Læknablaðið - 15.10.2003, Blaðsíða 55
UMRÆÐA & FRÉTTIR / RÆÐA FORMANNS
lækna hvað varðar hin einstöku úrlausnarefni sem
eru á döfinni, hvað þá að vinna traust hans og mál-
efnunum brautargengi. Ég vil að það komi fram hér
að það varð mér persónulegt fagnaðarefni að Jón
Kristjánsson hélt sínum ráðherradómi fyrir hönd
framsóknarmanna. Ég hef átt ágæt samskipti við Jón
Rristjánsson frá því hann tók við ráðuneytinu og hef
enga ástæðu til annars en að ætla að svo verði áfram.
Það er ánægjuefni að ráðherrann skuli verja sínum
dýrmæta tíma til að vera við setningu þessa aðal-
fundar hér á Hólum, í uppvaxtarsveit sinni og ekki
fjarri kjördæmi sínu. Mér segja fróðir menn, Svarf-
dælir, að ekki þurfi að fara nema rétt hér handan við
Hólabyrðuna í Kolbeinsdal og fram á Heljardals-
heiði, þá sé komið í kjördæmi heilbrigðisráðherra.
Vil ég að því mæltu segja aðalfund Læknafélags
íslands á Hólum í Hjaltadal 2003 settan og bjóða
Jóni Kristjánssyni að ávarpa fundinn.
Frétt trá Landlæknisembættinu
Bókin iim bakið er komin út hjá Landlæknisemb-
ættinu. Hópur breskra sérfræðinga sem hefur ein-
beitt sér að meðferð bakverkja samdi bókina og
stuðst er við nýjustu rannsóknir. Bókin kom fyrst
út í Bretlandi 1996 í tengslum við gerð klínískra
leiðbeininga um bakvandamál og meðferð þeirra.
Önnur útgáfa, aukin og endurbætt, kom út á síð-
astliðnu ári og er íslenska útgáfan þýðing hennar.
A vefsetri Landlæknisembættisins komu út
klínískar leiðbeiningar um bráða bakverki í árslok
2002 og var þar stuðst við bresku leiðbeiningarnar.
I framhaldi af því var ákveðið að þýða Bókina um
bakið. Magnús Ólason, yfirlæknir á Reykjalundi,
þýddi bókina en hann stýrði vinnuhópi um gerð
klínísku leiðbeininganna.
Bókin geymir ráðleggingar um hvernig best er
að bregðast við og hafa stjórn á bakverkjum,
hvernig hægt er að ná sér tiltölulega fljótt og halda
sér gangandi með því að hreyfa sig eftir getu og
reyna að lifa eðlilegu lífi þrátt fyrir verki.
Bakverkir eru mjög algengir og
valda mikilli vanlíðan þótt alvarleg
bakvandamál séu í raun sjaldgæf. Það
er því mikil þörf fyrir gagnlegar upp-
lýsingar fyrir fólk sem þjáist af bak-
verkjum. Markmið með útgáfunni er
að læknar og aðrir meðferðaraðilar,
s.s. sjúkraþjálfarar og kírópraktorar,
gefi sjúklingum sínum Bókina um
bakið til að hjálpa þeim að ráða við
bakverki strax á bráðastiginu. Einnig
verður bókinni dreift hjá heilsugæsl-
unni.
í júlí sl. var Bókin um bakið gefin
út á vefsetri Landlæknisembættisins
en með rausnarlegum styrk frá
SPRON reyndist unnt að gefa bókina
einnig út á prenti. Hún er prentuð í
Prentsmiðjunni Odda sem einnig
annast dreifingu.
Bókin um
BAKIÐ
Læknablaðið 2003/89 791