Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2002, Blaðsíða 56

Læknablaðið - 15.09.2002, Blaðsíða 56
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LYFJAEFTIRLIT Bréf til Lyfjastofnunar frá formanni LÍ Lyfjastofnun b.t. Daníels Viðarssonar Eiðistorgi 13-15 172 Seltjarnarnes Kópavogi 20.08. 2002 Efni: Dreifibréf nr. 7/2002/LS Ofangreint dreifibréf var sent til lækna og tannlækna sem fengu gíróseðil til greiðslu lyfjeftirlitsgjalds 2002. I dreifibréfinu er óskað eftir skriflegum athugasemd- um, ef einhverjar eru. Undirritaður fékk sendan gíróseðil til greiðslu lyfjaeftirlitsgj alds 2002 og vill af því tilefni mótmæla gjaldtökunni sem ólögmætri og gera eftirfarandi at- hugasemdir. Tilurð gjaldsins í núverandi mynd er að finna í 3. gr. laga nr. 108/2000 sem er breyting á 3. gr. Lyfjalaga nr. 93/1994, en þar er m.a. kveðið á um að Lyfjastofn- un leggi árlegt eftirlitsgjald á eftirlitsskylda aðila er stofnunin hefur reglubundið eftirlit með. Samkvæmt greininni eru eftirtaldir aðilar eftirlitsskyldir: 1. lyfsöluleyfishafar, 2. lyfjasölur lœkna, 3. lyfjasölur sveitarfélaga, 4. lyfjagerðir, 5. lyfjaheildsalar, 6. lyfiaumboðsfyrirtœki, 7. dýralœknar, 8. heUbrigðisstofnanir, sjúkrahús og heilsugœslu- stöðvar, 9. lœknastöðvar. í sömu grein segir einnig: Eftirlitsgjald skal ákvarðað á eftirfarandi hátt: 3. Vegna starfsemi dvralœkna (undirstrikun SS), heilbrigðisstofnana, sjúkrahúsa, heilsugœslustöðva og lœknastöðva (undirstrikun SS) 0,3% afheildar- fjárhœð lyfjainnkaupa (heildsöluverð án virðis- aukaskatts) árið á undan álagningarári. Fjárhœð eftirlitsgjaldsins skal þó aldrei vera lœgri en 7.500 kr. á ári. í ofangreindu ákvæði er að finna tæmandi taln- ingu á því hverjir eru eftirlitsskyldir. Var ákvæðinu breytt í þessa mynd með lögum nr. 108/2000 en í frumvarpi með þeim lögum segir: Eðlilegt verður að telja að lyfjaiðnaðurinn greiði gjald vegna eftirlitsskyldrar starfsemi sinnar, en eftirlit með lyfjadreifingu er ein mikilvœgasta for- senda þess að mega starfa. Þeir þœttir er lúta að ör- yggi og gœðum í lyfjadreifmgu eru þar mikilvœg- astir. í núgildandi lögum kemur fram að leggja skuli árlegt eftirlitsgjald á þau fvrirtœki oe stofn- anir (undirstrikun SS) sem Lyfjaeftirlit ríkisins hef- ur eftirlit með. Hér er lagt til að eftirlitsskyldir aðil- ar verði taldir upp í lögunum. í frumvarpinu er því skýrt að verið er að breyta eftirlitsskyldum aðilum úr því að vera fyrirtæki og stofnanir í þá aðila sem upp eru taldir í níu töluliðum. í þeirri upptalningu er ekki að finna einstaka lækna sem kaupa lyf í eigin nafni. Ef ætlun löggjafans hefði verið sú að láta ákvæðið einnig ná til lækna hefði verið hægur vandi að taka það fram eins og gert er gagnvart dýralæknum. En eins og kunngt er starfa dýralæknar bæði á dýralæknastöðvum og á vettvangi í sjúkravitjunum. í tilvitnuðu dreifibréfi er að finna vangaveltur stofnunarinnar um að læknar og tannlæknar sem uppfylli ekki skilyrði Lyfjalaga um kaup lyfja í lyfja- heildsölu greiði ekki eftirlitsgjald. Er það sjálfgefið. í lögunum er hins vegar gert ráð fyrir að læknar og tannlæknar getj keypt lyf í heildsölu sbr. eftirfarandi tilvitnun úr 30. gr. laganna: Lyfjaheildsölum er heimilt að selja lyflyfsöluleyfis- höfum, stofnunum sem hafa lyfjafræðing í þjóm- ustu sinni og reknar eru samkvœmt lögum um heil- brigðisþjónustu eða öðrum sérlögum, lœknum oe tannla’knum til notkunar á eit'in stofum eða í siúkravitiunum (undirstrikun SS) og þeim til- raunastofum sem vinna að rannsóknum lyfja. Kostnaður lœkna og tannlækna vegna slíkra lyfja- kaupa fellur undir reksturskostnað. Tilvitnuð heimild í 30. gr. kom inn í lög með gildis- töku Lyfjalaga nr. 93/1994. Segir í frumvarpi sem varð að þeim lögum eftirfarandi: Lyfjaheildsölum verður heimilt að selja lyf tilfleiri aðila en verið hefur. Með heimild til að selja lyftil heilbrigðisstofnana, sem reknar eru samkvœmt lögum um heilbrigðisþjónustu eða öðrum sérlög- um, er ýmsum stofnunum, svo sem hjúkrunar- heimilum og dvalarheimilum gert mögulegt, sbr. 35. gr., að kaupa lyf í heildsölu. Skýr ákvœði og heimildir hefiir skort til að sinna þessu sjálfsagða hagrœði sem skyldi en þetta getur að öllum líkind- um lækkað verulega hlut ríkisins í lyfjakostnaði þessara stofnana. Einnig fá lœknar. tannlœknar oe dvralœknar lieimild til að kaupa Ivf I heildsölu til notkunar á eigin stofum eða I siúkravitjunum en slíka lieimild hefurskort í lög (undirstrikun SS). Af tilvitnun þessari og orðalagi 30. gr. má sjá að ekki eru gerðar neinar takmarkanir á heimild lækna til kaupa lyfja í heildsölu til notkunar á eigin stofum eða f siúkravitjunum. A það er bent að í skattarétti er meginreglan sú að skattalög skuli túlka þröngt þegar vafi leikur á um J 668 Læknablaðið 2002/88
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.