Læknablaðið - 15.09.2002, Blaðsíða 7
RITST JQRIUARGREIIUAR
Vinnuumhverfi á Islandi
- þörf fyrir meiri umræðu
| Mikið er rætt um vinnu-
markað og umhverfismál í
J fjölmiðlum hérlendis og
tengist sú umræða ckki síst
I áformum um ný eða aukin
R > jk jt tækifæri á vinnumarkaði og/
eða hagræðingu sem leiðir
I yfirleitt al' scr samruna t'yrir-
tækja í stærri einingar og
Kristinn fækkun starfsfólks.
Tómasson j fréttum sem Morgun-
blaðið er með á vef sínum
(26.8.2002) er fjallað ítarlega um ýmsa þætti sem
lúta að álveri á Austurlandi. í þessum pistlum er
ekki aðaláhersla á heilsu starfsmanna sem hugsan-
lega muni vinna í verksmiðjunni eða í tengslum við
smíði hennar, heldur er áherslan fyrst og fremst á
áhrif verksmiðjunnar og byggingu hennar á efna-
hagslíf þjóðarinnar og á umhverfismál í víðtækri
merkingu þess orðs, það er hver verða áhrif á há-
lendið og lítt snortna náttúru þess, hver verða áhrif
á loft, lands- og sjávargæði í nágrenni við verk-
smiðjuna? Lítið hefur hins vegar borið á umfjöllun
um heilsufar væntanlegs starfsfólks og fjölskyldna
þeirra. Ekki er ljóst hvað veldur því. Hugsanlega
getur það verið vegna þess að stóriðjufyrirtæki hér-
lendis hafa haft nokkra forgöngu um eftirlit með
heilsufari hjá starfsfólki sínu og má þar benda á
álverin, járnblendið og steinullarverksmiðjuna og
þar af leiðandi finnist stjórnmálamönnum og öðr-
um ekki þörf á að þessi mál séu í brennidepli um-
ræðunnar. Petta er mögulega rétt. Lýsir það sér
ekki hvað síst í því að eitt af álfyrirtækjunum setur
sér þau markmið á heimasíðu sinni að fyrir árið
2004 verði búið að ljúka áhættumati með tilliti til
hættu fyrir heilsu starfsmanna og fylgst verði með
að minnsta kosti 95% af áhættuvöldunum jafnframt
því sem dregið verði úr efnamengun og mestu há-
vaðavöldum um 40%. Jafnframt þessu verði vinnu-
vistfræðilegra sjónarmiða betur gætt á hverri vinnu-
stöð og slysagildrum fækkað og að starfsmanna-
heilsuvernd með viðeigandi sérfræði þekkingu
verði til staðar í hverri verksmiðju (1).
Þetta eru virðingarverð markmið en til þess að
við sem læknar og málsvarar íslensku þjóðarinnar í
heilbrigðismálum getum tekið við þeim þurfum við
að skoða hvaða kröfur við viljum gera um vinnu-
umhverfi og hættu af því fyrir einstaklinga á ís-
lenskum vinnumarkaði og fjölskyldur þeirra. Til
þess að við getum komið fram með slíkar kröfur
þurfum við að afla meiri upplýsinga um þær hættur,
jafnt líffræðilegar, sálfræðilegar og félagslegar, sem
tengjast vinnu hérlendis og svara því hvaða áhrif
þær hafa á heilsu starfsmanna og fjölskyldna þeirra.
Nauðsynlegt er að athuga að umræða sem þessi er
grundvölluð á áhætttumati sem er lykilþáttur í öfl-
ugri starfsmannaheilsuvernd. Það þarf einnig að
spyrja hvernig á að bregðast við hættunni? Er hægt
að fjarlægja hana eða fjarlægja starfsmann frá hætt-
unni? Ef það er ekki unnt hvernig er þá hægt að
veita starfsmanninum nægilega vernd á annan
hátt? Og ef það er ekki hægt þá þarf að spyrja hvort
áhættan sé ásættanleg? Ef svo er þarf að spyrja
hvaða og hvers konar heilbrigðiseftirlit þarf og er
hægt að veita það? Þetta síðastnefnda atriði er sér-
staklega mikilvægt þegar litið er til framkvæmda í
strjálbýli þar sem langt er í þjónustu ef skyndileg
eða mikil óhöpp verða.
Nú þegar einhverjar mestu framkvæmdir Is-
landssögunnar eru að hefjast er mikilvægt að lækn-
ar taki virkan þátt í öllu sem lýtur að starfsmanna-
heilsuvernd, þar með töldu áhættumati, og tryggi
að slíkt mat og nauðsynleg þjónusta verði raun-
verulega veitt hér á landi. Nauðsynlegt er að und-
irstrika að slík þjónusta verði ekki einvörðungu
bundin stóriðnaðarfyrirtækjum sem sögulega séð
fylgir veruleg áhætta vegna efnamengunar eða
slysahættu heldur verði hún tengd við öll fyrirtæki.
Þetta verður ekki gert nema með því að veru-
lega aukið fjármagn verði lagt af hálfu opinberra
aðila, fyrirtækja og rannsóknasjóða til rannsókna á
vinnuslysum, áhættuþáttum, (líffræði-, sálfræði-,
vinnuvistfræði- og félagslegra), sem og til rannsókna
á heilsufari fólks í hinum ýmsu starfsgreinum. Það
er ábyrgð okkar lækna að kalla eftir þessu!
1. Sjá heimasíðu Alcoa:
www.alcoa.com/global/en/environment/goals.asp
Frágangur
fræðilegra greina
Höfundar sendi tvær geröir
handrita til ritstjórnar
Læknablaðsins, Hlíðasmára
8, 201 Kópavogi. Annað án
nafna höfunda, stofnana og
án þakka sé um þær að
ræða. Greininni fylgi
yfirlýsing þess efnis að allir
höfundar séu samþykkir
lokaformi greinar og þeir
afsali sér birtingarrétti til
blaðsins.
Handriti skal skilað með
tvöföldu línubili á A-4
blöðum. Hver hluti skal
byrja á nýrri blaðsíðu í
eftirtalinni röð:
• Titilsíða: höfundar,
stofnanir, lykilorð á ensku
og íslensku
• Agrip og heiti greinar á
ensku
• Ágrip á íslensku
• Meginmál
• Þakkir
• Heimildir
Töflur og inyndir skulu vera á
ensku eða íslensku, að vali
höfunda.
Tölvuunnar myndir og gröf
komi á rafrænu formi ásamt
útprenti. Tölvugögn (data)
að baki gröfum fylgi með,
ekki er hægt að nýta myndir
úr PowerPoint eða af netinu.
Eftir lokafrágang berist allar
greinar á tölvutæku formi
með útprenti.
Sjá upplýsingar um frágang
fræðilegra greina:
http://lb.icemed.is/
Umræðuhluti
Skilafrestur efnis í næsta blað
er 20. undanfarandi
mánaðar nema annað sé
tekið fram.
Höfundur er yfirlæknir Vinnueftirlits ríkisins.
Læknablaðið 2002/88 619