Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.2003, Blaðsíða 53

Læknablaðið - 15.10.2003, Blaðsíða 53
UMRÆÐA & FRÉTTIR / RÆÐA FORMANNS Ræða formanns á aðalfundi LÍ á Hólum í Hjaltadal Staður eins og Hólar geymir vafalítið mikla sögu um lækningar þó saga kirkju, kristni og uppfræðslu sem því tengdist sé fyrirferðarmest og hafi best ver- ið til haga haldið. í tíð Guðmundar góða var benj- um þurfandi lýðs áreiðanlega sinnt jafnt og öðrum líkamlegum þörfum hans eftir því sem þekking og reynsla leyfði á þeim tíma. En því miður eru heim- ildir um þetta af skornum skammti og í raun fátæk- legar um klíníska vinnu þar til séra Þorkell Arn- grímsson skrifaði með nákvæmni og smásmygli læknisins um lækningar sínar á bók. Þorkell útskrif- aðist úr Hólaskóla 1647 og var áreiðanlega einn merkastur læknir á íslandi um sína daga. Bjarni Pálsson landlæknir og tengdasonur hans Sveinn Pálsson voru báðir Hólasveinar og hlutu hér þann undirbúning sem dugði þeim til náms í læknisfræði. Ekki verður vikist undan því við setningu aðal- fundar LI að fara örfáum orðum um dægurmál sam- tímans eins og jafnan er siður. Biskupsstólarnir lögðu sitt að mörkum til upphafs nútímalegrar skattlagningar með þróun tíundargreiðslna sem allt fram á okkar daga hafa tekið mið af getu hvers og eins til að leggja samfélaginu lið eftir efnum sínum. Þetta hefur verið gert til að milda þann mun sem lögmál náttúrunnar og lífið sjálft leggur okkur til í dagsins önn. Og kveinkar enginn heilbrigður maður sér undan þeirri sjálfsögðu skyldu. Við höfum nú nýverið gengið í gegnum hina árlegu umræðu um tekjur manna og skattbyrði einstaklinganna, þar sem m.a. tekjur lækna hafa vakið athygli og skal það að sínu leyti ekki gagnrýnt. Hafa verður þó í huga að annars vegar liggur óhemju mikil vinna að baki þessum tekjum, einkum þeirra lækna sem vinna vítt og breitt um landið, og hins vegar endurspeglar staða þeirra í einstökum skattumdæmum miklu frekar þann mun sem er á afkomu fólks í atvinnu- lífinu eftir landshlutum og heilbrigði efnahags- og atvinnuástandsins á umræddum stöðum. Það ætti að vera stjórnmálamönnum umhugsunarefni. Því færi ég þetta í tal að sjónir stjórnar LÍ beinast nú að skattalögum og skattalegri meðferð aflafjár- ins. Athygli vekur að staða lækna sem vinna svipuð störf, jafnvel hlið við hlið, er ákaflega mismunandi. Fagna ber vilja stjómvalda til að ýta undir fijálsan at- vinnurekstur og örva framtak fólks til að sjá sér far- borða með þeim hætti. Það er eitt af höfuð stefnu- miðum LÍ að hlúa að þessu fyrirkomulagi og að benda á lausnir í heilbrigðisþjónustu sem byggja á þessari meginreglu. Því eru þær breytingar á skatta- lögum sem gerðar hafa verið í þágu atvinnurekstrar á liðnum árum fagnaðarefni. En við svo búið má ei sitja. Halda þarf áfram á sömu braut og gera ráðstaf- anir til að skattaleg hagræðing stuggi ekki við jafn- ræðinu og þá með því að skattar einstaklinga verði færðir í það horf að tíundin sem við erum öll svo fús til að greiða sé ekki þorn eða fleinn í holdi samfélags- ins. Það er öllum fyrir bestu að sátt ríki um hvernig byrðunum er deilt. Næg eru ágreiningsefnin samt. Fyrr á árinu varð all mikil umræða um lyfja- kostnað landsmanna. Sú umræða er bæði gömul og ný. Það er engin ný saga að þeir sem með opinbert fé fara kvarti undan lyfjakostnaði. Á níunda ára- tugnum varð lyfjakostnaður til þess að afdrifaríkar pólitískar ákvarðanir voru teknar um heilbrigðis- þjónustu. Sveitarfélögin voru að kikna undan lyfja- kostnaði sjúkrasamlaganna sem leiddi til þess að þau voru lögð niður, ríkið tók við skyldum þeirra og öll grunnheilbrigðisþjónusta fylgdi með. Þetta þekkjum við allt saman. En það er nokkur nýlunda í seinni tíð að læknar séu með beinum hætti kallað- ir til ábyrgðar á meintum óhóflegum útgjöldum til lyfja. Og svo er umræðan tengd mútuþægni lækna og ístöðuleysi gagnvart gegndarlausum áróðri lyfjaframleiðanda og lyfjadreifingarinnar. Umræða af þessu tagi er mikil einföldun á eðli málsins og ómálefnaleg. Enda hafa læknar boðið upp á aðra nálgun sem sæmir bæði þeim og heil- brigðisstjórninni. Læknar eru jafn áhugasamir og aðrir að halda kostnaði við lyfjakaup niðri og að hagræðingar sé gætt á öllum stigum milli framleið- anda og neytanda. Heilbrigðisþjónustan á að vera undir þessari smásjá gagnrýninnar þannig að fjár- magnið nýtist fleirum til að þiggja víðtækari þjón- ustu. En umræðan þarf að vera fagleg ekki síður en fjárhagsleg. Því hafa læknar boðið heilbrigðisstjórn- inni bæði formlega og óformlega samstarf á þessu sviði. Við teljum það vænlegra til árangurs en stór orð, sleggjudómar eða misgáfulegar tilskipanir sem kalla ekki fram það besta í þeim sem við þær eiga að búa. Eg veit að núverandi ráðherra hefur heilbrigt viðhorf til þessara mála og LÍ á nú þegar einn full- trúa í starfshópi um lyfjamál á vegum ráðuneytisins og væntum við frekara samstarfs á þeim vettvangi. Það er alltaf með nokkurri eftirvæntingu að lækn- ar bíða niðurstöðu alþingiskosninga. Ekki vegna þess að þeir séu svo mjög samstíga í landsmálapóh- tík; því fer víðs fjarri. Þeir bíða þess að fá að vita hvaða einstaklingur fari með málefni þeirra næstu fjögur árin innan ríkisstjómarinnar. Það er ekki á- hlaupaverk að kynna nýjum ráðherra sjónarmið Sigurbjörn Sveinsson Læknablaðið 2003/89 789
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.