Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2002, Blaðsíða 22

Læknablaðið - 15.09.2002, Blaðsíða 22
 Bindur sársaukinn - hendur þínar? Vostar-R 75 mg - Nýr styrkur Vóstar-R DELTA FORÐATÖFLUR; M 01 A B 05 R E Hver forðatafla inniheldur: Diclofenacum INN, natriumsalt, 75 mg eöa 100 mg. Forðatöflurnar innihalda laktósu og 75 mg forðatöflur innihalda litarefnið rautt járnoxíö (E172). LYFJAÞRÓUN • HUGVIT • GÆÐI www.delta.is Abendingar: Gigtarsjúkdómar, þar með taldir iktsýki (arthritis rheumatoides), hrygggigt (spondylitis ankylopoetica), slitgigt og vöövagigt. Verkir. Þvagsýrugigt. Skammtar og lyfjagjöf: Skammtastœröir handa fullorönum: Venjulegur skammtur er ein forðatafla 75 mg eða 100 mg á dag, með mat. Skammtastœröir handa börnum: Þetta lyfjaform er ekki ætlað börnum. Frábendingar: Sár i maga eða skeifugörn. Lyfið má ekki gefa sjúklingum sem fá astma, nefrennsli eða ofsakláða af acetýlsalicýlsýru eða öðrum skyldum lyfjum. Skorpulifur. Alvarleg hjartabilun og nýrnasjúkdómur. Ofnæmi fyrir innihaldsefnum lyfsins. Varnaöarorö og varúöarreglur: Varúöar skal gæta hjá sjúklingum með colitis ulcerosa, Crohns-sjúkdóm, truflaða blóömyndun, blæðingar- tilhneigingu eða hjartabilun. Enn fremur skal gæta varúðar viö gjöf lyfsins ef sjúklingar eru með skerta nýrna- eða lifrarstarfsemi (t.d. aldraðir), taka segavarnarlyf, þvagræsilyf (blóðkalium) eöa lyf við sykursýki. Viö langtímameöferð þarf að fylgjast með lifrarstarfsemi og blóðhag. Porfyria. Milliverkanir: Lyfiö virðist hvorki hafa áhrif á lyfjahvörf segavarnarlyfja né lyfja við sykursýki, en rétt er að sýna aögát ef slik lyf og diklófenak eru gefin samtimis, vegna mikillar próteinbindingar i blóði. Blóðþéttni litiums og dígoxíns hækkar ef díklófenak er gefið samtimis. Háskammta metótrexatgjöf samtimis gjöf diklófenaks getur valdiö alvarlegum eiturverkunum vegna minnkaðs útskilnaðar á metótrexati. Meöganga og brjóstagjöf: Lyf, sem hindra prostaglandinframleiðslu geta haft ýmis áhrif á fóstur, svo sem leitt til háþrýstings í lungnablóðrás og öndunarerfiðleika eftir fæðingu. Þau geta einnig aukið blæðingarhættu vegna áhrifa á blóðflögur og valdið nýrnaskemmdum sem leiða til skertrar þvagframleiðslu eftir fæöingu og minnkun á legvatni. Lyf af þessum flokki ber þvi aö forðast á meðgöngu, en einkum er mikilvægt að nota lyfið ekki á síðasta þriðjungi meðgöngu og alls ekki síðustu daga fyrir fæðingu. Lyfið skilst út í brjóstamjólk, en óliklegt er að lyfjaáhrifa gæti hjá barni á brjósti við venjulega skömmtun lyfsins. Athugiö: Eftir inntöku 100 mg lyfsins hjá konum með barn á brjósti fannst lyfið ekki í mjólk (greiningarmörk: 10 ng/ml). Akstur: Ef höfuöverkur, þreyta eða svimi gera vart viö sig eftir inntöku lyfsins er ekki ráðlegt að aka vélknúnu ökutæki. Aukaverkanir: I upphafi meðferðar fá um 10% sjúklinganna óþægindi frá meltingarfærum, sem venjulega hverfa á fáeinum dögum þrátt fyrir áframhaldandi töku lyfsins. Algengar (>1%): Höfuðverkur, svimi. Magaverkir, ógleði, uppköst, niðurgangur. Útbrot. Sjaldgœfar(0,1-1%):Bjúgur. Ofnæmi. Þreyta. Meltingarsár, blæöing frá meltingarfærum. Ofsakláði. Trufluð lifrarstarfsemi. Mjög sjaldgœfar (<0,1%): Fækkun blóðflagna, hvitra blóðkorna og/eða rauðra blóðkorna. Sjóntruflanir, eyrnasuð, svefntruflanir, óróleiki, krampar. Rugl. Blöðrumyndun á húð, regnbogaroðasótt (erythema multiforme), Steven-Johnsons heilkenni, Lyells heilkenni, hárlos, Ijósóþol. Truflað húöskyn. Bráö nýrnabilun, blóð i þvagi, nýrna- og skjóöubólga, nýrungaheilkenni (nephrotic syndrome). Lyfhrif: Lyfið minnicar myndun prostaglandina i líkamanum. Það hefur bólgueyðandi og verkjastillandi verkun. Lyfjahvörf: Aðgengi (nýting) diklófenaks er u.þ.b. 50%. Þetta lyfjaform hefur forðaverkun og nær blóöþéttni lyfsins hámarki 6-8 klst. eftir inntöku, sé lyfið gefiö með mat, en verkun helst i 12-24 klst. Próteinbinding í blóði er 99,7%. þyfið skilst út sem umbrotsefni, um 60% í þvagi og um 30% í saur. Útlit: Foröatafla 75 mg: Ljósbleik, kúpt, 0 9mm. Foröatafla 100 mg: Hvit, kúpt, merkt með þríhyrningi á annarri hlið, 0 12 mm. Pakkningar og verð (01.04.02): Foröatöflur75mg: 30 stk. 2.147 kr., 100 stk. 5.589 kr. Foröatöflur 100 mg: 30 stk. 2.723 kr., 100 stk. 7.356 kr. Síðast uppfært: 1. apríl 2001
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.