Læknablaðið - 15.09.2002, Blaðsíða 57
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LYFJAEFTIRLIT / KJARAMÁL UNGLÆKNA
skattlagningarheimildir. í því tilfelli sem hér er til
skoðunar nægir einföld orðskýring til að útiloka að
heimilt sé að leggja gjaldið á einstaka lækna sem
kaupa lyf í heildsölu í eigin nafni. í frumvarpi með
lögum nr. 108/2000 kemur fram skýr vilji löggjafans
til að taka af öll tvímæli um hverjir skuli vera eftirlits-
skyldir aðilar samkvæmt lögunum. Einstakir læknar
eru þar ekki taldir upp.
í Ijósi alls ofangreinds gerir undirritaður þá kröfu
að stofnunin láti af hinni ólögmætu innheimtu og
endurgreiði þau gjöld sem þannig hafa verið inn-
heimt.
Virðingarfyllst,
fyrir mína hönd persónulega og Læknafélags íslands
Sigurbjörn Sveinsson, læknir
formaður
Unglæknar vilja vera í félagi með
kollegum sínum
Málefni unglækna hafa verið í sviðsljósinu í sumar.
Þeir voru óánægðir með niðurstöðu kjarasamninga
sem gerðir voru í vor og boðuðu verkfall en Félags-
dómur úrskurðaði það ólöglegt. Þeir hafa sagt sig úr
lögum við Læknafélag Islands en vilja þó helst ekki
segja skilið við kollega sína. Og þeir vilja losna undan
vinnuálagi sem þeir telja ómanneskjulegt og lítt fjöl-
skylduvænt. Enn er þó allt í uppnámi hjá þeim og
engin lausn í sjónmáli.
Læknablaðið tók hús á Oddi Steinarssyni for-
manni Félags ungra lækna þar sem hann var í feðra-
orlofi í Kópavoginum og bað hann að lýsa þeirri
stöðu sem kjaramál unglækna eru í.
„Staðan er mjög óljós eins og er. Samráð okkar, LÍ
og landlæknis, að úrskurði Félagsdóms uppkveðnum,
skilaði litlum sem engum árangri og nú er ráðherra
búinn að skipa starfshóp sem er að taka til starfa.
Raunar láðist honum að skipa fulltrúa frá okkur og
LI í hópinn en því var kippt í liðinn þegar bent hafði
verið á það. Ráðherra hefur ekkert viljað kveða upp
úr um okkar mál að öðru leyti en því að ræða um
hugsanlega endurskoðun á vaktakerfi sjúkrahús-
anna. Það mun þó ekki breyta miklu fyrir okkur.
Við sendum spítölunum bréf þar sem við boðuð-
um málssókn vegna brota á vinnuréttindum okkar ef
ekki yrðu gerðar breytingar á túlkun spítalanna á
réttindum okkar. Þeir svöruðu með því að vísa á
samráðsnefndina sem engu skilaði svo nú erum við
að velta því fyrir okkur hvort ekki sé rétt að ítreka
bréfið. Við viljum hins vegar ná sáttum við þá.
En ef ég má fara aðeins aftur í tímann þá er ástæð-
an fyrir óánægju okkar þær athugasemdir sem við
gerum við kjarasamninginn frá því í vor. Þar er í
fyrsta lagi búið að selja frá okkur frítökuréttinn án
þess að bæta okkur það, í öðru lagi ná engin vinnu-
verndarákvæði yfir unglækna og í þriðja lagi fengum
við minni kjarabætur en aðrir læknar út úr samning-
unum. Þess eru nokkur dæmi að menn hafa þurft að
endurgreiða 50.000-75.000 krónur sem þeir höfðu
fengið greitt í krafti ákvæða í eldra samningi um
álagsgreiðslur vegna ónógs hvíldartíma en þessi
ákvæði féllu brott í nýja samningnum," segir Oddur.
Þröstur
Haraldsson
Oddur Steinarsson
formaður
Félags ungra lœkna.
Vinnuverndin nái til allra
Vinnuálagið á unglæknum er mikið og helsta baráttu-
mál þeirra er að draga úr því. „í kjarasamningum
lækna er ákvæði um að þeir fái frítökurétt sem nemur
hálfri annarri klukkustund fyrir hverja klukkustund
sem hvíldartíminn fer undir 11 stundir á sólarhring.
Þetta gildir ekki um hóp sem heitir „læknar í starfs-
námi“ sem hefur aldrei verið skilgreint en er látið ná
yfir kandídata og aðra lækna sem ekki eru með sér-
Læknablaðið 2002/88 669