Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.2003, Síða 7

Læknablaðið - 15.10.2003, Síða 7
RITST JÓRIUARGREINAR Hönnun spítala í þessu hefti Læknablaðsins birtist athyglisverð grein um aðstöðu sjúklinga á Landspítala (1). Fram kemur að einungis 13% sjúkrarúma eru í einbýlum og 43% sjúkrarúma eru í þríbýlum eða fjölbýlum. Næstum þrír sjúklingar að meðaltali þurfa að deila með sér sal- erni og á einni deild þurftu 13 sjúklingar að deila með sér einu salerni. Handlaugar eru af skornum skammti á fjölbýlum og þurfa sjúklingar, gestir og starfsfólk að deila þeim með sér. Höfundur greinarinnar vekur einnig athygli á því að spítalasýkingum hefur fjölgað umtalsvert á undanförnum misserum sem leitt hefur til þess að loka hefur þurft deildum tímabundið vegna faraldra innan spítalans. Skyndilokanir sem þessar hafa valdið mikilli röskun á starfsemi spítalans. Ekki fer á milli mála að bágborin hreinlætisaðstaða sjúk- linga og starfsfólks, mikil nálægð sjúklinga og síendur- tekin tilfærsla þeirra grefur undan sýkingavarnastarfi, hversu vel sem reynt er að standa að því. Spítalar geta verið varasamir staðir. Til forna reyndu menn að forðast spítala og einungis fátæk- lingar voru lagðir inn á slíkar stofnanir. Til eru við- vörunarorð frá árinu 1219 þar sem varað var við að leggja fólk með holdsveiki, sóttnæma sjúkdóma, ó- frískar konur og ungabörn inn á spítalann í St. John í Bridgewater á Englandi (2). Það var ekki fyrr en upp úr miðri 20. öld sem fæð- ingar á sjúkrastofnunum töldust nokkuð öruggar. Um miðja 19. öld gat Semmelweiss sér þess til að barnsfarasótt væri smitsjúkdómur og bærist hann með óhreinum höndum lækna og ljósmæðra. Tókst honum að sýna fram á að með sótthreinsun og hand- þvotti heilbrigðisstarfsmanna mátti draga mjög úr barnsfarasótt (3). Nightingale gerði ýmsar athuganir á hönnun sjúkrahúsa sem hún byggði á reynslu sinni frá Krímstríðinu á 19. öld. Meðal annars taldi hún að öndunarfæraslím væri varasamt, einangra bæri sjúk- linga og huga bæri loftræstingu (4). Á síðari hluta 19. aldar var sums staðar tekið tillit til sýkingavarna við hönnun spítala. Árið 1875 var gerð var krafa um að John Hopkins spítali sem til stóð að byggja skyldi vera vel loftræstur og búinn sérstakri einangrunar- deild fyrir sjúklinga með næmar sóttir (5). Talið var til grundvallaratriða að loftræsting væri góð og að skilið yrði hæfilega á milli sjúklinga. Árið 1920 var bent á að sjúkrahús væru í raun hót- el fyrir veikt fólk. Sjúklingar sem lagðir eru inn á spít- ala ættu sama rétt á einbýli með eigin salerni og þvottaaðstöðu og fólk sem gistir á venjulegum hótel- um (6). Sjúkrahúsið Royal Infirmary í Aberdeen í Skotlandi, sem byggt var á 7. áratug síðustu aldar, var sérstaklega hannað til að draga úr líkum á spítalasýk- ingum (7). Engin herbergi með fleirum en fjórum sjúklingum voru leyfð og 41% herbergjanna voru einbýli. Öll herbergi voru loftræst með sérstökum síum til hreinsunar loftsins. Höfundur greinarinnar um aðstöðu sjúklinga á Landspítala bendir á að ekki sé að finna neina staðla hér á landi um hönnun sjúkrahúsa með tilliti til sýk- ingavarna. Erlendis er fjallað sérstaklega um að brýn nauðsyn sé á því sérfræðingar í sýkingavörnum séu hafðir með í ráðum við hönnun sjúkrastofnana á öll- um stigum (8, 9). Spítalarnir á íslandi eru börn síns tíma en ljóst er að sýkingavarnir hafa ekki verið í fyr- irrúmi þegar þeir voru reistir á 20. öld nema í undan- tekningartilvikum. Á undanförnum árum hefur verið leitast við að bæta aðstöðu sjúklinga og sýkingavarn- ir við báða stóru spítala Landspítala en erfitt er um vik vegna upphaflegra hönnunargalla. Spítalasýkingar eru samfélaginu afar dýrar. í Bandaríkjunum er talið að þær kosti samfélagið ná- lægt fimm milljörðum dollara árlega (10). Fjárhags- legt tjón vegna spítalasýkinga hér á landi hefur ekki verið metið en ætla má að það hlaupi á hundruðum milljónum króna árlega. Ekki verður hjá því komist að ráðast sem allra fyrst í byggingu nýs Landspítala og eru ástæðurnar margar. Þegar ráðist verður í þá byggingu verða sýkingavamir að vera í fyrirrúmi. Sjúklingar eiga þá kröfu að vera ekki í meiri hættu á að sýkjast innan spítala en utan hans. Vandinn sem steðjar að á 21. öldinni er vaxandi fjöldi sjúklinga með bælt ónæmiskerfi, aukning á sýkl- um sem eru ónæmir fyrir sýklalyfjum og vaxandi líkur á hættulegum heimssóttum, hvort sem þær eru af manna völdum eða náttúrulegum orsökum. HABL faraldurinn ætti að vera öllum enn í fersku minni. Heimildir 1. Kristjánsson M. Aðstaða sjúklinga á Landspítala. Læknablað- ið 2003; 89: 793-5. 2. Maxwell-Lyte HC, ed. The Register of Thomas Bekynton, Bis- hop of Bath and Wells 1443-1465. Vol. 49. Sommerset, UK: Sommerset Record Society; 1934, p. 289. 3. Semmelweiss IF. The etiology, the concept and the prophylax- is of childbed fever. In Pest CA, ed. Hartleben’s Verlag-Ex- pedition 1861. 4. Nightingale F. Notes on Hospitals. London. John W. Parker & Son: 1859, pp. 11,90-1. 5. Chesney AM. The John Hopkins Medical Hospital and the John Hopkins University School of Medicine. Baltimore: John Hopkins Press; 1943,20-1. 6. Bacon AS. Efficient hospitals. JAMA 1920; 4:123-6. 7. Gainsborough H, Gainsborough J. Principles of hospital design. London: Architectural Press; 1964. 8. American Institute of Architects. Guidelines for design and construction hospital and health care facilities, 1996-1997. Washington: American Institute of Architects Press; 1996. 9. Noskin GA, Peterson LR. Engineering infection control through facility design. Emerg Infect Dis 2001; 7: 54-7. 10. CDC. Public health focus: surveilance, prevention, and control of nosocomial infections. MMWR 1992; 41: 783-7. Haraldur Briem Höfundur er sóttvarnalæknir. Læknablaðið 2003/89 743
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.