Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.09.2002, Page 48

Læknablaðið - 15.09.2002, Page 48
UMRÆÐA & FRÉTTIR / TILLAGA TIL LAGABREYTINGA Öllum læknum í LÍ er frjálst að sitja aðalfund félags- ins með málfrelsi og tillögurétti en atkvæðisrétt hafa eingöngu kjörnir fulltrúar aðildarfélaga. A fundinum eiga sæti stjórnarmenn LI, ábyrgðar- maður Lækna-blaðsins og framkvæmdastjóri félags- ins. Hafa þeir málfrelsi og tillögurétt. Stjórninni er heimilt (taka út leyfa eða) að bjóða öðrum starfsmönnum félagsins og gestum fundarsetu og þátttöku í umræðum. (Taka út Hið sama á við um aðra utanfélagsmenn, þegar sérstakar ástæður gera slíkt æskilegt.) Tillögur til lagabreytinga og ályktana skulu (taka út sendar) berast stjórn LÍ a.m.k. (taka út 4) fjórum vikum fyrir fundinn (Taka út Tillögurnar) Tillögur til lagabreytinga og ályktana skal birta í Læknablaðinu fyrir aðalfund verði því við komið. Stjórn LÍ skal senda aðildarfélögum eftirtalin gögn minnst (taka út 2) tveimur vikum fyrir aðalfund, talið frá og með útsendingardegi þeirra: 1. Skýrsla stjórnar 2. Ársreikningar liðins árs 3. Tillögur til lagabreytinga 4. Tillögur til ályktana 5. Önnur mál, sem borist hafa 6. Tillögur stjórnar um stjórnarkjör Tillögur um kjör stjórnarmanna skal senda stjórn LI eigi síðar en sjö dögum fyrir fundinn. (Hérfluttur texti ínœstu grein.) 8. gr. Verkefni aðalfundar Pessi mál skulu tekin fyrir á aðalfundi LÍ: 1. (Taka út Skýrsla stjórnar) Ársskýrsla stjórnar fé- lagsins fyrir liðið starfsár. 2. (Taka út Reikningar félagsins) Endurskoðaðir reikningar lelagsins fyrir hið liðna reikningsár, með athugasemduin cndurskoðanda, eru lagðir frant til úrskurðar ásamt endurskoðuðunt reikninguni Fræðslustofnunar lækna og Orlofssjóðs LÍ. 3. Áællun um framkvæmdir og fjárhag félagsins. 4. Ákvörðun árgjalds félagsmanna fyrir næsta ár. 5. (Taka út Kosning stjórnarmanna, eftir því sem lög mæla l'yrir um) Stjórnarkosning. 6. (Taka út Kosning) Kjör annars tveggja lækna í Siðanefnd LI og varamanns hans til (taka út 2ja) tveggja ára í senn. 7. (Taka út Kosinn einn endurskoðandi og annar til vara) Kjör skoðunarmanna reikninga. 8. Kynning á (taka út stöðu) inálefnum: a. Lífeyrissjóðs lækna b. Læknablaðsins c. Orlofssjóðs LI d. Fræðslustofnunar lækna 9. Ákveðinn fundarstaður fyrir næsta aðalfund 10. Önnur mál, er upp kunna að verða borin. Aðalfundur er lögmætur, ef hann er löglega boðaður. Formaður tilnefnir fundarstjóra og fundarritara. Fundarstjóri rannsakar í fundarbyrjun hvort löglega hafl verið boðað til fundarins og lýsir því síðan, hvort svo sé. Ályktunartillögur um þau málefni, sem eru á dagskrá fundarins, mega koma frarn á fundinum sjálfum. Aðrar tillögur til ályktana, sem ekki hafa verið kynntar skv. 4. tl., (taka út skal bera fram, þegar áður innsendar tillögur eru lagðar fram á fundinum. Verða (taka út þær) því aðeins teknar á dagskrá, að a.m.k. helmingur aðalfundarfulltrúa samþykki það í atkvæðagreiðslu. Atkvæðagreiðsla fer eftir því sem fundarstjóri kveð- ur nákvæmar á uin. Skrifleg atkvæðagreiðsla skal fara fram, ef einhver fundarmanna krefst þess. Ein- faldur meirihluti atkvæða ræður úrslitum á fundin- um, nema annað sé tekið fram í lögum þessum. Samþykktir aðalfundar eru bindandi fyrir aðildar- félögin og félagsmenn. (Tilflutningur þ.e. ákvœöi um stjórnarkjör flutt fram fyrir formannafundinn.) IV. KAFLI Um stjórn félagsins 9. gr. Skipan og kjör stjórnar (Formaður Félags ungra lœkna er skv. núgildandi samþykktum LÍsjálfkjörinn í stjórnina. M.v. úrsögn FUL úr LÍ er að svo stöddu gerð tillaga um að í stað formanns FUL, verði þrír meðstjórnendur kjörnir í stað nú tveggja) Stjórn félagsins skipa níu menn, formaður, ritari, varaformaður, féhirðir og fimm meðstjórnendur. Formenn Félags íslenskra heimilislækna, (taka út Fé- lags ungra lækna) og Sérfræðingafélags íslenskra lækna (í stað skammstafana) eru (taka út sjálfkrafa) sjálfkjörnir meðstjórnendur. (Taka út Aðrir stjórnar- menn) Þrír meðstjórnendur eru kosnir á aðalfundi úr hópi félagsmanna. Stjórnarmenn skulu vera frá a.m.k. (taka út 2) tveimur (taka út svæðafélögum) aðildarfélögum. (Taka út Stjórnarkosning skal vera skrifleg, óski einhver aðalfundarfulltrúi þess. sbr. hér að framan) 660 Læknablaðið 2002/88

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.