Læknablaðið - 15.09.2002, Blaðsíða 25
FRÆÐIGREINAR / BIÐLISTAR, KYN, ALDUR
Tafla II. Aögerðir meö lengsta biölista í maí 2001 og fjöldi sjúklinga sem eftir þeim bíöa, skipt niður í hópa. Nafni aögeröar fylgir aögeröarnúmer
samkvæmt NOMESCO-flokkunarkerfinu.
Deild Aögerö Fjöldi á biölista Fjöldi karla Fjöldi kvenna Eldri hópur Yngri hópur
Almenn skurödeild LSH Hringbraut Aðgerð til að stöðva bakflæði úr maga i vélindi í kviðarholsspeglun (JBCOl) 287 118 169 Fædd 1953 eða fyrr: 145 Fædd 1954 eða síðar: 141
Augndeild LSH Hringbraut Augasteinsþeyting meö ísetningu gerviaugasteins í afturhólf (CJE20) 625 204 421 Fædd 1922 eða fyrr: 322 Fædd 1923 eða síðar: 303
Sameinuö bæklunar- lækningadeild LSH Frumendurnýjun mjaðmarliöar að fullu, með liðgervi, meö sementi (NFB40) 124 58 66 Fædd 1930 eöa fyrr: 61 Fædd 1931 eða síðar: 63
Reykjalundur (endurhæfing) Endurhæfing * 945 328 617 Fædd 1944 eöa fyrr: 473 Fædd 1945 eða síðar: 471
Háls-, nef- og eyrna- deild LSH Fossvogi Hálskirtlataka 218 111 107 Fædd 1981 eða fyrr: 106 Fædd 1982 eða síöar: 112
Lýtalækningadeild LSH Hringbraut Brjóstlögun með minnkun brjósts og tilfærslu geirvörtureits (HAD30) ** 288 Fæddar 1967 eða fyrr: 147 Fæddar 1968 eða síðar: 141
* Þar sem fjölbreytilegar ástæöur liggja aö baki beiöni um endurhæfingu var erfitt aö skilgreina stóran hóp viö nákvæmlega sömu aöstæöur.
** Hér var aö sjálfsögöu ekki hægt aö bera saman biötíma kynja þar sem eingöngu konur gangast undir brjóstaminnkun. Þetta var þó sú aögerö sem langflestir biöu eftir á
lýtalækningadeildinni og lá því beinast viö aö líta nánar á hana.
Umræöa
Rannsókn okkar hefur sýnt fram á marktækan mun á
biðtíma mismunandi sjúklingahópa eftir aðgerðum á
ýmsum sjúkradeildum á Reykjavíkursvæðinu. I sum-
um tilvikum kom þessi munur fram við samanburð
eftir aldri og í öðrum tilvikum eftir kyni.
Biðtímamunurinn sem fannst getur skipt verulegu
máli, enda getur biðin haft umtalsverð áhrif á heilsu
og líðan fólks. Dönsk rannsókn leiddi til dæmis í ljós
að flestir sjúklingar á biðlista eftir bæklunaraðgerð-
um höfðu stöðuga verki, áttu erfitt með að bjarga sér
sjálfir, juku mjög lyfjanotkun sína, lögðust gjarnan
inn á sjúkrahús og einangruðust félagslega. Einnig
olli langur biðtími verri bata eftir brjósklosaðgerðir
(6). Spænsk rannsókn leiddi í ljós að lífsgæði sjúk-
linga sem biðu eftir aðgerð vegna góðkynja stækkun-
ar á blöðruhálskirtli voru mun verri en samanburðar-
hóps í sama aldursflokki (7). I svipaðri rannsókn
gerðri í Hollandi kom fram skerðing á lífsgæðum hjá
sjúklingum á biðlista eftir kransæðavíkkun (8). Það
sama var uppi á teningnum í Kanada en þar var rann-
sóknarhópurinn sjúklingar sem biðu eftir kransæða-
hjáveituaðgerð. Sjúklingar sem biðu lengur en þrjá
mánuði eftir aðgerðinni voru sérlega illa settir, töp-
uðu miklu af líkamlegri og félagslegri færni á biðtím-
anum og fengu mun frekar aukaverkanir í kjölfar að-
gerðar (9).
Það vekur þó athygli að samkvæmt hollenskri
rannsókn, sambærilegri þeim er lýst var hér að ofan,
voru einungis 15% sjúklinga sem biðu eftir bæklunar-
og augnaðgerðum óánægð á biðtímanum, jafnvel
þótt hann væri allt að sjö mánuðir (10). Aþekkar nið-
urstöður fengust í Bretlandi þar sem þeir sem lengst
Tafla III. Samanburöur á miögildi biötima kynja og tveggja aldurshópa á biölistum sex
heilbrigðisstofnana. Biötíminn er gefinn í vikum.
Deild Biö karla Biö kvenna P-gildi Biö eldri hóps Biö yngri hóps P-gildi
Almenn skurödeild LHS Hringbraut 73 60 < 0,05 67 66 em*
Augndeild LHS Hringbraut 15 17 em 18 14 < 0,001
Bæklunardeild LHS Hringbraut 33 28 em 33 30 em
Reykjalundur 17 21 < 0,05 26 17 < 0,025
Háls-, nef- og eyrnadeild 29 33 < 0,05 33 21 < 0,01
Lýtalækningadeild LHS Hringbraut 82 75 em
* em = ekki marktækt.
biðu báru sig síst verr en hinir og geðheilsa þeirra
reyndist betri (11).
Rannsóknir benda þó í langflestum tilvikum til að
langur biðtími sé til ills, enda verða sjúklingar á bið-
listum í meiri eða minni mæli fyrir andlegum og lík-
amlegum óþægindum á biðtímanum. Stjórnvöld virð-
ast enda telja langa biðlista vera til óþurftar og leggja
áherslu á styttingu þeirra, jafnvel með löggjöf.
Misræmi á biðtíma eftir kyni og aldri eins og kom
fram í þessarri rannsókn hefur fundist á sjúkrahúsum
víðs vegar um heiminn. í Bandaríkjunum þurfa konur
nær undantekningarlaust að bíða lengur eftir líf-
færaígræðslum en karlar og eru einnig síður settar á
slíka biðlista (12-14). Auk þess hefur komið fram að
eldra fólk bíður lengur en yngra fólk eftir nýma-
ígræðslu (13) og börn lengur en fullorðnir eftir lifrar-
Læknablaðið 2002/88 637