Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2002, Blaðsíða 30

Læknablaðið - 15.09.2002, Blaðsíða 30
FRÆÐIGREINAR / STARFSENDURHÆFING Tafla I. Afstaöa til starfsendurhæfingar á Reykjalundi. Ánægöir Hlutlausir Óánægöir Fjöldi Ánægja meö fræöslu1 80,0% 12,5% 7,5% 40 Ánægja meö æfingar og verkefni1 75,0% 15,0% 10,0% 40 Heildaránægja meö starfsendurhæfingu2 62,5% 30,0% 7.5% 40 1 Afstaöa til fræöslu og til æfinga og verkefna var mæld meö fimm eininga mælistiku. Þeir sem voru mjög eöa talsvert ánægöir eru flokkaöir sem ánægöir, þeir sem sögöust hvorki né eru flokkaöir sem hlutlausir og þeir sem voru talsvert eöa mjög óánægöir eru flokkaöir sem óánægöir. 2 Heildaránægja var mæld meö mælistiku sem náöi frá 0 (mikil óánægja) til 10 (mikil ánægja). Gildi 0 til 3 eru flokkuö sem óánægja, gildi 4 til 6 sem hlutleysi og gildi 7 til 10 sem ánægja. Tafla II. Afstaöa til fulls starfsnáms í Hringsjá. Ánægöir Hlutlausir Óánægöir Fjöldi Ánægja meö námsefni1 80,0% 6,7% 13,3% 15 Ánægja meö undirbúning fvrir starf1 100,0% 0,0% 0,0% 15 1 Afstaöa til fræöslu og til æfinga og verkefna var mæld meö fimm eininga mælistiku. Þeir sem voru mjög eöa talsvert ánægöir eru flokkaöir sem ánægöir, þeir sem sögöust hvorki né eru flokkaöir sem hlutlausir og þeir sem voru talsvert eöa mjög óánægöir eru flokkaöir sem óánægöir. Tafla III. Afstaöa til tölvunámskeiös í Hringsjá. Ánægöir Hlutlausir Óánægöir Fjöldi Ánægja meö námsefni1 84,2% 10,5% 5,3% 19 Ánægja með undirbúning fyrir starf1 84,2% 10,5% 5,3% 19 Heildaránægja meö tölvunámskeið2 63,1% 31,6% 5,3% 19 1 Afstaöa til fræöslu og til æfinga og verkefna var mæld meö fimm eininga mælistiku. Þeir sem voru mjög eöa talsvert ánægöir eru flokkaöir sem ánægöir, þeir sem sögöust hvorki né eru flokkaöir sem hlutlausir og þeir sem voru talsvert eöa mjög óánægöir eru flokkaöir sem óánægöir. 2 Heildaránægja var mæld meö mælistiku sem náöi frá 0 (mikil óánægja) til 10 (mikil ánægja). Gildi 0 til 3 eru flokkuö sem óánægja, gildi 4 til 6 sem hlutleysi og gildi 7 til 10 sem ánægja. að vera tilbúnir til að fara í þessa endurhæfingu af heilindum og ytri aðstæður þurfa að vera heppilegar. Við komu á Reykjalund fer fram vinnuprófun og kortlagning á færniskerðingu og hæfni og styrk- leikum hvers og eins. Að því loknu er gerður samn- ingur um markmið og leiðir að settu marki. Unnið er einstaklingsbundið og í hópum. Mikil áhersla er á fræðslu og kennslu. Lögð er áhersla á að bæta líkams- vitund og vinnustellingar, auka vinnuþol og styrktar- og úthaldsþjálfun. Skjólstæðingurinn er aðstoðaður við að setja sér raunhæf markmið miðað við færni og getu. Megináhersla í endurhæfingunni er á vinnuefl- ingu með því að auka vinnuþol með fræðslu, æfingum og vinnuprófun við ýmis verk, bæði innan staðar og utan. Einnig er lögð áhersla á vinnuaðlögun þar sem athugað er hvort hægt sé að breyta vinnuumhverfi, vinnutíma og vinnuferli. Veittur er stuðningur við at- vinnuumsóknir og athugun á vinnumarkaði. Meðal- dvalartími á Reykjalundi er um tveir mánuðir. í Hringsjá fer fram starfsendurhæfing fyrir ein- staklinga sem vegna afleiðinga sjúkdóma eða slysa þurfa að endurmeta og styrkja stöðu sína á vinnu- markaði. Fólk fær kennslu, þjálfun og ráðgjöf sem miðar að því að það verði fært um að vinna störf á al- mennum vinnumarkaði eða takast á við frekara nám. Almenn þekking og færni er endurnýjuð og aukin eftir þörfum, en einnig er veitt sérhæfing sem tekur mið af skrifstofu- og þjónustustörfum, meðal annars með kennslu í tölvunotkun og bókhaldi. Raunhæft sjálfsmat, aukið sjálfstæði, sjálfstraust og þor og aukin lífsgæði eru einnig höfð að leiðarljósi. Staða einstaklingsins er metin og hann lærir að þekkja sjálf- an sig betur, óskir sínar, hæfileika, getu og takmark- anir. Stundaskrá er fjórar til sex kennslustundir dag- lega. Einnig eru einstaklingsviðtöl hjá náms- og starfsráðgjafa og einstaklingviðtöl og umræðutímar hjá sálfræðingi. Hver einstaklingur er að jafnaði í starfsþjálfun í eitt og hálft ár. Auk þess er boðið uppá skemmri (30 til 60 kennslustunda) tölvu- og bók- haldsnámskeið. Kennt er í litlum hópum og getur hver unnið á sínum hraða. Nemendum námskeiða er boðið upp á náms- og starfsráðgjöf. Til að meta viðhorf matsþega til endurhæfingar- matsins, til þeirra starfsendurhæfingarúrræða sem vísað var til í kjölfar þess og áhrif þessa ferlis á sjálfs- traust og sjálfsbjargarviðleitni þeirra, var gerð við- horfskönnun hjá þeim sem metnir voru af matsteym- inu árið 2000. Það ár var fyrsta heila almanaksárið sem starfsemin fór fram. Efniviður og aðferðir Rannsóknin er byggð á viðhorfskönnun sem Félags- vísindastofnun Háskóla íslands gerði fyrir T’R í októ- ber 2001. Reynt var að finna þá 109 einstaklinga sem metnir höfðu verið af matsteymi á árinu 2000. Viðtöl- in voru tekin í síma. Þátttakendum var heitið nafn- leynd og fullum trúnaði. Við úrvinnslu var notuð lýs- andi tölfræði. Engar persónutengdar upplýsingar voru notaðar í úrvinnslu. Könnunin var gerð með vit- und Persónuverndar. Niðurstöður Svör fengust frá 83 af 109 matsþegum, eða 76,1%. Brottfall (23,9%) mátti einkum rekja til þess að ekki náðist til viðkomandi, meðal annars vegna búsetu erlendis þegar könnunin fór fram eða að fólk vildi ekki taka þátt í könnuninni. Allir 83 þátttakendumir höfðu hitt endurhæfing- arlækni, 80 (96%) félagsráðgjafa, 79 (95%) sjúkra- þjálfara og 55 (66%) sálfræðing matsteymis. Fjörutíu einstaklingum (48%) hafði að tillögu matsteymis ver- ið vísað í atvinnulega endurhæfingu á Reykjalundi, 19 (23%) á tölvunámskeið í Hringsjá og 15 (18%) í fullt starfsnám í Hringsjá. Tafla I sýnir afstöðu til starfsendurhæfingar á Reykjalundi. Reyndist drjúgur meirihluti þátttak- enda ánægður með fræðsluna þar og þær æfingar og verkefni sem þeir tóku þátt í og talsverður meirihluti var í heildina ánægður með endurhæfinguna. Töflur II og III sýna afstöðu til starfsendurhæfing- ar í Hringsjá. I töflu II sést að fjórir af hverjum fimm vom ánægðir með námsefni og allir með þann undir- búning sem fullt starfsnám veitti fyrir vinnu. Tafla III sýnir að 84,2% þátttakenda voru ánægðir með náms- 642 Læknablaðið 2002/88
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.