Læknablaðið - 15.11.2000, Blaðsíða 86
KRÖFTUGT VERKJALYF
Ibúkód (Delta, 950041). TÖFLUR; M 01 A E 51. Hver tafla inniheldur: Ibuprofenum INN 200 mg. Codeini phosphas hemihydricus 10 mg. íbúkód sterkar (Delta, 950040). TÖFLUR; N 02 A A 59 Hver
tafla inniheldur: Ibuprofenum INN 200 mg, Codeini phosphas hemihydricus 30 mg. Ábendingar: Verkjalyf. t.d. viö höfuöverk, tannpinu og tiöaverkjum. Skammtastærðir handa fullorönum: íbúkód:
1-2 töflur, 1-4 sinnum á dag. Ibukód sterkar: 1-2 töflur, 1-4 sinnum á dag. Skammtastæröir handa börnum: Lyfið er ekki ætlaö börnum. Frábendingar: Sjúklingar sem hafa fengiö astma,
ofnæmisbólgur i nef eöa ofsakláða eftir töku asetýlsalisýlsýru eöa annarra bólgueyðandi lyfja (annarra en barkstera), skulu ekki nota lyfiö. Lyfið skal ekki notaö, ef um skerta lifrarstarfsemi er aö ræöa
eöa ef alvarlegur hjarta- eða nýrnasjúkdómur er til staöar. Magasár eða þarmabólgur. Gallrásarkrampi. Varúð: Vara ber stjórnendur bifreiöa og vélknúinna tækja viö slævandi áhrifum lyfsins. Gæta þarf
varúöar viö gjöf lyfsins hjá sjúklingum með bráöaastma, aukna blæöingartilhneigingu eöa rauöa úlfa (SLE). Einnig hjá sjúklingum meö veilt hjarta, nýrna- eöa lifrarsjúkdóm, sérstaklega ef meöhöndlaö
er meö þvagræsilyfi samtimis, þá þarf að fylgjast meö mögulegri minnkaöri nýrnastarfsemi og vökvasöfnun. Lyfið er ekki ætlað börnum. Lyfið getur valdið ávana og fikn. Meðganga og brjóstagjöf:
Ekki æskilegt á meögöngu og sist á siöasta þriöjungi meögöngu. Lyfiö i venjulegum skömmtum er ekki talið hafa áhrif á barn á brjósti. Aukaverkanir: 10-35% sjúklinga mega eiga von á aö fá
aukaverkamr af lyfinu en þær eru annars vegar vegna kódeins (slævandi áhrif á miðtaugakerfi og áhrif á meltingarfæri) og hins vegar vegna prostaglandínhemjandi áhrifa íbúprófens hvort tveggja háö
skammti og timalengd meðhöndlunar. Algengar (>1%): Almennar: Þreyta, höfuðverkur. Meltingarfæri: Meltingartruflanir, ógleði. kviðverkir, hægðatregða. Húð: Útbrot. Sjaldgæfar (0 1-1%)- Almennar-
Ofnæmi (astmi). ofnæmisnefkvef. ofsakláöi. Meltingarfæri: Blæðing, sáramyndun. Lifur: Truflun á starfsemi gallrásar. Geörænar: Svefntruflanir, vægur kviöi. Augu: Sjóntruflanir. Eyrú: Truflun á heyrn.
Mjögsjaldgœfar[<0,]o/0): Almennar: Bjúgur. Blóö: Hvitkornafæð, blóðflagnafæö. Taugakerfi: Heilahimnubólga án sýkingar (aseptic meningitis). Meltingarfæri: Sprunginn magi eöa görn. Lifur: Truflun á
LYFJAÞRÓUN • HUGVIT • GÆÐI l,frarstarfsemi. Geöræn: Þunglyndi. Þvag- og kynfæri: Truflun á starfsemi nýrna. Augu: Sjóndepra vegna eitrunar (toxic amblyopi). Milliverkanir: íbúkód getur aukiö blóöþéttni litiums íbúkód skal ekki
www.delta.is notast samtimis lyfjum i dikúmaról flokki, kinidini, metótrexati. geölyfjum eða tiklópidini. Viö samtimis notkun íbúkóds meö þunglyndislyfjum, betablokkum, ciclospórini, kaptóprili og þvagræsilyfjum,
getur þurft að breyta skammtastærö. Eigi skal neyta áfengis meðan á töku lyfsins stendur. Pakkningar: íbúkód töflur: 10 stk.; 100 stk. íbúkód sterkar töflur: 20 stk.; 40 stk.; 100 stk.