun að frumæxlið varpaði til annarra staða. Hann bar fyrir sig nafnorðið varp, sem hann sagði í sinni sveit hafa verið notað um það að verpa og stað þar sem fuglar verpa. Tilvísun undirritaðs í íslenska orðabók Máls og menningar, kast, það að kasta, varpa, lét hann sér í léttu rúmi liggja. Fram til þessa hafði undirritaður ekki kynnst öðru en að heitið meinvarp væri sambærilegt við kúluvarp. Rétt er að minna á að nafnorðið meinvarp er annars vegar notað um ferilinn, það að varpa, og hins vegar um viðfangið, það sem varpað er. Gaman væri að heyra frá fleiri læknum um þetta efni. Mismunargreining í 61. pistli (Læknablaðið 1995; 81: 75) var rætt um diiTerential diagnosis sem íðorðasafn lækna nefnir mismunargreiningu eða samanburðargreiningu. Undirritaður lýsti þá skoðun sinni á íslensku heitun- um með þessum orðum: íslenska heitið saman- burðargreining lýsir einkar vel því sem við er átt, sjúkdómsmerki eru borin saman og aðgreining sjúkdóma gerð. Heitið mismunargreining er eftil vill torrœðara við fyrstu sýn, en verður þó vel skiljanlegt við nánari skoðun. Finna þarf mismun á teiknum og einkennum þeirra sjúkdóma sem til greina koma. Því er þetta tekið upp að nú gætir tilhneigingar til að sleppa „r“-inu úr misnmnargreining og skrifa „mismunagreining". Þetta hefur undirritaður ætíð talið að væri ritvilla og haft íðorðasafn lækna sér til stuðnings. Uppfletting í því sýnir að heitið er dregið af nafnorðinu mismunur sem í eignarfalli er mismunar. Uppfletting í íslenskri orðabók Máls og menningar leiðir þó í ljós að til er einnig nafnorðið mismuni, sömu merkingar, sem mundi þá verða mismuna í eignarfalli. Undirrituðum finnst ólíklegt, að þeir sem sleppa „r“-inu, geri það meðvitað og af þessari ástæðu. Verðum við ekki að láta Iðorðasafnið ráða? Slettur og slangur Fyrst á annað borð er búið að opna nöldurskjóðuna, þá er rétt að víkja að málfari fyrirlesara eins á fræðslufundi á liðnum vetri. Svo langt er um liðið að hann þekkist örugglega ekki af tilvitnuðum dæmum. Þó efnið væri vel valið og efnistök með ágætum, þá gilti ekki það sama um notkun fræðiheita. Sletturnar gengu yfir áheyrendur í gusum. í flestum tilvikum var um að ræða einföld heiti sem auðvelt hefði verið að íslenska, eins og dæmin sýna: dókúmenntasjón (skráning, skjölun), effektinn (áhrifin), fílterinn (sían), inndíkasjón (ábending), jatrógen (af völdum lækna), klíentelið (sjúklingarnir, viðskiptavinimir), konntrólið (viðmiðið), kúrvan (línuritið), massívur (stór, mjög stór, þéttur), metabólismi (efnaskipti), mínímal (lágmarks-), prólílaktískt (til forvarnar) og siggniffkant (marktækur). Læknablaðið 2000/86 803
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.