Læknablaðið - 15.09.2002, Blaðsíða 44
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ
Stöndum við sameínaðir eða
föllum við sundraðir?
Sigurður
Björnsson
Höfundur á sæti í stjórn
Læknafélags íslands.
Sjónarmið þau er fram koma í
pistlunum Af sjónarhóli
stjórnar eru höfundar hverju
sinni og ber ekki að taka sem
samþykktir stjórnar LÍ.
í NÚGiLDANDi lögum Læknafélags íslands segir í 2.
grein að tilgangur félagsins sé að efla hag og sóma
hinnar íslenzku læknastéttar og auka kynni og stétt-
arþroska félagsmanna, stuðla að aukinni menntun
lækna og glæða áhuga þeirra á því er að starfi þeirra
lýtur, efla samvinnu lækna um allt sem horfir til fram-
fara í heilbrigðismálum og beita sér fyrir bættu heilsu-
fari landsmanna. Um þessi markmið ætti ekki vera
ágreiningur meðal lækna á Islandi.
IVII kafla laganna segir svo í 16. grein um kjara-
samninga: „LI sér um gerð kjarasamninga lækna í
samráði við svæðafélög og önnur félög lækna, eftir
því sem við á hverju sinni. Þeir einir greiða atkvæði
um kjarasamning, sem taka laun eftir honum.“
I samræmi við þetta verkefni LI og langa hefð
gerði samninganefnd félagsins samning um kjör
sjúkrahúslækna við fjármálaráðherra sem undirritað-
ur var 2. maí síðastliðinn. Þá þegar var ljóst að djúp-
stæður ágreiningur var meðal lækna um þennan
samning og það svo að fulltrúi Félags ungra lækna
undirritaði ekki samninginn og sagði sig úr samn-
inganefnd LÍ í mótmælaskyni. Stjórn FUL hvatti
síðan félagsmenn þess til að taka ekki þátt í atkvæða-
greiðslu um samninginn. Þá hvatti stjórn Skurð-
læknafélags Islands sína menn til að greiða atkvæði
gegn samningnum. Greidd voru atkvæði um kjara-
samninginn hinn 16. maí og tóku einungis 57,8% at-
kvæðisbærra félaga þátt í henni. Fylgjandi voru
61,1%, andvígir 37,6%.
Eftirmálar samnings þessa eru læknum kunnir.
Félag ungra lækna hefur sagt skilið við Læknafélag
Islands. Ungir læknar hafa verið tregir til að ráða sig
til starfa samkvæmt hinum nýja kjarasamningi, sem
þeir telja sig raunar óbundna af, og hafa óskað eftir
því að semja sjálfir um eigin kjör. Stjórnvöld halda
fast við að bindandi samningur sé í gildi enda sé LÍ
hinn rétti samningsaðili.
Þá hafa sjúkrahúsyfirvöld treyst á það að læknar
með sérfræðimenntun gangi í störf unglækna þar sem
þeim sé ekki stætt á öðru vegna skyldu lækna við
sjúklinga og vinnuveitendur. Þannig hefur Landspít-
ali búið við óviðunandi ástand nú yfir sumar(frís)-
mánuðina. Sjúkrahúslæknar, sem hafa verið við störf
hafa lagt á sig mikla aukavinnu, sumir við að ganga í
störf yngri kollega sem eru í réttindabaráttu. Lítið
hefur frétzt af því að unnið sé að lausn mála nú þegar
haustar og læknanemar, sem sinnt hafa unglækna-
stöðum á sjúkrahúsum, setjast aftur á skólabekk.
Ekki má dragast lengur að stjórnvöld og stjórnendur
spítala leysi málin. Því miður getur Læknafélag ís-
lands lítið komið þar að þar sem FUL hefur sagt sig
úr lögum við LÍ.
Að mínu áliti er það mikið óheillaspor að yngstu
læknarnir skuli ekki lengur eiga aðild að Læknafélagi
íslands. Ef til vill er unnt að skilja sárindi þeirra yfir
fyrrgreindum kjarasamningi sem margir eldri læknar
eru einnig óhressir með. Eg tel að ungir læknar geti
mun betur beitt sér fyrir umbótum á starfsaðstöðu og
kjörum innan LI en utan þess. Ósennilegt er að FUL
geti, hreinlega vegna eðlis félagsins og hins hraða
gegnumflæðis félagsmanna, orðið nægilega sterkur
bakhjarl fyrir unga lækna í baráttu þeirra við að ná
fram markmiðum sínum. Reyndar hef ég saknað virk-
ari þátttöku ungra lækna í félagsstarfi LI á undan-
förnunt árum, stundum hefur mér virzt að unglæknar
væru feimnir við að láta til sín taka á vettvangi LÍ.
Enginn vafi er á því að brotthvarf FUL úr LI veik-
ir heildarsamtök lækna á íslandi og gerir þeint erfið-
ara um vik að standa við þau fyrirheit sem greint var
frá í upphafi þessa pistils. Þannig eru bæði LÍ og FUL
veikari eftir en áður.
Títtnefndur kjarasamningur sjúkrahúslækna er að
mínu mati einnig meingallaður frá sjónarhóli sjúkra-
húsanna. Nú er sjúkrahúslæknum sem jafnframt sinna
sjúklingum á læknastofum gert að minnka starfshlut-
fall sitt á sjúkrahúsum um 20% þannig að læknir sem
til þessa hefur verið í fullu starfi við sjúkrahús og haft
samningsbundinn rétt til stofuvinnu er framvegis
skráður í 80% starfshlutfall. Við það styttist vinnu-
vika hans á sjúkrahúsinu úr fimm virkum dögum í
fjóra, sem mun kalla á aukna yfirvinnu eða fjölgun
lækna við sjúkrahúsin ef halda á uppi óskertri þjón-
ustu. Fjölgun starfa er kostnaðarsöm, og er í litlu
samræmi við stefnu um aukið aðhald og bann við ný-
ráðningum sem verið hefur í gildi.
Gerð kjarasamninga fyrir sjúkrahúslækna er flók-
ið verk, vanþakklátt og umdeilt eins og tvennir síð-
ustu kjarasamningar bera með sér. Nú er í gildi samn-
ingur, sem einungis 35,3% atkvæðisbærra lækna sam-
þykkti. Ekki verður hjá því komizt að leita nýrra
leiða við að semja um kjör lækna. Störfin eru það ólík
orðin, tækifærum lil vinnu annars staðar fer fjölgandi
svo sem við sjálfstæðan stofurekstur, störf hjá líf-
tæknifyrirtækjum, tryggingafélögum, kennslu og
ýmiskonar ráðgjöf auk starfa erlendis um lengri eða
skemmri tíma.
Sjúkrahúslæknum er mismunað í launum eftir því
hvers konar störfum þeir sinna auk læknisstarfa á
656 Læknablaðið 2002/88