Læknablaðið - 15.09.2002, Blaðsíða 45
UMRÆÐA & FRÉTTIR / A F SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ / MÁLEFNI LÍ
sjúkrahúsunum. Launakerfi eins og það sem nú er
unnið eftir er að mínu mati óhagkvæmt fyrir sjúkra-
húsin á sama hátt og ég tel það vera óhagkvæmt fyrir
heilsugæzluna, það felur í sér misrétti milli sérgreina
og einstakra lækna og það sundrar læknastéttinni
eins og dæmin sanna.
Sem kunnugt er hefur Skurðlæknafélag íslands
unnið að því undanfarna mánuði að ná til sín samn-
ingsrétti fyrir skurðlækna á sjúkrahúsum, þar sem
þeir telja að samninganefnd LÍ geti ekki barizt fyrir
hagsmunum skurðlækna en þurfi stöðugt að leita
málamiðlana milli hagsmuna hinna ýmsu sérgreina.
Vitna þeir til betri árangurs í samningum við Trygg-
ingastofnun ríkisins fyrir læknisverk utan spítala, þar
sem meira tillit er tekið til mismunandi sjónarmiða
sérgreinafélaganna enda koma þau sjálf að þeim
samningum.
Af framansögðu má vera ljóst að ræða þarf endur-
skipulagningu læknasamtakanna á aðalfundi LÍ í
næsta mánuði, ekki sízt gerð kjarasamninga. Þá er
nauðsynlegt að breyta lögum félagsins vegna brott-
hvarfs Félags ungra lækna ef ekki tekst að finna ung-
læknum leið inn í LÍ fyrir aðalfund.
Sjálfstæður stofurekstur lækna er þjóðhagslega
hagkvæmur. Þar eru leyst af hendi læknisverk sem
ekki krefjast innlagna á sjúkrahús, iðulega verk sem
ekki er aðstaða fyrir á sjúkrahúsum þar sem tekist er
á við viðameiri læknisverk og stærri aðgerðir. Á stof-
unum nýtist sérþekking margra lækna sem einnig
starfa á sjúkrahúsum. Þar með styttast biðlistar eftir
skurðaðgerðum og aukið svigrúm skapast á sjúkra-
húsunum til þeirra verkefna, sem einungis verður
sinnt þar.
Samvinna og eðlileg verkaskipting milli sjúkra-
húsanna og læknastofa er nauðsynleg og þarf að ná til
allra þátta starfseminnar, þjónustu við sjúklinga,
kennslu heilbrigðisstétta og vísindastarfa. Ekkert er
rangt við að hvetjandi áhrif fræðilegrar og rekstrar-
legrar samkeppni fái að njóta sín, þiggjendum, veit-
endum og greiðendum þjónustunnar til hagsbóta.
Nauðsynlegt er að hið stóra nýstofnaða háskóla-
sjúkrahús, með heilbrigðisyfirvöld að bakhjarli, fari
gætilega með yfirburðaaðstöðu sína í heilbrigðiskerf-
inu og leiti leiða í samvinnu við aðra þætti þess til að
tryggja landsmönnum áfram góða og hagkvæma heil-
brigðisþjónustu. Þar munu þau geta treyst á stuðning
og samvinnu við samtök lækna.
Aðalfundur Læknafélags
íslands 11.-12. október
Aðalfundur Læknafélags Islands verður haldinn dagana 11. og 12. október
næstkomandi í húsakynnum LÍ að Hlíðasmára 8. Fundurinn hefst með setn-
ingu Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráðherra en síðan tekur við hefðbundin
dagskrá aðalfundar.
Samkvæmt 7. gr. laga LI er öllum læknum frjálst að sitja aðalfundinn með
málfrelsi og tillögurétti en atkvæðisrétt hafa eingöngu kjörnir fulltrúar aðild-
arfélaga.
Að morgni laugardagsins 12. október verður haldið Læknaþing. Efni
Læknaþings verður: Reglur General Medical Council í Bretlandi um skyldur
skráðra lækna, kynning lækna á starfsenii sinni með tilliti til nýrrar tækni og
símenntun lækna. umræður verða í lokin.
Að Læknaþingi loknu heldur dagskrá aðalfundar áfram.
Nánar verður sagt frá dagskrá fundarins í októberblaði Læknablaðsins.
Framkvæmdastjóraskiptí hjá LÍ
í byrjun ÁGÚST lét Ásdís J. Rafnar, hrl., af starfi
framkvæmdastjóra hjá Læknafélagi Islands. Ásdís
hóf störf hjá félaginu í febrúar 1999. Þá voru um-
brotatímar hjá LÍ, mannahald félagsins og rekstur
skrifstofu hafði verið endurskipulagður og tók LÍ af
fullum þunga þátt í ákafri þjóðfélagsumræðu um
miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði. Þetta hvort
tveggja hafði gengið nærri innviðum félagsins og átt
þátt í þeirri atburðarás sem leiddi til framkvæmda-
stjóraskipta á þeim tíma. Þess vegna var aðkoma nýs
framkvæmdastjóra allt annað en auðveld.
Ásdís tók við starfi sínu af fullum styrk frá upp-
hafi og lauk því verki sem hafið var við endurskipu-
lagningu rekstursins af miklum myndugleik. Það var
öllum ljóst sem með Ásdísi unnu frá upphafi að kraf-
an um gegnsæi og málefnalega og réttláta stjómsýslu
lá til grundvallar öllum verkum hennar fyrir Lækna-
félagið. Hún vakti yfir öllu, smáu og stóru, hvort sem
það varðaði fjárhag félagsins eða lögfræðilega úr-
vinnslu mála sem til meðferðar voru. Þó tókst henni
að vinna störf sín þannig að hvorki skyggði nokkurn
tíma á kjörna fulltrúa lækna né tók hún frumkvæði
við stefnumótun í málefnum þeirra.
Ásdís er nú horfin til framhaldsnáms í London og
óskum við henni allra heilla á þeim vettvangi. Stjórn
Læknafélags íslands þakkar henni ágætt samstarf á
liðnum árum og störf sem sér stað.
Sigurbjörn Sveinsson
Læknablaðið 2002/88 657