Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.03.2002, Side 81

Læknablaðið - 15.03.2002, Side 81
RÁÐSTEFNUR / ÞING XV. þing Félags íslenskra lyflækna ísafirði 7.-9. júní 2002 XV. þing Félags íslenskra lyflaekna verður haldið á ísafirði dagana 7.-9. júní 2002. Þingið mun fara fram í húsnæði Menntaskólans en veggspjaldasýning og sýning fyrirtækja í íþróttahús ísfirðinga sem er steinsnar frá skólahúsnæðinu. Frjáls erindaflutningur verður í minna mæli en verið hefur og stærri hluti vísindarannsókna kynntur með veggspjöldum. Að auki verða skipulögð fleiri málþing og gestafyrirlestrar. Boðið verður upp á tölvuskjávarpa (windows stýrikerfi) og skyggnuvél við flutning erinda. Skilafrestur ágripa er 1. apríl næstkomandi. Frágangur ágripa verði eftirfarandi: Fyrst komi titill, nöfn höfunda (nafn flytjanda feitletrað) og vinnustaðir með tilvísun til höfunda. í megintexta komi fram tilgangur rannsóknar, stutt lýsing á efniviði og aðferðum, helstu niðurstöður og ályktanir. Semja þarf sérstaklega um birtingu á töflum og myndum. Hámarkslengd ágrips er 1800 letureiningar með bili (characters with spaces). Ágrip skal senda í tölvupósti sem viðhengi til framkvæmdastjóra þingsins, Birnu Þórðardóttur, sjá netfang aó neðan. Höfundar taki fram óski þeir að kynna niðurstöður sínar með veggspjaldi fremur en með munnlegu erindi. Vísindanefnd Félags íslenskra lyflækna áskilur sér rétt til þess að hafna innsendum ágripum og eins að meta hvort kynnt verði með erindi eða veggspjaldi. Þau ágrip sem vísindanefnd Félags íslenskra lyflækna samþykkir verða birt í fylgiriti Læknablaðs- ins sem kemur út í byrjun júní. f þinglok verða veitt verðlaun fyrir erindi unglæknis, erindi læknanema og veggspjald. Upplýsingar veita Runólfur Pálsson formaður Félags íslenskra lyflækna: runolfur@landspitali.is Birna Þórðardóttir framkvæmdastjóri þingsins: birna@birna.is Drög að dagskrá Föstudagur 7. júní 13.20 Þingsetning 13.30- 15.30 Frjáls erindi samhliða í tveimur sölum 15.30- 16.00 Kaffi & iyfjasýning 16.00-16.50 Gestafyrirlestur 17.00-18.30 Frjáls erindi 17.00-18.30 Klínískar perlur, valin sjúkratilfelli 19.00 Gríllveisla Laugardagur 8. júní 09.00-10.30 Málþing Staða almennra lyflækninga á íslandi 10.30- 11.00 Kaffi & lyfjasýning 11.00-12.00 Veggspjaldakynning, höfundar viðstaddir 12.00-12.30 Hádegisverður (léttar veitingar á staðnum) 12.30- 14.00 Málþing í minningu Ásbjörns Sigfússonar læknis Nýlegar uppgötvanir í klínískri ónæmisfræði 14.00-15.00 Frjáls erindi samhliða í tveimur sölum 15.00-15.30 Kaffi & lyfjasýning 15.30- 16.20 Frjáls erindi samhliða í tveimur sölum 16.20-17.00 Frjáls erindi 16.20-17.00 Klínískar leiðbeiningar 17.10-18.00 Gestafyrirlestur 19.00 Kvöldverður Sunnudagur 10.00-11.00 Veggspjaldakynning, umræða um valin veggspjöld 11.00-12.30 Málþing Náttúrulyf og fæðubótarefni. Er gagn að þessu? 12.30 Afhending verðlauna Þingslit Læknablaðið 2002/88 257

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.