Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.03.2002, Page 52

Læknablaðið - 15.03.2002, Page 52
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÍSLENSK ERFÐAGREINING Stórhýsi íslenskrar erfðagreiningar vígt 600 starfsmenn á rúmlega 15.000 fermetrum Pað væsir ekki um læknisfræðirannsóknir á Ís- landi. Nýlega var vígt stórhýsi íslenskrar erfðagrein- ingar sem stendur við Sturlugötu í Vatnsmýri, réttu ári eftir að byggingarframkvæmdir hófust. Húsið sem risið hefur á methraða er ríflega 15 þúsund fermetrar að flatarmáli, þrílyft á kjallara. Segja má að þarna séu þrjú hús því að sunnan- verðu eru tvö hús þar sem rannsóknarstofurnar eru og tölvuvinnslan fer fram en þvert á norðurenda þeirra er skrifstofubyggingin. Par á milli er inngangur og anddyri auk 200 manna fyrirlestrasalar og bún- ingsherbergja starfsfólks. Á milli húsanna er opið svæði undir glerþaki þar sem er mötuneyti á neðstu hæð en á efri hæðum eru brýr yfir þetta rými og tengja þær álmurnar saman. Hér gefst ekki rúm til að lýsa öllum þeim tækni- undrum og tækjabúnaði sem prýða þessa byggingu en þar skortir ekkert á að gera aðstöðu til vísinda- rannsókna einhverja þá bestu sem hugsast getur. Pað er þegar farið að skila sér í því að fjöldi þeirra til- rauna sem þurft hefur að endurtaka hefur snarlækk- að eftir að starfsemi hófst í húsinu. Er ástæðan talin vera bætt loftræsing og umhverfi sem ekki spillir efniviðnum sem unnið er með. Að sjálfsögðu er mikil tölvumiðstöð í húsinu og hríslast lagnir þaðan um allt húsið, eins og segir í fréttatilkynningu fyrirtækisins. í þessari tölvumiðstöð verður gagnagrunnurinn frægi hýstur og hafa ekki aðrir aðgang að honum en þeir sem standast augn- próf í þar til gerðum skanna. í þessu húsi munu hartnær 600 starfsmenn fyrir- tækisins sinna sínum verkum. í þeim hópi eru nokkrir læknar en auk þess skipta samstarfslæknar fyrirtækis- ins tugum eða hundruðum. íslensk erfðagreining hef- ur tryggt sér lóð sunnan við bygginguna þar sem risið gæti lyfjaþróunardeild sem fyrirtækið festi kaup á ekki alls fyrir löngu en óákveðið er hvort hún verður starfrækt hér á landi eða utanlands. Fari svo að hún verði vistuð hér á landi fá um 250 manns til viðbótar vinnu við hana. Blaðamaður Læknablaðsins skoðaði húsið á vígsludaginn og tók meðfylgjandi myndir. -ÞH Inngangur hússins erfrá austri. Skrifstofurnar eru í húsinu til hœgri en til vinstri sér í endann á annarri rannsóknastofuálmunni. Þessi bútur úr litningi er á efstu hœð hússins fyrir framan skrifstofur stjórnenda fyrirtœkisins. 228 Læknablaðið 2002/88 á

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.