Læknablaðið - 15.10.2003, Blaðsíða 57
UMRÆÐA & FRÉTTIR
/ LANDSPÍTAL
Aðstaða sjúklinga á Landspítala
Höfundur er annar tveggja fulltrúa starfsmanna í
stjórn Landspítala. Samkvæmt lögum og reglugerð
um stjórn sjúkrahúsa er það m.a. hlutverk fulltrúa
starfsmanna í stjórnum þeirra að benda á það sem
miður er í aðstöðu starfsmanna og skjólstæðinga
sjúkrahúsa.
í nokkur skipti á undanförnum misserum hefur
höfundur fært í tal á fundum stjórnarnefndar spítal-
ans áhyggjur sínar af fjölgun spítalasýkinga á
Landspítala sl. ár. Það má rekja m.a. til aukinnar um-
setningar sjúklinga, aukins bráðleika veikinda hjá
þeim sem leggjast inn á sjúkrahúsið og ófullnægjandi
salernis- og hreinlætisaðstöðu sjúklinga á mörgum
sjúkradeildum spítalans.
Til að kanna aðstöðu sjúklinga á helstu legudeild-
um spítalans þar sem hreinlæti skiptir miklu fór höf-
undur á ýmsar deildir sjúkrahússins til að finna út af
eigin raun hvernig salernismálum og skipan sjúk-
linga á sjúkrastofur er háttað. Um er að ræða óform-
lega könnun en frá niðurstöðum er greint hér að neð-
an.
Könnun á aðstöðu sjúklinga
Þann 8. ágúst sl. var könnun framkvæmd af höfundi
þar sem rætt var við hjúkrunardeildarstjóra eða stað-
gengil þeirra á sjúkradeildum í meðfylgjandi töflu.
Spurt var um fjölda rúma á deild, um fjölda ein-, tví-
og þríbýla auk herbergja með fleiri rúm en en þríbýli.
Síðan var spurt um fjölda salerna og sturtur fyrir
sjúklinga. Niðurstöður eru sýndar í töflu 1.
Á degi könnunarinnar voru 336 rúm opin fyrir
sjúklinga á 19 opnum sjúkradeildum (5 deildir voru
lokaðar). Alls voru 373 rúm á framangreindum
deildum en 27 rúm voru lokuð. Einbýli voru 13% af
framboði sjúkrarúma, tvíbýli 44%, þríbýli 20% og
fjórbýli eða fleirbýli 23%.
Á18 deildum voru einbýli (2 deildir með 1 einbýli,
7 með 2 einbýli, 7 með 3 einbýli, 1 með 4 einbýli og
1 með 7 einbýli); 17 deildir höfðu tvíbýli (1 deild með
1 tvíbýli, 1 með 2 tvíbýli, 2 með 3 tvíbýli, 3 með 4 tví-
býli, 6 með 5 tvíbýli, 1 með 6 tvíbýli,! með 7 tvíbýli, 1
með 8 tvíbýli og 1 með 10 tvíbýli); 9 deildir höfðu þrí-
býli (2 með 1 þríbýli, 1 með 2 þribýli, 4 með 3 þríbýli,
1 með 4 þríbýli og 1 með 5 þríbýli); 7 deildir höfðu
fjórbýli; 1 deild fimmbýli; 3 deildir sexbýli og 1 deild
sjöbýli. Fjórtán af 19 deildum (74%) sem voru kann-
aðar höfðu eitt eða fleiri þríbýli eða stærri stofur fyr-
ir sjúklinga.
Kannaður var fjöldi salerna á sömu sjúkradeild-
um. Alls voru 130 salerni á 19 deildum fyrir sjúklinga,
eða 2,6 sjúkling per salerni (2,9 sjúkling per salerni ef
öll sjúkrastæði væru nýtt). Þegar horft er til þess
hvernig salernisaðstöðu er háttað á einstökum deild-
Tafla I.
deild fjöldi rúma einbýli tvíbýli bríbýli > þríbýla fjöldi salerna fjöldi sturta
11 E 12 4 4 0 0 6 2
12 E 15 2 7 0 0 7 4
13 E lokað
14 E 21 3 5 0 2x41 7
11 G 13 3 5 0 0 7 3
12 G 22 2 6 2x4 6 2
13 G lokaö
14 G 21 3 5 0 2x4 7
13 D 15 2 0 5 0 6 2
11 B lokað
13 B 13 0 1 0 6+4+22 1 0
13 A lokaö
20 A 13 2 3 2 6+7+4 7 5
22B 13 2 4 1 0 3 4
22 A 20 1 4 3 1x4 5 5
A2 12 1 0 0 3x4 6 2
A 4 lokaö
A 5 23 3 3 1 5x1 ;6x2 5 1
A 6 22 2 10 0 0 7 5
A 7 23 7 8 0 0 14 9
B 2 20 3 5 3 0 9 2
B 4 20 3 5 3 0 9 2
B 6 20 3 5 3 0 9 2
B 7 18 2 2 4 0 9 2
Samtals 336 48 82 25 19 130 52
1. 2x4 táknar tvö 4ra manna herbergi
2. 6+4+2 táknar 3 fjölbýli, 1 sexmanna, 1 fjögurramanna og annaö fjögurramanna meö 2 sjúklingum
um spítalans vekur athygli að á deild 13 B (blóðskil-
unardeild) er einungis eitt salerni fyrir 12 sjúklinga-
stæði (það voru 13 sjúklingar á degi könnunar).
Það eru 23 einbýli sem hafa sér salerni. Það tákn-
ar að fjöldi sjúkinga per salerni að meðaltali þegar
frádregnir hafa verið þeir sem hafa einkasalerni er
3,1 (eða 3,5 þegar gert er ráð fyrir fullri nýtingu
deilda). Höfundur er yfirlæknir á
smitsjúkdómadeild
Landspítala.
Már Kristjánsson
Læknablaðið 2003/89 793